Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1984, Page 83

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1984, Page 83
FÉLAGSMÁL marka síefnu um heildarafl- ann og fiskveiðistjórnun til næstu 3—5 ára. Tölur um heildarþorskaflann til næsta árs 280—380 þúsund tonn og einhver lágmarks viðmiöun sem ekki væri farið niður fyrir. Siðan skiptust menn i hópa — annarsvegar þeir sem fjöll- uðu um veiðar bátaflotans og hinsvegar þeir sem fjölluðu um veiðar togaraflotans. Helgi Laxdal stjórnaði umræðum bátamanna og Guðjón A. Kristjánsson umræðum tog- aramanna eins og þingiö 1983 ákvað i þingskjali nr. 50. Kl. 19:30 var fundi frestað til næsta dags. Samþykkt aö forsetar settu fram valkosti um 3—4 leiðir til stjórnunar fiskveiðannna næsta dag, sem fundarmenn tækju af- stöðu til eða þlönduðu saman. Kl. 9:00 23. október mættu á fund nefndarinnar menn frá Hafrannsókn: Jakob Jakobsson, forstjóri. Ólafur K. Pálsson, fiskifræö- ingur. Guðni Þorsteinsson, fiski- fræðingur. Einar Jónsson, fiskifræðingur. Ævar Steinarsson, fiskifræð- ingur. Ræddu þeir um hvað betur mætti faramætti fara viö stofn- stærðarmælingar á þorski og kynntu hugmyndir um sam- eiginlegt átak Hafrannsóknar- stofnunar og fiskimanna við stofnstærðarmælingar sem þeir og fulltrúar á fiskveiöi- nefndarfundi töldu að gerð all- ar spár um stofnstærð þorsks á næstu árum miklu marktæk- ari og öruggari ef vel tækist til. Þessar hugmyndir og tilbrigði veiða og aflahorfur ásamt lið- inni fiskveiöifortið mikið og al- mennt rædd til hádegis. Kl. 13:00 var fundað um fiskveiðistefnu og valkosti. 3—4 leiðir i fiskveiðistjórnun næstu ár — togaraveiðar ann- arsvegar og veiðar bátaflot- ans hinsvegar. Málin mikiö rædd, farið yfir krossapróf Sjávarútvegsráðuneytis um kvótamál. Rætt um sölur á óveiddum fiski og þeim harðlega mótmælt. Lagaheim- ildir til ráðherra taldar tvi- mælalaust of rúmar og ef stjórna ætti almennum botn- fiskveiðum siðar með afla- kvótum i skip ætti að fækka tegundum i beinni kvótaskipt- ingu eins og frekast væri kost- ur. Þorskur og karfi á togarana en bara þorskur á báta. í öllum stjórnkerfum ætti að hafa eins mikið frjálsræði og framast væri unnt, útdeila heldur aðeins minna magni til að skapa frjálsræöi fyrir sem flesta. Hjálagt eru þeir valkostir sem settir voru fram og menn tóku afstöðu til. Endanlegar tillögur sem samþykktar voru eru merktar fiskveiðistefna 1985—1988. Fundir var slitið kl. 18:40 23. október og þakkaði forseti, Guðjón A. Kristjánsson, fund- armönnum komuna og óskaði þeim góðarar heimferöar. F.F.S.Í. Valmöguleikarfyrir Fiskveiöistefnu 1985-88 Fiskveiðistefna i almennum botnfisktegundum verði mörk- uð til næstu fjögurra ára. Stefnan verði mörkuð, með það að markmiði að veiðar á botnlægum tegundum nægi sjávarútvegsfólki til heilsárs- vinnu i greininni. Frjálsræði verði sem mest innan þess heildarafla sem veiddur veröur á hverju ári. Þorskaflanum veröi skipt upp milli báta og togara. Bátar veiði 47% og togarar 53% þorskaflans. Á næstur fjórum árum verði stefnt að 300—360 þúsund lesta þorskafla. Á árinu 1985 verði viðmiðunarafli af þorski um 300 þúsund tonn. Árin 1986,87 og 88 verði gengið út frá þvi að þorskaflinn verði að lágmarki 300 þúsund tonn. Rannsóknir á lífríki sjávar verði stórauknar og veiðiskip- in notuð i mun meira mæli en nú er til fiskirannsókna og stofnstærðarmælinga. Sam- starf fiskifræðinga og fiski- manna við fiskrannsóknir verði aukið og þekking þeirra sameiginlega lögð til grund- vallar við ákvörðun heildar- aflans. Nauðsynlegt fjármagn til hafrannsókna veröi tryggt og rannsóknarskipum leyft að veiða fyrir kostnaði. Þorskaf- linn verði aukinn næsta ár aö 360 þúsund tonnum, þegar stofnstærð hans leyfir. Veiðar togaraflotans. VAL 1. 1. Veiðiárið skal stytt með beinni fækkun sóknar- daga. A. Allar veiöar skulu stöðv- aðar í 25 daga á timabil- inu 10. desember til 20. janúar. Jól og áramót verði i þessu 25 daga timabili. Þau skip sem stundað hafa siglingar aö staðaldri um jól og ára- mót síðustu 5 árin fái aö uppfylla þessa skyldu á tímabilinu 1. desember til 30. janúar, enda verði þeim mönnum sem þess óska veitt jólafri. B. Þorskveiðar togara i júli og ágúst verði takmark- aðar við 20 sóknardaga hvern mánuð. Hvert skip láti af þorskveiðum Ræh um sölur á óveiddum fiski og þeim harölega mótmælt. Lagaheimildir til ráöherra taldar tvímælalaustof rúmarog efstjórna ætti almennum botnfiksveiöum síöarmeö aflakvótum á skip, ætti aö fækka tegundum... Víkingur 83

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.