Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1983, Qupperneq 12

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1983, Qupperneq 12
12 Síðbúin kveðja Víkingur Haustiö 1938 hitti eg Guð- mund skipstjóra Oddsson á gangi i Hafnarstræti i Reykja- vík. Við vorum Bolvikingar og kunnugirog tókum tal saman. Gu'ðmundur spurði mig að því formálalaust hvort eg vildi taka að mér ritstjórn blaðs, sem i ráöi væri að sjómannasamtök gæfu út. Skildi eg fá kaup fyrir. Gleypti eg þessa flugu þvi eg var blankur eins og oftar. Satt aö segja var eg ekki fær til þessa starfs, þvi eg vissi næsta fátt um sjómenn, sam- tök þeirra, viðfangsefni og áhugamál. Það mátti þegar þetta var heita flest óráðið um útgáfu þessa blaös. Þarna var nánast hugmynd á ferö, og hafði raun- ar skotið upp kolli allt frá 1904 en jaf nan strandað á einhverju, oftastfjárhag og ritstjóra. Nú mátti segja aö ritstjórinn væri fenginn, en það var allt og sumt. Það vantaöi fé og alla aðstöðu, nafn og form á blaðið sölu- eöa umboðsmenn úti um land, að ekki sé talað um kaup- endur. Það stóð i baxi um þessi mál i marga mánuði og satt að segja var eg orðinn langeygur eftir kaupinu og átti þess jafn- vel von aö ekkert yröi úr þessu. Guðmundur Oddsson var ekki á því að þessa rynni út i sand- inn, og vann að þvi öllum árum að hrinda blaðinu af stokkum. Mér er til efs þótt margir ágætir menn komi hér við sögu, að nokkuð hefði orðið úr blaðaút- gáfu ef Guömundar heföi ekki notið við. Hann vann ótrauður að málinu og sparaði hvorki fé né fyrirhöfn, og hélst það lengi siðan aðGuðmundurvarburð- arási útgáfublaðsins. Fyrstu mánuðir ársins 1939 liðu svo að hvorki rak né gekk. Fyrir utan fjármál og formsatr- iði þurfti aö samræma ýms sjónarmið skipstjórnarmanna, vélstjóra og loftskeytamanna og varmargtrætt. Svo fréttist þaö að önnur samtök hefðu í hyggju að stofna til blaðaútgáfu beinlinis í samkeppni við hið fyrirhug- aöa blað Farmanna- og fiski- mannasambands íslands. Þetta varð til þess að ákveöið var að koma þegar út blaöi fyrir F.F.S.Í., og réði Guðmundur Oddsson mestu um þetta, m.a. fjármálin. Blaöinu var í skyndi valið nafnið „Vikingurinn" ásamt með káputeikningu. Svo fljótt þurfti til að taka að eg sat hjá káputeiknaranum Tryggva Magnússyni meðan hann lagði siöustu hönd á teikningu sina og fór með hana beint í prentmyndagerð. Ekki var til efni i blaðiö nema aö litlu leyti. Siöan komu hrifsingarvið að prenta blaðið og brjóta um, og mátti heita að lagt væri saman nótt og dagur. Þessi hraði og það hve allt var i frum- gerð og vart hugsað eða rætt til hlýtar, olli þvi að fyrsta tölublað „Vikingsins" varð minna held- ur en ætlað var. Næsta blað fékk það snið, sem það hefur siðan haft. Blaðið heitir nú: „Sjómannablaðið Víkingur", en efnisval og meðferð hefur að sjálfsögðu breyst með nýj- umaðstæðum. Eg vann nokkuð að þessu blaðmáli, og eg get fullyrt að þar hafi Guðmundur Oddsson komið mest við sögu. Eg skildi ekki og hefi aldrei skiliö hvernig hann hafði tóm til þreytandi snúninga þvi eg vissi aö hann hafði störfum að sinna, og að auki mörg félags- leg áhugamál. Að mér sneri aðeins sú einfalda hlið málsins að ritstýra blaðinu. Að öðru hafði eg þau ein afskipti að sjá um útsendingu blaðsins, sem var reyndar nokkuð seinlegt verk og ekki skemmtilegt. Það varö að brjóta blaöið i pappir, lima og árita til hvers kaupanda og allra umboðsmanna. Guð- mundur Oddsson var hinsveg- ar aðalmaður í öllu öðru sem snerti „Vikinginn", og þaö var ekki litiö verk og kostaöi mörg sporog ferðir. Mér færari menn hafa minnst Guömundar H. Odds- sonar, skipstjóra, að verðleik- um, og bæti ég ekki þar um. Frh.ábls.64
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.