Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1990, Blaðsíða 40
SAMLIKIR STYRIMANNA
Benedikt H.
Alfonsson
yfirkennari
Samlíkjar eða hermar eru tæki sem líkja eftir ýmis-
skonar ástandi eða aðstæðum. Tæki af þessu tagi
hafa rutt sér mjög til rúms á síðustu árum. Þau voru í
fyrstu notuð í stýrimannaskólum víða um heim til að
líkja eftir siglingu þar sem siglingatækið var radar.
Þetta var kennsla í radarsiglingu. Síðan hefur orðið
mikil þróun og nú er hægt að hafa öll möguleg sigl-
ingatæki í brúnni og búa til ýmisskonar erfiðar að-
stæður til að æfa nemendur fyrir skipstjórnarstarf ið.
Stýrimannaskólinn í Reykjavík
fékk nú í vetur samlíki af nýj-
ustu gerð sem framleiddur er af
norska fyrirtækinu Norcontrol,
en það fyrirtæki er stærsti fram-
leiðandi á þessu sviði i heimin-
um. Samltkir Stýrimannaskól-
ans í Reykjavík er tölvustýrð
tækjasamstæða þar sem
kennari hefur stjórnborð til að
stýra samlíkinum, en þrem öðr-
um stjórnborðum fyrir nemend-
ur er komið fyrir í jafnmörgum
klefum sem líkjast mjög brú í
skipi. Stjórnborð nemenda er
eins og stjórnborð í brúnni á
venjulegu flutningaskipi. Þar er
mælir sem sýnir snúnings-
hraða vélar, mælir sem sýnir
snúningshraða skips, vind-
mælir sem sýnir stefnu vinds
og hraða, stýrisvísir, og að
sjálfsögðu stýri og olíugjöf fyrir
vél. Siglingatæki eru: Loran,
gervitungl, radíómiðunarstöð,
vegmælir, dýptarmælir, komp-
ás og sjálfstýring. Skip þau
Á myndinni sést eitt af
þremur stjórnborðum
nemenda siglingasam-
líkisins. Armurinn í
miðju borðinu er fyrir
stjórntök vélar. Einn
nemendanna, sem að
þessu sinni voru hafn-
sögumenn og stjórn-
endur hafnsögubáta
heldur um stýrispinna.
Kennarinn er að stilla
vegmæiinn. Eins og sjá
má líkist umhverfið brú
á flutningaskipi.
40 VÍKINGUR