Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1990, Blaðsíða 13
gilda um það frá hvaða aldri
sjóðfélagar geta notið ellilífeyr-
is o.s.frv. Að öllu jöfnu geta
menn samkvæmt núgildandi
lögum og reglum ekki ráðið því
sjálfir hvert iðgjöld þeirra eru
greidd. Samkvæmt lögum um
Lífeyrissjóð sjómanna hafa sjó-
menn mjög litla möguleika á að
hafa áhrif á það í hvaða lífeyris-
sjóð þeir greiða.
6. Þeir sem notið geta rétt-
inda í Lífeyrissjóði sjómanna
eru sjóðfélagar, makar þeirra
og börn undir 18 ára aldri. í sér-
stökum tilvikum greiðast bætur
til sambýlisfólks, einstæðra
mæðra og ógiftra systra sjóðfé-
laga. Ekki er til svo vitað sé
nein úttekt á því hversu stór
hluti af greiddum iðgjöldum
sjóðfélaga í lífeyrissjóðum
kemur aldrei til útborgunar í
formi lífeyris. Þó er óhætt að
fullyröa, að langflestir þeirra
sem greitt hafa lengi til sjóðsins
lifa það að komast á ellilífeyri
eða að greiddar eru bætur út á
réttindi þeirra til maka og/eða
barna, þannig að það er mjög
lítill hluti iðgjalda sem „deyr“
inni í sjóðnum þannig að eng-
inn njóti réttindanna. Þá er rétt
að geta þess, að við ákvörðun
á fjárhæð iðgjalda er tekið tillit
til þess að alltaf eru einhverjir
sem greiða iðgjöld til sjóðsins
án þess að nokkur komi til með
að njóta réttinda út á þau ið-
gjöld. Þá er einnig rétt að fram
komi, að margir sjóðfélagar fá
greiddar bætur sem nema
margföldum iðgjaldagreiðslum
þeirra til sjóðsins. Er það sér-
staklega þegar um örorku- og
makalífeyrisgreiðslur er að
ræða, þarsem reiknuð eru rétt-
indi fram í tímann til viðbótar
áunnum réttindum.
7. Samkvæmt trygginga-
fræðilegri úttekt á Lífeyrissjóði
sjómanna sem miðast við
stöðu í árslok I986 er sjóðurinn
ófær um að standa við skuldb-
indingar sínar miðað við
BÆTIIM
ANDRÚMSLOFTIÐ
ÁVINNUSTAÐNUM
Hreint og frískt loft er undirstaða vellíðunar
starfsfólks á hinum ólíklegustu vinnustöðum.
Hvort sem um er að ræða dekkjaverkstæði eða
skrifstofu.
Blikksmiðjan Vík annast smíði, viðhald, viðbæt-
ur og eftirlit á loftræsti- og lofthitakerfum. Fag-
menn tryggja að kerfin séu í samræmi við
notkun.
Onnumst einnig alla aimenna blikksmíði.
BLIKKSMIÐJAN
ViK
Smiðjuvegi 1 8c, 200 Kópavogi
Sími 71580, Fax 72588