Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1990, Blaðsíða 51
starfandi en þaö heföi í för meö
sér óeðlilega þunga ræsingu.
Mynd nr. 2 sýnir nánar hvernig
þessu er komið fyrir.
Auk þessa búnaöar þarf aö
koma fyrir olíujöfnunarröri sem
lagt er algerlega lárétt og tengir
saman alla olíustútana á þjöpp-
unum. Gildleiki rörsins er oft
hafður í kringum 16 -19 mm.
Þessari tengingu má einnig sjá
á mynd nr. 2.
í hinu sameiginlega þrýstiröri
fyrir framan eimsvalann þarf að
staðsetja smurolíuskilju sem
skilar olíunni inn á sogrörið fyrir
framan greinirör og er það
mjög mikilvægt að olían komi
inn þar en ekki beint inn á safn-
greinina.
Til að auðvelda útskipti á
þjöppum er æskilegt að hafa
loka á þrýstihlið hennar og
soghlið og einnig væri æskilegt
að hafa t.d. kúluloka á olíujöfn-
unarrörinu við hverja þjöppu. í
rekstri væri þó athugandi að
læsa þessum lokum í opinni
stöðu. Með þessu fyrirkomu-
lagi væri mögulegt að skipta
um þjöppu án þess að stöðva
kerfið eða lofttæma það.
Algengast er að sambyggð
þjappa sé með beinni ræsingu.
Til að minnka kraftaáhrif á vél-
rænan búnað þjöppunnar er
hún hengd upp í gorma í hús-
inu, eins og áður var útskýrt, og
einnig þarf hún að vera tengd
botnplötunni gengum gúmmí-
púða. Af þessum ástæðum
þurfa allar röratengingar við
þjöppurnar að fara um sveigj-
anlega barka. Sé hinsvegar
notast við mótstöðuræsingu
minnkar straumtoppurinn og
ræsing verður mun mýkri og þá
óþarft að notast við gúmmí-
púða undir þjöppurnar og
barka.
Notkun olíu-
miðlunarkerfis
Mynd nr. 4 sýnir hvernig ol-
nyjUNGAR
TÆKNI
Sirctf/n/ frá yW/iisii/// ■
Ol/c//?aeJcxr
Ojetjm/r.
-í>
\JL >
i . 77 ; r thstit
lí .
-10]
\
ygu^
O//'í/Z/oec/ars // /lcu'.
ím
OJ/u/
shihot
Tenging þjappanna við sog-
þrýstigrein skal framkvæmd
eins og áður var lýst en í stað-
inn fyrir olíujöfnunarrörið er
sérhver þjappa útbúin með ol-
íuhæðarstilli sem sér um að áv-
allt sé rétt smurolíuhæð í sér-
hverri þjöppu.
Olíuhæðarstillarnir fá olíu frá
olíuhæðargeymi en hann tekur
við olíu frá smurolíuskilju eins
og sést á mynd nr. 4 með
þessu fyrirkomulagi er ekki
nauðsynlegt að þjöppurnar séu
staðsettar í sama lárétta plani
en hinsvegar þarf olíuhæðar-
geymirinn aö vera staðsettur
hærra en þjöppurnar.
Algengt er að þeir olíuhæð-
arstillar sem notaðir eru þurfi
lágmarks mismunaþrýsting 0,4
bör en hann má ekki fara yfir 2
bör. Til að tryggja þetta er kom-
ið fyrir þrýstistilli sem hleypir
gasi úr toppi olíugeymisins yfir í
sogleiðsluna og stillir mismun-
arþrýstinginn á 0,5 bar þ.e. að
þrýstingurinn sé 0,5 bar hærri
en þrýstingurinn í soglögn. Mik-
ilvægt er að koma fyrir fínsíu í
olíulögnina fyrir framan olíu-
hæðarstillinn þannig að trygg-
ara sé að nálarlokinn vinni rétt
og æskilegt er að lokar séu sitt
hvoru megin við stilli og síu til
að auðvelda viðhald.
Lokaorð
Aðferðin sem byggir á olíu-
jöfnunarröri er einfaldari og
ódýrari og ætti því að velja
hana að öllu jöfnu. Um borð í
skipi er hinsvegar ekki um það
að ræða að þjöppurnar geti
starfað í láréttu plani og þarf því
í því tilviki að velja olíumiðlunar-
aðferðina.
Það verður æ algengara að
svona kerfum sé stýrt með
tölvuforritum og skapast þá
ýmsir möguleikar og má hér
nefna eftirfarandi atriði: Taln-
ing á keyrslutímum fyrir ein-
stakar þjöppur, sjálfvirk útjöfn-
un á keyrslutímum milli þjappa,
biðtími milli ræsinga á þjöppum
til að jafna út ræsiálag og einn-
ig má nefna stuttar keyrslulotur
í löngum ganghléum til að
hindra þéttingu á kælimiðli í út-
gangi þjöppunnar en með því
móti má sleppa einstefnulok-
unum sem fyrr var á minnst.
Þó að í þessari grein hafi
fyrst og fremst verið fjallað um
samkeyrlsu á litlum sambyggð-
um þjöppum gilda þessar að-
ferðir alveg eins fyrir hálfsam-
byggðar eða sérbyggðar
þjöppur.
Við gerð þessarar greinar
var meðal annars stuðst við
grein eftir Danann P. Sminge
sem birtist í tímaritinu „Scanref.
Mynd nr 4
VÍKINGUR 51