Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1990, Page 20
UMFERDARSEKTIR í ÚTLÖNDUM
SEKTIR GETA
AUÐVELDLEGA VELT
FJÁRHAG ÞJÓÐARINNAR
Við Islendingar ferðumst
mikið á seinni árum ak-
andi um Evrópu. Það er
vissulega bæði
skemmtilegur og þægilegur
háttur á að ferðast, þar sem
ferðafólkið ræður að mestu
sjálft stefnu sinni, dagleið og
næturstað. Möguleikarnir á
ánægjulegu ferðalagi, akandi
um ókunn lönd, eru allt að því
ótæmandi, svo framarlega
sem ferðalangar eru samstiga,
bíllinn er góður og - ekki síst -
lög og reglur gestgjafanna eru
virt.
Þetta síðast nefnda er þýð-
ingarmikið, vegna þess að
verði ökumaður staðinn að um-
ferðarlagabrotum getur það
sett fjárhagsáætlun ferðarinnar
verulega úr skorðum, fyrir utan
tafir og leiðindi sem málið getur
haft í för með sér. Víðast hvar
úti í hinum stóra heimi er til lítils
að brosa blítt til lögreglunnar og
hafa yfir afsakanir einsog; Ég
vissi ekki um hraðamörkin - Ég
leit ekki á mælinn - eða; Þetta
var bara einn bjór.
Ef maður vill samt sem áður
taka áhættuna og setja sér sín-
ar eigin reglur er vissara að
hafa ávallt í vasanum sem
svarar 20 þúsund krónum í
gjaldeyri þess lands sem ekið
er um. Það er nefnilega regla í
langflestum löndum að inn-
heimta sektir fyrir umferðar-
lagabrot á staðnum og hafi
ferðamaðurinn ekki peninga
meðferðis, hættir hann á að
bíllinn verði kyrrsettur þangað
til hann hefur útvegað pening-
ana.
í sumum löndum læsir lög-
reglan klossum á framhjól bíls-
ins og tekur þá ekki af fyrr en
sektin er borguð. Það á ekki
síst við þegar lagt hefur verið
ólöglega.
Algengasta brotið er of hrað-
ur akstur og víðast hvar er sekt-
in fyrir það innan við kr.
20.000,oo. í Noregi kostar t.d.
20 VÍKINGUR