Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1983, Side 21

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1983, Side 21
Ég var hvorki góður né... Ég hélt uppi félagsvist á vegum Öldunnar í mörg ár. Ég hef alltaf haft gaman af að spila og geri mikið af því enn. kallaö var, fiskiskipstjóri, sá sem stjórnaöi veiðunum. Fær- eyingar voru hér á sildveiðum umþettaleyti. — Og gekk þér vel, varstu fiskinn? — Ég hef nú aldrei verið neitt sérlega fiskinn, en þó ekki algjör klaufi, segir Guðjón og hlær hraustlega. Mér gekk alveg i meðallagi. Var hvorki góður né slæmur — allavega langt frá því að vera aflakóng- ur. Matsmaðurí30ár 1950 fór ég á námskeið i fiskimati og stundaði fiskimat upp frá því. Ég matti þæði salt- f isk og skreið, hingað og þang- að um landið fyrir rikismatið sem þá skaffaði mennina. i ferskfiskmatinu var ég svo i átta eða tiu ár. Það var stofnuð nefnd sem átti að starfa i tvö ár i þvi augnamiði að skipuleggja fiskmatið eitthvað betur. Hún starfaði í fimm eða sjö ár, þangað til hún skilaði áliti og það sem kom út úr þvi var að þessu var haldið áfram og lagðist alfariö undir rikismatið semsiðarvarðFramleiðslueft- irlit sjávarafurða. Á þetta hefur aldrei komist gott lag, það er óhætt að segja það. Enn er kvartað undan slæmum gæð- um á fiski og alls konar mistök hafaáttsérstað. — Finnst þér þurfa að skipuleggja Framleiðslueftir- litiðbetur? — Ja, ég vil nú sem minnst blanda mér í það. Það eru ekki allar syndir guði að kenna, eins og haft var eftir kerlingunni. Það er viða pottur brotinn. Ég hlustaði á umræðurnar um daginn í sjónvarþinu, út af fræðslumyndinni en mér fannst þeir aldrei koma að höfuðmeinsemdinni sem er, hvaö fiskurinn kemur eyði- lagöur upp i skipin. Hann kem- ur skemmdur úr netunum og stórum hölum á togurunum. Það er aldrei hægt að bæta f isk sem kemur skemmdur um borð. Þaðverðurallt aðfylgjast í höndum til að fá út góða vöru. Þegaraflinn minnkarog kostn- aðurinn er orðinn svona mikill er nauðsynlegt að fá út úr þvi það allra besta. Erfiðleikarnir viröast miklir núna, en eins og Vigdis Finnbogadóttir segir, verður fólk að vera bjartsýnt. Islendingar hafa oft lent í erfið- leikum áður og komist fram úr þeim. Mat er fyrst og f remst reynsla... Ég varð að hætta hjá Fersk- fiskmatinuþegarég varðs jöt- ugur, en maðurmávinnaviöað meta saltfisk og skreið, alveg fram i andlátið, afþvi rikið borg- ar það ekki, heldur framleið- andinn sem maður vinnur hjá. Ég hef verið viö kennslu i Fisk- vinnsluskólanum frá þvi hann var stofnaður, það segir eng- inn neitt við þvi. Það eru nám- skeið haust og vor. Svo hef ég kennt á ýmsum námskeiðum í saltfisk- og skreiðarmati. En nú er ég sem sagt hættur. Þeg- ar heilsan er góð, er ánægju- legt að koma innan um fólk. Ég hef haft gaman af að kenna, þetta er gott fólk sem ánægju- legt er að starfa með. Annars er mat lang mest reynsla. Mað- ur er alltaf að lenda í nýjum og nýjum aðstæðum sem maður verður að bregðast við. Það er takmarkað hægt að kenna svonalagað af bókum. Það tekur mörg ár að ná færni i þessu. — Finnst þér i minningunni, þið hafa framleitt betri saltfisk i saltfisktúrunum i gamla daga ennúsést? — Já, það er óhætt að full- yrða það. Fiskurinn kom þarna lifandi um borð og yfirleitt var gert að honum fljótlega, nema þegar var fyllt dekk, eins og kallað var. Þá tók aðgeröin oft langan tima og það siðasta sem gert var að, e.t.v. farið að skemmast. En ef á heildina er litið, var þessi fiskur jafn betri. T.d. eru töluverð brögð að því núna að þeir salti fisk sem leg- ið hefur i ís, þegar frystihúsin ráða ekki viö að koma þvi und- an. Slikur fiskur missir bragð við að liggja i is. Hann verður aldreieinsgóður. Hægt væri að spjalla við Guðjón Pétursson um allt milli himins og jarðar mun lengur en hér látum við staðar numið og óskum honum alls hins besta. ... mérfannstþeir aldrei koma aðhöf- uðmeinsemdinni, sem erhvaö fiskur- inn kemureyðilagð- uruppískipin... Þaðertakmarkað hægt að kenna fisk- matafbókum. Það tekurmörg árað ná færniíþessu... Víkingur 21

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.