Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1990, Page 31

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1990, Page 31
VÍSNAÞÁTTUR BRYNHILDAR (Þessi þáttur er birtur hér í heilu lagi meö leyfi ritstjóra Víkur- blaösins). Hin aldni þulur Siguröur á Núpum sendi Vísnaþætti þaö sem hér fer á eftir: Sigurjón Friðjónsson orti kvæði þaö, sem fer hér á eftir. Kom þaö út i einhverri Ijóðabók eftir hann. Ég man ekki hvað hann nefndi kvæöiö, en þaö er skráð hér eins og þaö var num- ið af máli manna, en ekki lært af bók. Kvæöiö er svohljóðandi: Einu sinni sá ég mey, sídan henni gieymi ég ei. Að henni hneigðist, eins og gengur, ástar minnar Ijósastrengur. Og ég lagði hann yfir torg inn í meyjar Ijósu borg. Loks í hennar Ijósastæði leiddi ég mína kveikiþræði. Af alúð gerði ég öll mín skil, aðalperuna lagði ég til. Ljósin fullu á Ijósberanum léku nú á slökkvaranum. Allt kom mér að engu haldi, af því hann var á svanna valdi. Kvæði þett gaf Konráð Er- lendsson út í svokallaðri „al- þýöuútgáfu". Ekki var sú útgáfa prentuð, en barst munnlega milli manna og lærðu ýmsir. Sú útgáfa var svohljóðandi: Einu sinni sá ég mey, Síðan henni gleymi ég ei. Upp þá lyftist, eins og gengur, ástar minnar gildi strengur. Lagði ég minn lærabrokk leynt á meyjar rekkjustokk og hann fór í einni roku inn að hennar buxnaloku. Afalúð gerði ég öll mín skil—. Eðlishvötina lagði ég til— Skírlífið í skímunni fölu skrimti á einni brókartölu. Allt kom þó að engu haldi, af þvf hún var á svanna valdi. Þaö er mál manna, aö þegar Egill Jónasson haföi lesið kvæöi þetta, hafi hann ort eftir- farandi erindi: Sedda henti sorglegt slys, við svanna fyrstu kynni. Eyddi hann þá til ónýtis aðalperu sinni. Seddi greyið síðan má, svona öðrum þræði, stara votum augum á opin Ijósastæði. Ætli þaö þýði nokkuð aö hvetja hagyrðinga? Brynhildur Matseðillinn sem hér fer á eftir barst inn á borð frívaktarskrif- ara, eftir einhverjum torræðum leiðum. Enda þótt hann sé greinilega saminn fyrir íslenskt þorrabiót, hefur höfundur hans sýnilega verið undir miklum spánskum áhrifum, senni- lega afieiðing suðrænnar barmenningar. Við birtum hann hér til hjálpar þeim sem kunna að eiga eftir að halda þorrablót. Verði ykkur að góðu. ‘Bloto de ríorres íZnno iqcjo Carta de ‘Reltés ‘Prinw: Suro Bringukolli de Animale Secundo: Brenndo Hauses de Rolla ‘Tcrtio: Blod de Animales Tortures a Mjöle Qualro: Embaggo de Lundes Qfiinto: Hardo Fisces (Hango a Trano) Sexto: Confecto (Pungo la Mille Fotos de Hrutos) Sctto: Hvale (Multo Feito) Octo: Hacarles (Multo Fýlo) SYovo: Flesko Nikotino ‘D ecimo: Kássa de Rofos 'Lllefo: Kássa de Kartofles •Tello: Kaka Flata a Creme de Margarinos ‘Tretto: Braut Bruno (Mucho Vindo) 'Extra: Braut de Laufes (Afganges de Jólo) ‘Tinale: Brenndo Vino de Stutes Ca Cfief: Bona Apetito VÍKINGUR 31

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.