Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1990, Síða 80
ALÞJÓÐLEGAR FRÉTTIR ÚR PACIFIC FISHING
M'\bs'\á
Rrifir ^
80 VIKINGUR
JAPAN Japanir létu nýlega af andstöðu sinni við
ályktunartillögu sem lögð var fyrir allsherjarþing
Sameinuðu þjóðanna í vetur en í henni er hvatt til
þess aö veiöar með dragnót verði bannaðar á
Suður-Kyrrahafi á árinu 1991 og um allan heim
um mitt ár 1992. Það voru fulltrúar Bandaríkjanna
og Nýja Sjálands sem lögðu þessa tillögu fram en
í henni eru dragnótaveiðar á úthöfunum for-
dæmdar og sagt að þær vinni gegn öllum tilraun-
um til þess að vernda fiskistofna. Upphaflega var
gert ráð fyrir að bannið tæki gildi þegar í stað á
Suður-Kyrrahafi en því mótmæltu Japanir. Þá var
sæst á að fresta gildistökunni fram á næsta ár og
það gátu Japanir samþykkt. Dragnótaveiðar hafa
einkum valdið usla á SuðurKyrrahafi þar sem
fiskiskip frá Kóreu, Taiwan og Japan hafa stund-
að þær og upp á síðkastið hafa þær verið að
breiðast norður eftir Kyrrahafi. Veiðarnar eru
stundaðar utan efnahagslögsögu einstakra ríkja
og þess vegna er nú reynt að beita Sameinuðu
þjóðunum í því skyni að stööva þessar veiðar
algerlega frá og með 30. júní 1992. Geoffrey Pal-
mer, forsætisráðherra Nýja Sjálands, hefur fagn-
að góðum undirtektum við tillöguna og sagt að
það hafi borið verulegan árangur að virkja al-
menningsálitið í heiminum í baráttunni gegn
dragnótaveiðum á úthöfunum.
FALKLANDSEYJAR Bretar hafa fært út lögsögu
sína við Falklandseyjar úr 3 sjómílum í 12. Með
þessu vilja bresk stjórnvöld treysta yfirráð sín yfir
fiskimiðum við eyjarnar en þau eru nú nýtt í ört
vaxandi mæli. Einkum hefur ásókn í smokkfisk
aukist. Á síðasta ári höfðu Bretar tekjur upp á 3
milljarða króna af að selja erlendum fiskiskipum
veiðileyfi í landhelgi eyjanna.
PÓLLAND Innflutningur á fiski til Póllands hefur
aukist um 35% á fjórum árum. Árið 1985 fluttu
Pólverjar inn 83.600 tonn af fiski en í fyrra var
innflutningurinn 112.900 tonn. Innfluttur fiskur er
nú 16% af öllum fiski á pólskum markaði og búist
er við að innflutningurinn muni aukast verulega á
næstu árum. Það helgast af niðurníðslu pólska
fiskiskipaflotans sem helst í hendur við minnk-
andi fiskigengd á þeim miðum sem Pólverjar
sækja á. Innflutningurinn hefur verið fjármagnað-
ur með útflutningi á fisktegundum sem ekki eru
eftirsóttar í Póllandi, svo sem smokkfiski.
KANADA Kanadíska sjávarútvegsráðuneytið
hefur boöið japanska rannsóknarskipinu Shikai
Maru að veiða silfurlýsing við strendur Kanada.
Tilgangurinn er að kanna hvort úr þessari fiskteg-
und megi vinna krabbakjötslíki (surimi) sem
stenst þær kröfur sem gerðar eru á alþjóðamark-
aði. Silfurlýsingur er sú fisktegund sem langmest
er af á grunnmiðum við austurströnd Kanada og
því gætu veiðar á honum verið kærkomin búbót
fyrir kanadíska fiskimenn.
EVRÓPUBANDALAGIÐ Útgerðir fiskiskipa í
löndum Evrópubandalagsins sem veitt hafa
þorsk og ýsu í Norðursjó verða að sætta sig við
verulegan niðurskurð á kvótum á þessu ári. Á
fundi í Brússel þar sem kvótaskiptin voru ákveðin
var leyft að veiða 105.000 tonn af þorski sem er
nálægt því hámarki sem fiskifræðingar höfðu
mælt meö. Ýsukvótinn lækkar í 50.000 tonn sem
er mun lægra en verið hefur.
ÍTALÍA ítölsk stjórnvöld hafa ákveðið að verja 60
milljónum króna til baráttunnar gegn þörunga-
blóma við strönd Adríahafsins. Ekki er vitað með
vissu hvað setur þörungablóma af stað en talið er
að hann geti stafað af tilbúnum áburði og öðru
afrennsli í hafið. ítalskir vísindamenn hafa af því
stórar áhyggjur að lífsmagn sjávar í öllu Miðjarð-
arhafi fari rénandi vegna þess hve miklum úr-
gangi frá landbúnaði, iðnfyrirtækjum og heimilum
í sunnanverðri Evrópu er hleypt óhreinsuðum í
hafið.
NORÐUR-AMERÍKA Veiðiþjófnaður og kvóta-
svindl eru vaxandi áhyggjuefni þeirra þjóða sem
mest eiga undir fiskveiðum. í Mexíkó hafa yfirvöld
gripið til harðra refsinga gegn veiðiþjófnaði, svo
sem háum fjársektum og sviptingu veiðileyfa. Að
sögn yfirvalda hafa talsverð brögð verið að því að
japönsk skip sem sigla undir mexíkönskum fána
séu staðin að ólöglegum veiðum. Dæmi eru
nefnd af tveimur japönskum skipum sem tekin
voru með samtals 785 tonn af ólöglega veiddum
smokkfiski innanborðs. Eigendur þeirra fengu
háar sektir, áhafnirnar, alls 34 fiskimenn, voru
hafðir í haldi um nokkurn tíma og skipin voru svipt
veiðiheimildum. Einnig er því haldið fram að jap-
önsk og kóreönsk skip stundi veiðar á hákarli og
sverðfiski, hirði uggana eina og fleygi hræjum
fiskanna aftur í sjóinn. Yfirvöld í Kanada hafa hins
vegar áhyggjur af spænskum og portúgölskum
fiskiskipum sem stunda kvótasvindl að sögn yfir-
valda. Því er haldið fram að þessi skip stundi
veiðar samkvæmt samningum innan kanadískrar
efnahagslögsögu en færi sig svo út fyrir hana
þegar kvótinn er búinn og haldi áfram veiðum úr
sömu fiskistofnum en nú undirfánum Panama og
Costa Rica. Kanadamenn vilja draga veiöar utan
sinnar lögsögu frá þeim kvótum sem skip fá innan
hennar og hafa þeir farið þess á leit við Evrópu-
bandalagið að það sendi eftirlitsskip þeim til að-
stoðar við að framfylgja kvótareglunum á alþjóö-
legu hafsvæði. Kanadískireftirlitsmenn hafafarið
um borð í togara frá Spáni og Portúgal innan
kanadískrar lögsögu og að eigin sögn fundið
margt athugavert við það sem þar var að sjá.