Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1990, Síða 69

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1990, Síða 69
Já, en hvaða fólk varst þú að heimsækja í gærkvöldi. Þú varst ekki burðugurþegar við hjón- in fundum þig í lyftunni, þar sem þú lást I hnipri í einu horninu. Mér tókst að drösla þér hingað inn í óþökk konunnar. Svo heimtaðir þú ást, mikla ást, þegar ég lagði þig til hér I stofunni, og steinsofn- aðir svo. En stúlkan mín. Hvar er hún? Stúlka, hvaða stúlka? Ertu eitthvað lasinn, gamli vin? Erum við ekki á elleftu hæð? Mig rámaði í þessa tölu. Nei, nei, þú ert á níundu hæð hjá honum Jóni málara, gamla vinnufélaga þínum. Hvar varstu annars að skemmta þér í gærkvöldi? Jón iðaði í skinninu af forvitni. Æ, leyfðu mér fyrst að ná áttum. Áttu ekki eitt- hvað að drekka? Vatn, kalt kaffi, kók. Bara eitt- hvað fljótandi. Hvarersalernið? Hann vísaðimér þangað. Hvar er nú hamingjan sem ég var að höndla ígær? Mér varð litið íspegilinn. Þvílík sjón. Hvað gat ég hafa drukkið sem gerði mér þennan óleik. Hérna, gjörðu svo vel. Skelltu þessu í þig, það hressir. Komdu svo inn ístofu og segðu méralltaf létta. Konan ætlar að taka til morgunverð. Jón lagði fullt glas af blöndu á spegilhilluna. Eftir að hafa þvegið mér, snyrt og greitt, staul- aðist ég með hálft glasið inn í stofuna. Þú ert nú meiri karlinn, maður hefur hvorki séð né heyrt af þér í mörg herrans ár. Hvar hefurðu alið manninn ? Það sagði mér einhver að þú værir kominn á sjóinn. Já, það er rétt. Ég er fastráðinn á loðnuskipi. Fæ ég aftur íglasið? Þetta er afbragðs mjöður. Velkomið. Þó það væri nú. Hann tók við glasinu og hvarf úr stofunni. Hvað er ég að hugsa ? Hvar er næturdrottning- in mín, fegurðardísin, himnasendingin sem fang mig í spegli og bauð mér hingað í þetta hús? Þetta er ekki einleikið. Á ég að spyrja Jón um hana? Nei, kannski var þetta allt bara draumur. Gerðu svo vel. Hann réttir mér glasið. Morgun- verður framreiddur eftir tíu mínútur. Þakka þér fyrir Jón. Þú ert betri en enginn. Ég sé að myndin sem ég gafþér forðum erí smekk- legum ramma. Þú kannt gott að meta Jón. Já, mér þykir alltaf jafn vænt um þessa mynd. Hún er meistaraverk. Manstu hvað þú skírðir hana, manstu hvað hún heitir? Engill, erþað ekki? Jú, alveg rétt. Engill í Himinhæðum. Já, það er skemmtileg tilviljun. Held ég verði líka að fá mér í glas, þótt það sé nokkuð snemmt. Veik blanda getur varla skaðað. Mig langar að skála við þig. Skála fyrir gömlum kynnum. Þú ert allur að hressast sé ég. Svo er þér fyrir að þakka Jón minn. Viltu ekki einn til. Jú, þakka þér. Hann hverfur fram í íbúðina. Hvað er ég að dóla hér? Sit hér og ræði um daginn og veginn. Búinn að gleyma ástinni minni frá því í gær. Ég heiti Jófríður. Gerðu svo vel að þiggja þetta lítilræði sem fram er borið. Hún leggur frá sér bakkann. Jón segir mér að þið séuð gamlir vinnu- félagar. Mikið rétt. Hún gengur til mín, snotur, lágvaxin, smáeyg kona í síðum náttkjól og slopp. Komdu sæl. Ég gat með naumindum staðið á fætur. Mjóhryggurinn. Sæll, Jón segir að þú hafir fitnað frá því forðum daga. Já, ég hefekki komið nálægthúsamálun ímörg ár. Hérna hefur þú þriðja glasið, og segðu svo að þér sé ekki fagnað. Jón slöngvar til mín glasinu. Hann málaði myndina af Englinum þegar við vor- um ungir, og gaf mér. Jahá. Konan líður þögul út úr stofunni. Eigum við ekki að næra okkur, meðan brauðið er heitt. Ég ætla að skenkja í bollana. Gerðu svo vel, ostur og marmelaði. Jón, eigið þið engin börn? Nei, því miður. Konan hefur tvívegis misst fóst- ur, svo það var ekki um annað að gera en af- tengja. Æ-æ, það var leitt. Fyrirgefðu. Ekkert að fyrirgefa. En hvaða hljóð voru þetta? Ég þekkti röddina. Hljóðin komu inn um svaladyrnar. Eins og þau kæmu ofanfrá. Neyðaróp konu. Ég fékk sting í hjartað. Þetta var hennar rödd. Það var ekki um að villast. Ég spratt á fætur, svipti upp svaladyr- unum og út. Skimaði upp eftirsvölunum fyrirofan. í því fékk ég höggið. Mér fannst ég líða um í tómarúmi. Eins og geimfari í þyngdarleysi. Hvað var upp, hvað niður? Ekki veit ég hvað tómleikinn varði lengi, en mig langaði mest til að selja upp þegar ég rankaði við mér á leið út úr lyftunni, liggjandi á börum sem tveir fílefldir sjúkraliðar báru á milli sín. í Himinhæðum 10 voru allirkomnirá stjá. Mikið pískrað. Þegar mér var svo rennt inn í sjúkrabíl- inn, og Jón settist hjá mér, heyrði ég einhvern segja: Hann hrinti henni framaf. Hún sagðist elska einhvern kall. Vælið í sírenunni nísti mig inn að hjarta. Jón mælti einhver huggunarorð. Ég óskaði þess heitt að fá að sofna svefninum langa. VÍKINGUR 69
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.