Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1984, Page 88

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1984, Page 88
Guðlaugur Gíslason. Talsveröar umræöur uröu um íslensku skýrsluna, sérstaklega þann þátt sem sneri aö veitingu undanþága álslandi. Norðurlandaþing skipstjórnarmanna Hínn 6. og 7. september 1984 hélt Samband skip- stjórnarmanna á Norðurlönd- um (Nordisk Navigatörkon- gress) annan fund sinn. Fund- urinn var haldinn í húsakynn- um Stýrimannafélags Dan- merkur i Kaupmannahöfn. Af hálfu Stýrimannafélags Is- lands sóttu fundinn þeir Sigur- björn Guðmundsson varafor- maöurfélagsins og Guðlaugur Gíslason starfsmaðurþess. I upphafi fundarins urðu formannaskipti. Við for- mennskunni tók fram- kvæmdastjóri Skipstjórnar- mannafélags Finnlands, Mark- us Sinisalo. Fráfarandi for- maður, Alex Toft formaður Skipstjórnarfélags Danmerk- ur, verður nú varaformaöur. Að venju lögðu öll aöildar- félögin fram skýrslur sinar, sem voru kynntar og ræddar. í finnsku skýrslunni kom fram aö Finnar hafa gert samning um að skipstóri taki vakt á skipum upp að 1600 BRL. Er þá um að ræða að skipstórinn standi 2 tima á sólarhring. Öll Norðurlöndin að Islandi undanskildu hafa lög um mönnun skipa, sem taka til allra stétta. Þessi lög hafa tekið miklum breytingum nú á síðustu misserum. Allar breyt- ingar ganga í þá átt að fækka fólki. Mönnun er ekki eins og áður þundin alfarið við stærð skips eða vélar heldur er nú einnig miðað við gerð, húnað og verkefni. I Danmörku eru á næstunni væntanleg ný lög þar sem hverju skipi verður ákveðin áhöfn á þennan hátt, ef svo fersem horfir. Talsverðar umræður urðu um íslensku skýrsluna. Sér- staklega þann þátt sem sneri að veitingu undanþága á is- landi. Var gerð um þetta mál sérstök samþykkt sem er birt neðan við þessa grein. Eitt var það mál sem setti mjög svip sinn á fundinn, það sem Norðmenn kalla „Germa Lioneir málið. M.s. Germa Lionell var kyrrsett í Tripoli í Libiu frá 11. mai til 20. júli. Eins og flestum er efalaust kunnugt af fréttum var einn hásetinn kvalinn til dauða og fleiri af áhöfninni máttu þola pyntingar. Um þetta var gerð sérstök samþykkt á fundinum. I Noregi eru miklar umræöur um samvinnu eða jafnvel samruna Stýrimannafélagsins og Vélstjórafélagsins. Á aðal- fundi norska Stýrimannafé- lagsins kom fram tillaga um að sameina Stýrimannafélagið og Vélstjórafélagið. Nú er í undirbúningi skoðanakönnun meðal félaganna um þetta efni. Nokkrar umræður urðu á fundinum um samvinnu viö vélstjórana. Starfandi er nefnd sem skipuð er 2 fulltrú- um frá hvorum aðila. Þetta mál er mjög áhugavert og verður fróðlegt að vita hvað kemur út úr þessum viðræðum, sem vélstjórarnir „störtuðu" á sið- asta ári. (Þessu máli eru gerð skil i síðasta tölublaði Vik- ingsins af Helga Laxdal og visasttil þess.) Allar þjóðirnar (nema Is- land)hafa gert kröfu til stjórn- valda um aö sjómannalögum verði breytt i þá veru að sjó- menn geti krafist afskráning- ar, ef skip þeirra eiga að sigla inn á styrjaldarsvæði, án þess að tapa stöðu sinni hjá út- Gott hráefni þarf góöa meðferö EimSalt ifc Hvaleyrarbraut Hafnarfirði Simi 52166 88 Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.