Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1985, Blaðsíða 76
Stofnmæling botnfisk
Ólafur K.
Pálsson
fiskifræöingur.
Björn Æ.
Steinarsson
fiskifræðingur.
Einar
Jónsson
fiskifræöingur.
76 VÍKINGUR
Rannsóknir á botnlægum fiskum hafa verið stundaöar hér viö land frá því um síðustu
aldamót, en þá hóf Bjarni Sæmundsson rannsóknir á þessu sviöi. Fram yfir miöja öldina
beindust fiskirannsóknir einkum aö lifnaöarháttum fiska, svo sem vexti, kynþroska, fæöu
og göngum. Á síðustu áratugum hafa rannsóknir í síauknum mæli beinst að stærö fisk-
stofna og afrakstursgetu þeirra. Þessi þróun tengist mjög aukinni sókn í stofnana og vax-
andi þörf fyrir mat á stærö þeirra og afrakstri sem grundvelli fyrir stjórn veiöanna.
Stærö fiskstofna er metin meö ýmsum aöferöum. Svonefndri V.P.-greininga hefur veriö
mest beitt til aö meta stærö botnlægra stofna. Aðferöin byggist á því aö afli fiskiskipa er
greindur í aldursflokka og stærö stofnsins reiknuö út frá því, aö gefnum nokkrum öörum
forsendum. Bergmálsmæling er önnur aöferð og nýrri og er einkum beitt á uppsjávarfiska,
svo sem síld og loönu. Sú aðgerö hentar síöur til mælinga á botnlægum tegundum.
Þriöja aöferöin, svonefnd stofnmæling botnfiska, byggist á því, aö gögnum er safnað
með botnvörpu á útbreiöslusvæöi þess stofns eða þeirra stofna sem rannsaka á. Gagna-
söfnun er því óháö afla fiskiskipa. Helstu kostir þessarar aðferöar miöaö viö V.P.-greiningu
felast i nákvæmara mati á stærö stofns á liðandi stund og mun meiri upplýsingum um nýliö-
un uppvaxandi árganga.
Fyrsta verkefni af þessu tagi hér viö land hófst um miöjan 6. áratuginn. Þaö fólst í því aö
togaö var á um þaö bil 20 stöövum á grunnslóö umhverfis landið á hverjum sumri i um þaö
bil 10 ár. Gögn úr þessu verkefni voru þö ekki notuö til aö meta stærö fiskstofna, heldur
fremur í almennum líffræöilegum tilgangi.
Næsta verkefni beindist aö lifnaöarháttum þorskungviöis fyrir noröan land og austan og
hófst áriö 1976. í þessu verkefni var togaö á um þaö bil 80 stöövum á uppeldisslóö þorsks.
Helsta markmið þess var aö meta stærö uppvaxandi árganga þorsks.
Áriö 1981 hófst umfangsmesta stofnmælingarverkefni til þessa. Þaö beindist aö öllum
helstu botnlægum fiskum á íslandsmiöum og byggöist því á gagnasöfnun allt umhverfis
iandiö. Voru teknar um þaö bil 200 stöövar allt niöur á 500 metra dýpi. Helsta markmiö
þessa verkefnis var aö meta stærö mikilvægustu nytjastofna á íslandsmiöum.
Af framansögöu er Ijóst aö umfang stofnmælingaverkefna hefur aukist verulega á undan-
förnum árum. Jafnframt hafa skipulagning og aðferðir tekiö allmiklum framförum. Þrátt
fyrir þaö hafa niöurstööur ekki uppfyllt þær ksöfur um nákvæmni sem gera veröur, þegar
um er aö ræöa forsendur fyrir stjórn fiskveiöa.
Því verkefni, sem lýst er í þessari grein, „Stofnmæling botnfiska á íslandsmiöum 1985“,
var hleypt af stokkunum viö þessar aöstæöur. Helsta markmiö þess er aö meta stærö botn-
lægra fiskstofna, einkum þorsks, meö aukinni nákvæmni og treysta þar meö visindalegan
grundvöll fiskveiöistjórnar. Annaö mikilvægt markmiö er aö auka samskipti og samvinnu
viö sjómenn og aöra aöila i sjávarútvegi meö þátttöku í sameiginlegu rannsóknaverkefni.
Til þess aö ná þessum markmiöum var talið nauösynlegt aö safna gögnum á um þaö bil
600 stöövum allt umhverfis landið á tiltölulega skömmum tíma, eöa um þaö bil tveimur vik-
um. Hafrannsóknastofnunin ræöur ekki yfir nægilegum skipakosti til slíkrar gagnasöfnunar
á svo skömmum tíma. Af þeim sökum var leitaö samstarfs við útgeröarmenn, sem leigöu 5
togara til verkefnisins.
Skipulagning og
aðferðir
Enda þótt verkefnið beinist
aö öllum helstu botnlægum
fiskstofnum, er eingöngu tek-
iö tillit til þorskstofnsins viö
skipulagningu þess, svo sem
stofnstærðar, útbreiöslu og
vaxtar.
Taliö er best aö safna
gögnum i mars, og liggja til
þess eftirfarandi ástæöur:
Hrygningarstofn þorsksins er
helst aðgengilegur til mæl-
inga á hrygningartima, þaö er
i mars eöa april. I annan staö
hafa fyrri rannsóknir sýnt að
lóðréttar dægurgöngur
þorsks eru mun minni i mars
en á öðrum árstimum. Slikt
telst verulegur kostur þar
sem gögnum er safnað meö
botnvörpu, og þvi æskilegt aö
fiskur sé sem minnst laus frá
botni. Loks hafa fyrri stofn-
mælingaverkefni fariö fram i
marsmánuði og þvi æskilegt
aö svo verði einnig varóandi
þetta verkefni vegna saman-
burðarvið fyrri niöurstööur.
Rannsóknasvæöiö miöast
viö landgrunnið allt niöur á