Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1986, Page 40

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1986, Page 40
A skipi og bíl Gamalt skip i höfninni i Bergen. ... þaðerekki hægt að teikna myndaf þeim með orðum. Maður veröur einfaldlega að fara þangaö, ferðast um, skoða og tala viö fólkið — lifa. 40 VÍKINGUR Maður verður einfaldlega að fara þangað, ferðast um, skoða og tala við fólkið — lifa. Farið ekki til Færeyja i leit að sólskini og bliðviðri. Þið getið hitt á það, kannski dag- stund, jafnvel heilan dag, og ef þið eru einstaklega heppin er gott veður allan timann sem þið standið við. Liklegast er þó að þið fáið þoku og súld með töluveröum strekkingi og jafnvel rok og úrhellis rign- ingu. Öll þessi sýnishorn af veöri fengum við hjónin að reyna þá þrjá daga sem við stóðum þar við. En það var þess virði. Færeyingar segja sjálfir að það eina örugga við veðriö sé að það er óöruggt. En okkur Islendingum bregð- ur varla mikið við það. Farið heldur ekki til Fær- eyja i leit að háþróaðri hótel- menningu eða matargerðar- list á heimsvisu. Þar eru að visu til góðar hótelbyggingar, meira að segja eru þar á meðal mjög fallegar bygging- ar, innréttaðar eins og vera ber um slik hús, en náttúru- börnin sem byggja eyjarnar hafa ekki enn lært að skapa það andrúmsloft faglegrar og ópersónulegrar þjónustu, sem heimsborgirnar skarta. Og maturinn er bara góður, en ekki svoleiðis matur sem maður vill fá, þegar maður „fer út að borða". Þar er held- ur ekki leyfilegt að selja sterkari drykki en 2,25% áfengt öl. En ef til vill er þetta ein af sterkum hliðum Fær- eyja. Mér datt i hug til saman- burðar að fyrir fáum áratugum vissu auglýsingameistarar kvikmyndanna upp á hár hvað kvikmyndahúsagestir vildu fá að sjá, hvernig hin örugga formúla vinsældanna var. Allar kvikmyndir voru svo gerðar eftir sömu formúlunni og urðu því i stórum dráttum eins, og ekkert kom áhorf- endum lengur á óvart. Hótelin í Færeyjum koma manni á óvart. Farið til Færeyja til þess að sjá og reyna það sem þið get- iö hvergi annarsstaðar upplif- að. Það er heppilegt að stoppa i tvo eða þrjá daga i Færeyjum, þegar ferðast er með Norröna. Ef ferðinni er heitið frá Seyöisfirði til Berg- en, er beðið i þrjá daga i Fær- eyjum, meðan skipið fer til Danmerkur. Ef þið farið á hinn bóginn til Danmerkur beina leiö og akið suður um lönd, og farið aftur um borð i Dan- mörku á heimleið, biðið þið i Færeyjum i tvo daga, meðan skipið fer til Bergen. Ég ætla bara að vara ykkur við; farið ekki fyrst til Danmerkur og þaðan norður um Skandina- viu til Bergen og þar um borð á heimleið, þvi þá missið þið af Færeyjadvölinni. Okkarferð um Færeyjarvar ógleymanlegt ævintýri, frá uþphafi til enda. Seyðisfjörð- ur gaf okkur nagla i dekk að skilnaði, en við vissum ekki af þvi fyrr en kom að því að keyra i land i Þórshöfn. Þá var örlítið loft eftir i dekkinu, svo við létum okkur hafa það aö keyra i land, m.a. til að þurfa ekki að stoppa alla umferðina um borð, meðan við tindum allt út úr skottinu, skiptum um dekk og tindum allt inn i skottið aftur. Klukkan var hálf sjö að morgni þegar við opn- uðum skottið á bilastæði á hafnarbakkanum, til að byrja á andstyggðinni. En meira fengum við ekki að gera. Pinulitið óstöðugur Færey- ingur með ölflösku i hendi (guð má vita hvar hann fékk hana) birtist á sviðinu og sagði að hann skyldi sjá um þetta. Og innar tiðar kom annar pinulitið óstöðugur Færeyingur þeim fyrri til hjálpar. Þetta var fyrsta sýnishornið af hjálpsemi og elskulegheitum Færeyinga við okkur og við urðum aldrei vör við neitt annað frá þeim. Það var heldur ekkert annað hægt að segja um kaup- manninn i pinulitilli búðarholu með afgreiðsluborði og út- stillingum um loft og veggi

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.