Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1984, Side 70

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1984, Side 70
Jakob Jakobsson forstjóri Hafrannsóknar- stofnunar ... vekur þaö strax athygli aö þær byggjast á yngri árgöngum en þeim sem voru íHvalfiröi, þannig aö Hval- fjaröarsíldin hefur í raun og veru hvergi fundist eftir aö hún hvarf úrfiröinum. 70 Víkingur HVALFJARÐARSÍLDIN Eins og kunnugt er hófust reknetaveiðar í Faxaflóa rétt fyrir síðustu aldamót. í marga áratugi voru veiðar þessar einkum stundaðar til beitu- öflunar. Síldaraflinn sunnan- lands var því oftast aðeins lít- ið brot af því sem fékkst við Norðurland þar sem síldin óö á sumrin og unnt var að nota herpinætur til veiöanna. í desember árið 1946 varð þó vart allmikillar síldargengdar í Sundunum viö Reykjavík og einnig í Kollafirði. Veiðar hóf- ust þegar með hinum hefð- bundnu reknetum en einnig voru reyndar nýjar veiðiað- ferðir á þessum slóðum, þar með talin botnvarpa. Eftir áramótin eöa nánar tiltekið hinn 18. janúar 1947 hófust veiöar með herpinót. Þá kom brátt i Ijós að herpinætur þær sem notaðar voru viö Norður- land dugðu ekki vegna þess að sunnansíldin var smá- vaxnari og ánetjaöist í möskvum Norðurlandsnót- anna. Því varö að nota smá- riðnari nætur ef takast ætti að yeiða síld í hringnót hér sunnanlands. Þennan vetur áttu tiltölulega fá skip slíkar nætur. Um 42 skip munu þó hafa stundað herpinótaveið- ar á Sundunum og inní Kolla- firði þennan vetur. Hinn 1. nóvember 1947 varö vart mikillar sildar í Hvalfirði og meö því hófust vetrarsíldveiöarnar þar. Er skemmst frá því að segja að á tímabilinu frá nóvember- byrjun 1947 og fram í byrjun mars 1948 veiddust um 180 þúsund tonn af síld í Hval- firði. Þetta voru margfalt meiri veiðar en þekkst höfðu áður utan Norðurlands. Talið er aö allt aö 168 skip hafi tekið þátt í veiðunum að ein- hverju leyti. Á þeim tíma var talið að mikið síldarmagn væri í Hvalfiröi en aö jafnaði var það á mjög litlu svæöi. Var kvartað undan því að svo væri bátafjöldinn mikill að oft væri erfitt að athafna sig við veiðarnar sem fóru fram á mjög takmörkuöu svæöi hverju sinni eins og að fram- an getur. Sýni sem tekin voru af Hvalfjaröarsíldinni og aldurs- greind á fiskideild Atvinnu- deildar Háskólans veita góða vitneskju um aldursdreifingu síldarinnar. I sýnunum var síld allt frá þriggja til sextán ára aldurs en lang mest bar á síld meö fjórum vetrarhringj- um í hreistrinu. Átti þetta jafnt við um íslensku vorgot- síldina og íslensku sumar- gotsíldina og virtist aflinn skiptast nokkuð jafnt á milli þessara tveggja síldarstofna. Eins og fram kemur í grein þeirra Árna Zóphaníassonar og Sumarliða ísleifssonar sem birt er hér að framan kom síldin ekki aftur í Hval- fjörð og hefur ekki gert það að neinu ráði frá því hún hvarf úr firðinum í mars 1948. Þeg- ar reknetaveiöar hófust svo við Suð-vesturland 1949 og einkum eftir 1950, vekur það strax athygli aö þær byggjast á yngri árgöngum en þeim er voru í Hvalfirði, þannig að Hvalfjaröarsíldin hefur í raun og veru hvergi fundist eftir að hún hvarf úr firöinum. Hin síöari ár eftir að fariö var að fylgjast með síldar- göngum að vetrarlagi hefur það oft komiö í Ijós að meg- inþorri íslensku sumargot- síldarinnar hefur safnast á mjög lítið svæði um hávetur- inn. Á tímabilinu 1973 til 1979 hélt síldin sig oftast í einni torfu sem var allt að fjórtán sjómílur að lengd. Þessi vetrartorfa var ýmist milli Ingólfshöföa og Hroll- augseyjar vestur í Meðal- landsbug eða austur í Lóns- vik. Hin síöustu ár hefur sildin hins vegar safnast að vetrar- lagi í Austfirði og hefur þá komið fyrir að mælst hafa á einni fermílu í Berufirði allt aö 200 þúsund tonn af síld. Miöað viö þá reynslu sem fengist hefur af hegðun síld- arinnar aö vetrarlagi hin síö- ari ár svo og stóraukna þekkingu á stærð síldar- stofnanna við ísland virðist eðlilegt aö álykta að veturinn 1947 — 1948 hafi íslensku síldarstofnarnir valiö sér Hvalfjörð til vetursetu. Aflinn þessa vetrarmánuði var eins og áður sagði um 180 þús. tonn. Þar sem Hvalfjaröar- síldin (árgangurinn frá 1943 og eldri) kemur ekki að neinu ráði fram í síldveiðum aftur verður aö draga þá áiyktun að Hvalfjarðarveiðarnar hafi höggvið mjög stór skörö í síldarstofninn og því ekki viö því aö búast að slíkar veiöar gætu haldið áfram. Sem bet- ur fór átti Hvalfjarðarsíldin sína afkomendur og rekneta- veiðarnar sem stundaðar voru á tímabilinu 1959—1960 hér suðvestan- lands byggðust á þessum af- komendum Hvalfjaröarsíld- arinnar.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.