Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1990, Page 11

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1990, Page 11
LANDSMANNA Spurningar til stjórnar Lífeyrissjóðs sjómanna Ýmis fleiri atriði drap Bjarni Sveinsson á varðandi lífeyris- sjóðsmálin. Hér á eftir eru helstu atriðin dregin saman í nokkrar spurningar og voru þær lagðar fyrir Guðmund Ás- geirsson, sem nú gegnir for- mennsku í Lífeyrissjóði sjó- manna: 1. Samkvæmt trygginga- fræðilegri úttekt á sjóðnum frá því í árslok 1986 á sjóður- inn aðeins fyrir um 56% skuldbindinga sinna miðað við bestu ávöxtun sjóðsins. Hefur þetta breyst? 2. Sjóðurinn hefur vaxið gífurlega á síðustu árum og er hrein eign hans fleiri milljarðar króna. Hins vegar eru greiðslur úr sjóðnum litl- ar. Hvernig stendur á að staða hans er jafn slæm og talið er? 3. Hvað þurfa menn að greiða mikið til sjóðsins svo þeir megi búast við að fá skammlausan lífeyri þegar þar að kemur? Hvaða líkur eru á að sjóðfélagar njóti líf- eyris í 10 ár? 4. Hvenær kemurað því að sjóðurinn þarf að greiða jafn mikið í bætur og hann fær í tekjur? 5. Vill sjóðurinn gangast fyrir því, að gerð verði könn- un á því hver sé raunveruleg- ur hagur að aðild að sjóðn- um með tilliti til annarra möguleika á að tryggja sér lífeyri? 6. Hversu háar upphæðir eru það sem „deyja“ inni í sjóðnum vegna þess að menn falla frá eftir að hafa greitt lengi í sjóðinn en ekki eru skilyrði til að greiða öðr- um af þeirra réttindum? 7. Ef svo reynist að sjóður- inn virðist ófær um að standa við skuldbindingar sínar miðað við óbreytt ástand, til hvaða ráða á þá að grípa? 15 MÁNAÐA VERÐTRY GGD VÖXTUM L Landsbanki íslands

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.