Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1983, Page 52

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1983, Page 52
Unnið við slægingu um borð í Guðbjarti ÍS16. ... Þettaerheldur ekkihægteffisk- urinn erlátinn liggja óblóðgaö- ur, lengri eða skemmri tíma, á meðan áhöfnin er að sinna veiðar- færum svo að hægtséaðfá sem hæstaafla- tölu, en aflaverð- mætið látið liggja milli hluta... ... nauðsynlegter að vélbúnaðursé notaðurtil hins ýtrasta, þannig aðmestslítandi vinnunniséléttaf mönnunum og þeir geti beitt krö ftum sínum til að meðhöndla fiskinn á sem bestan hátt... hefur það komið skýrt í Ijós, að ekki virðist skipta höfuömáli hvort slægt er og blóðgað samtímis eða hvort það er gert i sitt hvoru lagi og fiskurinn látinn blæða á milli. Hins vegar skiptir máli, að fiskurinn fái tíma til að blæða og að blæöingin eigi sér stað í vatni, sem virðist vera skilyrði fyrir því að holdið verði alveg blóðlaust. Þvi næst þarf að þvo fiskinn með úðun eða í sjálfstæöu keri áður en hann fer i lestina. Hvað langan tíma fiskur- inn þarf að vera i blóðg- unarkerinu, er ekki alveg Ijóst ennþá, en svo virðist sem aö minnsta kosti 10—15 minútur séu nauðsynlegar, en ætlunin er aö rannsaka þessa hluti nánar, á þessu og næsta ári, ásamt fleiri atriðum er meðhöndlun- inni tengjast. Þessi með- höndlun, sem lýst er hér að framan, á við með- höndlun fisks sem er lif- andi blóðgaður. Það er ekki hægt að meðhöndla fisk sem er dauðblóðg- aður, þannig að hann verði eins góður og lif- andi blóðgaður fiskur, þess vegna verður að leggja höfuð áherslu á það, að aflinn sé blóðg- aður lifandi. Þetta er ekki hægt, ef fiskurinn er að mestu leyti dauður þegar hann kemur um borð í veiðiskipið. Þetta er heldur ekki hægt ef fisk- urinn er látinn liggja óblóðgaður lengri eða skemmri tíma, á meðan áhöfnin er að sinna veið- arfærum til að hægt sé að fá sem hæsta aflatölu, en aflaverðmætið látið liggja á milli hluta. Lokaorð Það er skoðun mín að þessi atriði, sem ég hef fjallað um hér að framan, eigi eftir að breytast til batnaðar, þvi við þurfum að auka verðmæti aflans á næstu árum, til að vega upp á móti minn- kandi bolfiskafla. Einnig er nauðsynlegt að vél- búnaóur sé notaður til hins ítrasta, þannig að mest slítandi vinnunni sé létt af mönnum og þeir geti beitt kröftum sínum til að meðhöndla fiskinn á sem bestan hátt. _ ___ _ annast . m SK/PADEiLD flutninga <A. SAMBANDS/NS fXrk SAMBANDSHÚSINU REYKJAVÍK SÍMI 28200

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.