Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1984, Side 35
Franz, „svo viö þurfum ekki alltaf aö vera aö
þessu". „Áttu ekki vin í togaranum?“, sagði hinn
maöurinn. Hann var frekar lávaxinn og dökkur á
húöina og hafði hýran svip. „Hvaö heitiröu?",
spuröi Peter Klatt. Erik, sagöi lávaxni Þjóöverjinn
meö dökku húöina, Eirikur á íslensku. „Hvaö viltu
borga?“ spuröi Peter Klatt. „Þrjú hundruö krón-
ur“, sagöi Þjóöverjinn. „Hve mikiö er þaö?“,
spuröi Peter Klatt. „32 þýsk mörk“, sagöi þjóö-
verjinn, „en ég kann ekki á þau Austur-þýsku“.
„En ég held aö þau séu ekki mikils viröi hérna“,
bætti hann viö og brosti svolítiö.
Dyrnar opnuöust og þaö komu tvær stúlkur inn
og höföu ekki hneppt aö sér kápunum svo þær
flöxuöust. Þær sögöu „halló“ viö Þjóöverjann og
komu aö boröinu. „Hvernig gengur?“, spuröi
Þjóöverjinn. „Hefur Ovens komið?", sagöi önnur
stúlkan. „Nei“, sagöi Þjóöverjinn.
„Ætlaröu aö bjóöa okkur?“, spuröi stúlkan sem
haföi spurt eftir Ovens.
Þjóöverjinn fóraö skenkiboröinu og keypti tvær
Coka Cola. Hann hellti í glös og bauö svo úr flösk-
unni út i þaö. Önnur þeirra afþakkaöi en sú sem
haföi spurt eftir Ovens þáöi úr flöskunni. Hún var
feitlagin og meö Ijóst hár, sem leit út fyrir aö vera
litaö, og meö mikiö af málningu i andlitinu. Hún
brosti meö opnum munni eftir aö hafa sopiö á
glasinu og þaö skein í tennurnar meö gullinu. Hún
haföi stóran munn en varpen í andlitinu þrátt fyrir
iíkamsvöxtinn.
„Skál“, sagöi Þjóöverjinn og lyfti glasinu og
sneri sér aö Peter Klatt. „Skál fyrir nýjum félaga
og stúlkunum". Þaö leit út fyrir aö stúlkunni, sem
ekki smakkaöi á vininu fyndist sér vera ofaukiö
og hún lyfti glasinu bara til hálfs og var mjög al-
varleg.
„Prósit", sagöi Peter Klatt og skálaði glaö-
hlakkalega í romminu, blönduöu meö ölinu, meö
tveim prósentum.
Lágvaxni Þjóöverjinn meö dökku húöina hélt
áfram aö spurja Peter Klatt hvort hann ætti vin í
togaranum.
„Já, eitthvað", sagöi PeterKlatt, „en ég hefþaö
til aö afla mér peninga". „Ég er ekki aö biöja um
aö gefa mér, ég vil kaupa þaö“, sagöi lágvaxni
Þjóöverjinn og varauösjáanlega fulluráhuga.
Þaö komu tveir dátar aflágri gráöu niöur i kaffi-
stofuna og blístruöu. Ljósastaurinn á horninu
vaggaöi til og frá og ekki fór á milli mála aö þaö
var aö koma rok. Huröin skall aftur fyrir afli pump-
unnar efst viö dyrastafinn og dátarnir blístruöu
aftur. Dömurnar, sem sátu viö boröiö hjá Peter
Klatt og félögum, stóöu upp og bentu dátunum á
borö hinum megin innst viö skenkinn. Þær settust
Teikning:
Birgir Andrésson.
... þaö komu tvær
stúlkur inn og höföu
ekkihnepptaö sér
kápunum og þær
flöksuöust.
Víkingur 35