Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1985, Side 63
Fyrsta tilraunin til sjódælingar
ístaöbundiö eldi á landi f Hveravík á Reykjanesi
Síðla vetrar í ár voru svo
keypt fyrstu 1000 seiðin, þá
30 grömm að þyngd. Uxu þau
og döfnuðu vel í þessari
þlöndu sjávar og heits vatns
og nú sjö mánuðum siðar
hafa þau stærstu náð að ti-
falda þyngd sina, eru orðin i
kringum 300 gr. að þyngd, og
þeir félagar reikna með þvi að
þau verði komin i sláturstærð
á næsta hausti.
Önnurtilraun
Samhliða þessari tilraun er
gerð önnur tilraun sem felst i
því að athuga hvort laxaseiði
af sömu stærð gæti lifað af
veturinn i sjókvi i Isafjarðar-
djúpi. Laxinum i sjókvinni er
gefiö sama fóður og þeim
sem er i kerjunum og bendir
allt til þess að hann dafni
jafnvel eða enn betur í sjón-
um en kerjunum. Um svipað
leyti og Sjómannablaðið Vík-
ingur var þarna á ferö gerði
hinsvegar slæmt veður með
þeim afleiðingum að sjókviin
skemmdist töluvert. Varð af
þeim sökum að taka þá 500
laxa, sem þar voru, inn i hús
og setja i kerin með hinum. Er
framhald þessarar tilraunar
nú óljós.
Pétur Bjarnason er per-
sónulega þeirra skoðunar að
fyrrgreinda tilraunin hafi þeg-
ar leitt i Ijós að það er hag-
stæðara að stunda sjóeldi i
kerjum á landi en kvium i sjó,
einkum þegar haft er i huga
að hægt er að fylgjast mun
betur með utanaökomandi
þáttum i kerjunum eins og til
dæmis mengun.
Tengsl stöðvarinnar
við skólann
Laxeldisstöðin i Hveravík
stendur við Héraðsskólann á
Reykjanesi og fljótt komu upp
hugmyndir um að tengja hana
viö skólastarfið að einhverju
leyti. Mikill áhugi er á námi i
fiskeldi um allt land um þess-
ar mundir og var þetta mál
strax reifað við Pétur Bjarna-
son.
„Þetta yrði nýjung i skóla-
starfinu hjá okkur sem ég
styð heilshugar og hef ég
rætt málið bæði við bæjar-
stjórnina á ísafirði og
menntamálaráðuneytið“
sagði Skarphéöinn Ólafsson
skólastjóri við héraðsskólann
á Reykjanesi i samtali við
Sjómannablaðið Viking.
„Bæjarstjórn ísafjarðar
styður okkur i þessu máli og
telur mjög áhugavert að kom-
ið verði á fót námi i fiskeldis-
fræðum við skólann en til aö
svo verði þurfum við að fá
hingað fullmenntaðan fiski-
fræðing sem hefði aðsetur við
skólann" sagöi Skarphéðinn
og benti hann Sjómannablað-
inu á tillögu sem bæjarstjórn
hefði samþykkt á einum
funda sinna s.l. vetur en hún
ersvo:
„Bæjarstjórn tekur undir
óskir Péturs Bjarnasonar og
Skarphéöins Ólafssonar um
aö fulimenntaöur fiskifræöing-
ur veröi búsettur í Reykjanesi
á vegum Veiöimáiastofnunar.
Bæjarstjórn fagnar fram-
komnum hugmyndum um fisk-
eldisnám viö skólann ÍReykja-
nesi, skorar bæjarstjórn ísa-
fjarðar á menntamálaráðu-
neytiö aö komiö veröi á fisk-
eldisnámi í Reykjanesskóla
sem fyrst. “
Hvað viöbrögð mennta-
málaráðuneytisins varðar
sagði Skarphéðinn að þau
hefðu verið jákvæð, ráðu-
neytið mælir með þessu námi
og það vantar aðeins herslu-
muninn á að skólinn fái fiski-
fræðing.
Aðspuröur um hvenær
þetta nám gæti hafist við
skólann sagði Skarphéðinn
að stefnt væri að þvi að 1.
áfangi stöðvarinnar, sex ker,
Fiskurinn ber sig eftir
ætinu, eins og sést á
myndinni til vinstri, en á
hægri myndinni eru for-
vígismennirnir, Hilmar,
Pétur og Skarphéöinn,
að skoöa árangur verka
sinna í eldisstöðinni.