Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1990, Side 78
ats\á
MIKILVÆGAR MARKAÐSFRETTIR
VIKINGUR
KVÓTINN AFGREIDDUR Eftir mikiö japl, jaml og
fuður tóku alþingismenn á sig rögg og afgreiddu
ný lög um fiskveiðistjórnun á síðasta starfsdegi
Alþingis á þessu vori. Eflaust sýnist hverjum sitt
um niðurstöðurnar en þau lög sem nú voru sett
eiga að gilda í þrjú ár. Nú tekur því væntanlega við
umræða um framtíðarskipan þessara mála og
vonandi tekst að Ijúka henni áður en lögin falla úr
gildi árið 1993. Það er dæmigert fyrir íslenska
þjóðmálaumræðu að síðustu vikurnar og dagana
sem Alþingi var að störfum var loksins hreyft við
ýmsum grundvallarþáttum fiskveiðistjórnunar.
Þá var hins vegar allt komið í eindaga og allt of
seint að gera róttækar breytingar á frumvarpinu.
Það má því e.t.v. segja að það hafi verið til góðs
að gildistími laganna var takmarkaður við þrjú ár
en upphaflega áttu lögin að gilda um alla framtíð.
Á siðustu vikum og mánuðum hafa æ fleiri tekið
undir hugmyndir um einhvers konar veiðigjald,
auðlindaskatt, kvótaleigu eða hvað það er nú
kallað. Þeir voru fjölmargir sem fundu að því með-
an lögin voru til umræðu að útgerðarmönnum
væri úthlutað veiðirétti ókeypis. Þær raddir hafa
orðið æ háværari sem vilja að þeir borgi í sameig-
inlega sjóði landsmanna fyrir að fá að nýta þessa
auðlind sem er sameign þjóðarinnar eins og segir
í fyrstu grein laganna. Þeir sem aðhyllast kvóta-
leigu segja sem svo að það sé mun viturlegra að
þjóöin taki til sín arðinn af fiskveiðunum í formi
kvótaleigu en með því að hringla stöðugt með
gengisskráninguna. Með kvótaleigu og réttri
gengisskráningu sé mun auðveldara að gera
raunhæfar áætlanir um þróun sjávarútvegs og
rekstur einstakra fyrirtækja auk þess sem það
veitir möguleika á að stýra fjármagninu sem
greinin skapar í þann farveg sem best nýtist þjóð-
inni, td. með því að efla byggð í dreifbýli.
Lög um fiskveiðistjórnun hafa að sjálfsögðu
þann tilgang helstan að stuðla að skynsamlegri
nýtingu fiskistofnanna með sem hagkvæmustum
hætti. Það er alkunna að fiskiskipaflotinn er of
stór og fróðir menn telja að hann þurfi að skera
niður um 20-30% hvað afkastagetu snertir, og
það sem fyrst. Við afgreiðslu laganna um Hag-
ræðingarsjóð sem áður hét Úreldingarsjóður var
stigið fyrsta skrefið til þess að auðvelda þennan
niðurskurð. Það er full ástæða fyrir sjómenn að
fylgjast náið með því hvernig að þessum niður-
skurði verður staðið svo hann bitni ekki eingöngu
á þeim.
ÞORSKUR Verulega dró úr framboði á íslensk-
um þorski í breskum höfnum í aprílmánuði en þá
var landað 2.114 tonnum úr skipum og gámum
samanborið við 3.302 tonn í marsmánuði. Verðið
varö líka hærra, en að meðaltali fengust 1,28
pund fyrir kílóið af þorski. Það samsvarar 127,09
krónum en meðalverðið var um 120 krónur í mars.
Á mörkuðunum þremur hér á suðvesturhorninu
komu 3.460 tonn af þorski til sölu í apríl. Það er
töluvert minna en í mars en verðið er svo til það
sama og þá. Fyrir hvert kíló af þorski fengust að
meðaltali 75,77 kr. og var ekki merkjanlegur mun-
ur á milli markaðanna þriggja.
ÝSA Að því hlaut að koma að verðið á ýsunni
mjakaðist niður á við á bresku mörkuðunum. Það
hefur margsinnis sprengt alla skala að undan-
förnu. Það á áreiðanlega sinn þátt í verðlækkun-
inni að framboðið á ýsu í breskum höfnum var
tvöfalt meira í apríl en í mars og einnig töluvert
meira en í febrúar. Alls var landað 1.912 tonnum
af ýsu í Bretlandi og fengust fyrir kílóið 1,44 pund
að meðaltali en þaö samsvarar 143,52 íslenskum
krónum. Þetta er 20 krónum lægra verð en fékkst
í mars en nokkru hærra en meðalverðiö í febrúar
svo að þetta er allt í lagi. Sömu sögu er að segja af
íslensku mörkuðunum, þar jókst framboöið úr
808 tonnum í 1.186 tonn og verðið lækkaði um
rúmar 20 krónur, fór úr 110 krónum í 89,85 kr. fyrir
kílóið að meðaltali. Hæsta meðalverðið fékkst í
Hafnarfirði, 96,46 kr. fyrir kílóið, en á hinum mörk-
uðunum var það rétt undir 90 krónum.
KARFI í aprílmánuði var landað 2.682 tonnum af
karfa í vesturþýskum höfnum og var framboðið
nokkru meira en í mars. Verðið lækkaði líka tölu-
vert eða úr 3,02 mörkum fyrir kílóið að meðaltali í
2,74 mörk. I íslenskum krónum lækkaði verðið úr
108,56 í 98,79. Sömu sögu er að segja af íslensku
mörkuðunum. Þangað bárust 743 tonn af karfa í
aprílmánuði og fékkst fyrir kílóið að meðaltali
35,71 króna sem er lækkun um 2,50 kr. frá því í
mars. Hæsta meðalverðið fékkst á Fiskmarkaði
Suðurnesja, 37,90 kr., en á hinum mörkuðunum
var það á bilinu 35-36 krónur fyrir kílóið.
UFSI 407tonnum af ufsa var landað í vesturþýsk-
um höfnum í aprílmánuði og er það nokkurn veg-
inn sama magn og í mars. Verðið hækkaði hins
vegar um 10 krónur og var að meðaltali 2,30 mörk
fyrir kílóið eða 83,03 íslenskar krónur. Er það
svipað verð og fékkst í febrúar svo að þetta rokkar
nokkuð til. Á íslensku mörkuðunum minnkaði
framboðið af ufsa talsvert en verðið stóð í stað.
Alls var landað 954 tonnum af ufsa í apríl og
fengust að meðaltali 35,29 kr. fyrir kílóiö. Hæsta
meðalverðið fékkst á Faxamarkaði, 36,83 kr. fyrir
kílóið, í Hafnarfirði var meðalverðið 34,57 kr. og
32,76 kr. á Suðurnesjum.