Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1983, Side 69

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1983, Side 69
SAMSTARF GETUR GERT SMAÞJOÐ AÐ STÓRVELDI Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna er sölufélag 70 hraðfrystihúsa á íslandi. Sameinað afl hefur gert kleift að byggja upp iöngrein sem talin er einstök, ekki einungis hérlendis heldurá heimsmælikvarða. Framleiðni íslenska hraðfrystiiðnaðarins er mjög mikil og stööugt er unnið að því að auka hana. í öllum frystihúsum innan vébanda SH fer fram þrotlaust starf sérfræðinga, sem vinna að því að tryggja hámarksgæði framleiðsluvörunnar þannig að halda megi markaðsstöðu erlendis. íslenskur fiskur er seldur á hæsta verði á Bandaríkjamarkaði og víðar. Erlendir keppi- nautar taka íslendinga sér til fyrirmyndar og líkja eftir aðferðum og skipulagi við vöru- vöndun og eftirlit. Einungis með því að halda vöku sinni og vera alltaf á undan getur islenski hraðfrysti- iðnaðurinn tryggt stöðuna á markaðnum erlendis og um leið tryggt þjóðinni möguleika á góðri lífsafkomu í landinu. Virkt gæðaeftirlit í öllum frystihúsum landsins er hagsmunamál hvers einasta íslendings °g einungis með sameinuðu átaki getur þjóðin tryggt stöðu sína sem framleiðandi í þeirri samkeppni sem nú ríkir. Sölumiðstöð Hraðf ry sti húsanna 69

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.