Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1984, Page 27

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1984, Page 27
Einar Vilhjálmsson tollvörður I Reykjavík hefur verið Sjómanna- blaöinu Víkingur mikil uppspretta fróöleiks aö undanförnu. Hann er óþreytandi safnari þjóðlegs fróðleiks, hvort sem hann er að finna á rituðu máli eða myndum. Greinarnar eftir Olaus Magnus og greinin um Dýrafjörð eru frá honum komnar til blaösins og sömuleiðis greinar um kraftblökk, Wathne og Seyðisfjörö, sem áður hafa veriö birtar. Enn hefur blaðið mikiö efni frá Einari, sem væntanlega verð- ur á siðum næstu blaöa. Við þökkum Einari fyrir skemmtilegt efni. setjast niður og jafna sig. Allur likaminn var á stöðugri hreyf- ingu með bogin hné og sveifl- andi arma. Eftir langa baráttu komust þeir niður. Sumir tóku á sig langan krók til þess að hjálpa og leiðbeina smærri fé- lögum sínum yfir hættulega staði. Uppi á fjallinu fóru menn i snjókast, sem ég og minir samferðamenn tókum þátt i, þegar við komumst um gil yfir fjallið. Menn mega aldrei halda að þeir eldri af áhöfninni hafi talið sig of góða til þess að klifa fjallið, sem er, ásamt útreiðum og fuglaveiðum, besta afþreying sem völ er á i Dýrafirði. Á mánudaginn var farið frá skipinu i leiðangur inn i fjarð- arbotn, með alla kadettana, á 3 bátum og skoðaður fallegur foss. Ferðin var farin i fegursta veðri og nestis, sem tekið var með, neytt undir berum himni i landi, i sólskini og hita svo við gengum um á skyrtunum eins og á heitum sumardögum i skóginum okkar heima, þrátt fyrir aö snjórinn umhverfis minnti á annað en sjálenskan sumarskóg. í bakaleiðinni vor- um við minntir á hvar við vor- um staddir. Við þurftum að róa um eina og hálfa milu i hafgolu en golan var svo nöpur að hún smaug i gegnum frakka okkar og vatnsþéttar regnkápur. Þannig er hin dásamlega veðrátta á Dýrafirði! Næstu dagar liöu við æfingar um borð, veiðar, útreiðar og fleira, nytsamt eða til skemmtunar, fram til síðdegis á miðvikudag er við léttum akkerum og yfir- gáfum hið islenzka Eldorado eftir að hafa skipst á kveöjum við franska nágrannan okkar og héldum út á fiskimiðin. Um kvöldið vorum við komnir norður að heimskautsbaugn- um og þar sem þetta var um miöjan júní gekk sólin ekki undir um nóttina. Veðrið var fagurt og bjart. Allir hlökkuðu til að sjá miðnætursólina. En laust fyrir klukkan tiu kom grænlenska isþokan yfir okkur og huldi himin og haf. Von- brigðin voru mikil. Samt gengu menn um dekkið í von um betra veður, jafnvel skipherr- ann gekk ekki til svefns. Og við vorum heppnir i þolinmæði okkar. Klukkan rúmlega ellefu leið þokan inn yfir landið, sólin sýndi sig i hátign sinni og viö fylgdumst með henni til mið- nættis þegar hún sem rauður hnöttur skein yfir haf og himin, þar sem þreyttir fuglarnir hóp- uðu sig og vissu ekki hvort var dagur eða nótt eöa hvenær sá timi kæmi að þeir gætu tekið á sig náðir. Auðvitaö voru allir kadettarnir vaktir og kvaddir á dekk til þess að sjá miðnætur- sólina og tækin tekin fram, athugun gerð á hinum sjald- gæfa gesti, sem væri það allt annar en sá sem á daginn veitirokkuraf nægtum sinum. Herra ritstjóri! Þessi stutta lýsing á hluta leiðangurs kadettskipsins taldi ég að gæti vakið áhuga i það minnsta þeirra lesenda yöar, sem eiga ættingja eða vini um borð hjá okkur, og ég sendi yður hana hér meö til birtingar i hinu virta blaöi yðar. Þrátt fyrir að hún er rituð i nokkru flaustri. Á morgun yfirgefum við is- land og höldum áfram ferð okkar fyrir vestan írland, til Sherburg við Ermarsund. Skrúfukorvettan „Heimdal" í Reykjavik, hinn 16. júni, 1860. Yðareinlægur, Z. Úr lllustreret Tidende bls. 347 og 348. ... sólin sýndi sig i hátign sinni og viö fylgdumstmeö henni til miönættis, þegar hún sem rauöur hnöttur skein yfirhafog himin, þar sem þreyttir fuglarnir hópuöu sig og vissu ekki hvort vardagureöa nótt ■ ■ ■ Víkingur 27

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.