Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1984, Page 53
FÉLAGSMÁL
Kynning á starfi
undanþágunefndar
í samræmi við ákvæði ný-
samþykktra laga um atvinnu-
réttindi vélfræöinga, vélstjóra
og vélavarða nr. 77/1984 svo
og laga um atvinnuréttindi
skipstjórnarmanna nr.
81/1984 skipaði samgöngu-
ráðherra hinn 17. júlí s.l.
nefnd til að fjalla um undan-
þáguveitingar.
í nefndinni eru:
Magnús Jóhannesson,
formaður,
Halldór Ibsen, tilnefndur af
L.Í.Ú.,
Helgi Laxdal, tilnefndur af
F.F.S.Í.,
Jónas Haraldsson, tilnefndur
af L.Í.Ú., og
Viðir Sigurðsson, tilnefndur af
F.F.S.I..
Nefndin hefur haldið viku-
lega fundi þar sem umsóknir
um undanþágur hafa veriö
teknar fyrir og afgreiddar auk
þess, sem nefndin hefur unnið
að því að setja sér ákveðnar
vinnureglur og leiðbeiningar
sem nefndin mun styðjast við,
við veitingu undanþága, þann-
ig að sem best megi tryggja
framkvæmd ofangreindra laga
og undanþágum fækki frá því
sem verið hefur. Nefndinni er
þó Ijóst að til þess að svo megi
verða þurfi með einum eða
öðrum hætti að efla áhuga
þeirra sem stundað hafa sjó-
mennsku án tilskilinna rétt-
inda undanfarin ár. Nú þegar
er boðið upp á námskeið fyrir
vélstjórnarmenn er starfaö
hafa á undanþágu og sérstök
nefnd á vegum samgöngu-
ráðuneytisins vinnur nú að
endurskoðun fyrrnefndra at-
vinnuréttindalaga meö það
fyrir augum að skipstjórnar-
mönnum er starfað hafa á
undanþágu verði gefinn kost-
ur á styttra námi til að afla sér
takmarkaðra réttinda. Endan-
legar starfsreglur nefndarinn-
ar munu taka mið af niður-
stöðum þessa starfs.
Fyrst um sinn verða fundir
vikulega á miðvikudags-
morgnum kl. 8.00 og verða þá
teknar fyrir allar umsóknir er
borist hafa samgönguráðu-
neytinu, á sérstökum eyðu-
blöðum er þar fást, svo og öll-
um skráningarstjórum.
Nefndin mun ekki fjalla um
umsóknir sem ekki eru fylltar
út eins og eyðublaðið gerir ráð
fyrir. Ef um er aö ræða umsókn
um undanþágu fyrir mann er
ekki hefur áður starfað á und-
anþágu, fylgi umsókninni Ijós-
rit af prófvottorði og atvinnu-
skírteini viðkomandi.
Til að nefndin geti betur
metið það hvort skortur sé á
mönnum með fullnægjandi
réttindi eins og skilyrt er i lög-
unumfyrirveitingu undanþága
mun nefndin, þar til annað
verður ákveðiö, eigi fjalla um
umsóknir um undanþágur til
skipstjórnarmanna á skipum
yfir 80 brl. að stærð og vél-
stjóra/vélavarða á skipum
með aðalvél yfir 500 hö. nema
að auglýst hafi verið eftir
manni með full réttindi í fjöl-
miðli (útvarpi eða dagblaði).
Þessu til staðfestingar skal
fylgja umsókninni sönnun
þess að auglýst hafi verið, svo
sem skeyti vegna útvarps-
auglýsingar eða úrklippa úr
blaði.
Umsóknir um undanþágu
skal eigandi eða skipstjóri
skips undirrita. Þá má nefna
aö í samræmi við lögin um at-
vinnuréttindi skipstjórnar-
manna, vélavarða og vélstjóra
er stefnt að því að frá og með
næstu áramótum verði inn-
heimt sérstakt undanþágu-
gjald, sem undanþáguhafar
greiða og verður ákveðið
mánaðargjald og greiðist fyrir-
fram fyrir veittar undanþágur.
Gjald þetta mun renna í sjóð er
veita mun mönnum er starfað
hafa á undanþágu fjárhags-
lega aðstoð við að sækja sér
réttindi með námi. Nú er unnið
að þvi að undirbúa þessa
gjaldtöku.
Að endingu skal það ítrek-
að, að nauðsynlegt er, að um-
sóknareyðublaðið sé rétt og
fullnægjandi fyllt út. Sérstak-
lega er þýðingarmikið að ná-
kvæmar upplýsingar liggi fyrir
um fyrri undanþágur, hvenær
og á hvaða skipum. Mörg
dæmi eru þess, að umsóknum
hafi verið synjað vegna ófull-
nægjandi upplýsinga á um-
sókninni, sem ella hefðu verið
veittar, ef réttar og fullnægj-
andi upplýsingar hefðu komið
fram.
Upplýsingar um veittar und-
anþágur er hægt aö fá á skrif-
stofu F.F.S.Í., í Borgartúni 18,
alla virka daga, frá klukkan
átta til sextán, nema á föstu-
dögum, þá er opið til klukkan
fimmtán. Siminn er 29933.
Útbúum lytjakistur fyrir skip
og báta.
Eigum ávallt tilbúin lyfja-
skrín fyrir vinnustaði, bif-
reiðar og heimili.
INGÓLFS APÓTEK
Hafnarstræti 5. Sími 29300
Nefndinni erþó Ijóst
aö til þessa að svo
megi veröa, þurfi
meö einum eöa
öörum hætti aö efla
áhuga þeirra sem
stundaö hafa sjó-
mennsku án
tilskilinna réttinda
undanfarin ár.
Víkingur 53