Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1984, Síða 68

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1984, Síða 68
„Þetta kalla menn sílda Olaus Magnus var á dögum á sextándu öld í Svíþjóó og var, aö því er virtist, æöi langt á undan sinni samtið og fékk af þeim sökum aö þíta í ýms súr epli. Hann fæddist áriö 1490 í Linköping og dó í Róm 67 árum seinna. Á lífsleiðinni kom hann víöa viö. Hann varö sóknarprestur í Stokkhólmi og dómprófastur í Strángnás. Um 1520 var hann diplomat í þjónustu Gustavs Vasa, en komst í andstöðu við hann er konungur vildi koma á lútherskum siö í Svíþjóö. Hann varö landflótta og sem kirkjupólitískur flóttamaður flæktist hann um Evrópu í hálfan annan áratug. Þá, áriö 1537, settist hann að á Ítalíu og hóf þýöingarmikið og árangursríkt vísindastarf. Olaus Magnus kom á fót prentverki í Róm og gaf þar úr ýms merk rit. Merkasta rita hans er af mörgum talið vera sagnfræðiritiö Historia De Gentibus Septentrionalibus. — Saga noröurþjóöa. Hún kom fyrst út áriö 1555, en síöar kom hún út í ýmsum gerðum, bæöi auknum og styttum, og var þýdd á ítölsku, frönsku, hollensku, þýsku og ensku. Hún var gefin út í 20 útgáfum fyrstu 100 árin, en hún kom ekki út á sænsku fyrr en á þessari öld, þótt hún fjalli um líf sænsku þjóöarinnar. Saga noröurþjóöa er safn sérstakra rannsókna og lánsefni úr lærðum ritum mið- alda og renesanstímans. Þar er margháttaöan fróðleik aö finna, þ.á.m. um fiskveiðar og meöferö aflans. Þaö sem fer hér á eftir er þaðan komiö og viö munum síöar, eftir því sem tilefni gefst til, birta meira úr því ágæta riti. Þvisíldin kemur upp að ströndinni í þvílíku magni að net veiðimannanna rifna og efstungiðerí torfuna tvíeggjaðri stríðsöxi eða borðstúf, standa þau þar. 68 Víkingur Um síldina Við strönd Skáneyjar í suður Gautalandi, landshluta, sem samkvæmt gömlum rétti tilheyrir Gautaríki, er stunduð síldveiöi undir haustið. Sildin er söltuð í tunnur, fleiri en tölu verður á komið og útskipað í þvíliku magni að ætla má að fullnægi þörf mestallrar Evrópu fyrir saltaðan fisk. Til Skáneyjar safnast ýmsir kaupmenn frá öllum grannlöndunum og setjast þar að um tveggja mánaða skeið, á hinni löngu breiðu strönd, búa um sig i húsum eða tjöldum og kaupa síld fyrir peninga eða í vöruskiptum og flytja hana síðan burt á skipum sínum. Oft má kaupa hana fyrir vægt verö, vegna mikillarsíldargengdar, því síldln kemur upp að ströndinni í þvílíku magni aö net veiðimannanna rifna og ef stungið er í torfuna tvíeggjaðri striðsöxi eða boröstúf standa þau þar. Þessi mikla veiði færir hinni konunglegu skatt- stofu umtalsverðar tekjur, því nefndir kaupmenn eru háðir ströngum refsilögum og lögum sem segja að fyrst og fremst skuli þeir gjalda krúnunni til þess að vera frjálsir til heimfarar, með öðrum oróum, leyfi fógeta konungs til þess aó fara frjálsir ferða sinna og leyfi til endurkomu, og þá með rétt- um pappírum að geta sannað að á þessum stað, þar sem þeir stunduðu jafnt veiðar sem verzlun, hafi þeir ekki beitt neinn ofbeldi eða traðkað á rétti neins eða valdið neinu tjóni. Einnig veiðist síld tvær til þrjár rómverskar mílur frá landi, en hún bragðast verr og er því ekki skattlögð jafn hátt. Á sama tima er einnig mikil síldveiói við strendur Englands og Skotlands, sem stunduð er af fiski- mönnum frá Flandern og eftirþeim færsíldin nafn, þannig að þegar hún kemur til Rómar kallast hún flandrisk síld. Þótt þessi sildartegund sé löng og gróf er hún vegna hins magra hafbotns ekki eins góð og lystug, sem hin norræna síld er vegna hins góöa bragðs og selst allsstaðar fyrir hærra verð. Svo virðist sem síldin lifi ekki eingöngu á hinu hreina efni, þaó er vatninu, eins og Isodórus taldi áður, svo sem salamandran lifir eingöngu af eldi, heldur nærist af hinu mikla æti, sem hún finnur á hafsbotninum og klöppunum á þeim tíma árs sem hún kemurafhafi inn til strandarinnar.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.