Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1991, Qupperneq 10

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1991, Qupperneq 10
FYRIR MER ER AFLAMARKID Ég hef beitt mér fyrir meiri samvinnu og samráði á milli þeirra sem vinna í greininni og vísindamannanna. 10 VÍKINGUR um og fleira sem á aö miða aö meiri viðgangi stofnanna og bættri nýtingu þeirra. Spyrill vill fræðast um viðhorf sjávarút- vegsráðherrans til þessa, bein- ir viðtalinu inn á þá braut og spyr: — Hvað telur þú að muni valda þessum gífurlega sam- drætti í þorskstofninum sem við stöndum núna andspænis og höfum aldrei séð neinn líkan fyrr? „Það eru ugglaust margar skýringar á því. Ein er sú að við höfum veitt raunverulega meira heldur en óhætt var, við höfum ekki treyst okkur til að fylgja nægjanlega eftir tillögum fiskifræðinga á undanförnum árum. Önnur skýring kann að vera að skilyrðin í sjónum hafi breyst með þeim hætti og haft þessi áhrif sem við ráðum ekki við. Hér á kunna líka að vera margar fleiri skýringar. Aðal- atriðið í þessu er aö við verðum að byggja okkar ákvarðanir um varðveislu og nýtingu þessarar auðlindar á grundvelli bestu þekkingar sem kostur er á. Vitaskuld eru hafrannsóknir og rannsóknir á nytjafiskum okkar ekki þau nákvæmnisvísindi að hægt sé að fuliyrða að niður- stöður sem fengnar eru á þeim vettvangi séu óyggjandi og óhrekjandi. En þetta er besta vitneskja sem við höfum. Ég hef talið æskilegt að vís- indamenn okkar fengju að- stöðu til að svara miklu fleiri spurningum en þeir hafa getað svarað til þessa. Þess vegna hef ég beitt mérfyrir því að stór- efla Hafrannsóknastofnun og hef tryggt að hún getur nú ráð- ist í mjög umfangsmikið rann- sóknaverkefni, fimm ára verk- efni tíl fjölstofnarannsókna sem á að leiða til meiri vitneskju á heildarsamhenginu í sjónum. Ég hef líka beitt mér fyrir meiri samvinnu og samráði á milli þeirra sem vinna í greininni og vísíndamannanna." Þekking tii eigin nota og útfiutnings — Hvemig er það tryggt að Hafrannsóknastofnun geti ráð- ist í þetta mikla verkefni? „Það er búið að útvega fé.“ — Hvaðan kemur það? „Ég tók þá ákvörðun að leggja til að byggðaverkefni hagræðingasjóðs yrðu lögð niður og þeim aflaheimildum sem búið var að úthluta hag- ræðingasjóði yrði varið til haf- rannsókna. Ég mat það ein- faldlega svo að þar væru meiri og brýnni verkefni sem við þyrftum að takast á við. Með þessu móti tókst mér einnig að afla viðbótarfjármagns til þessa verkefnis, til þess að hægt væri að fara af stað með þessa viðamiklu rannsókna- áætlun." — Vitað er að lítil eða engin aðsókn hefur verið að námi í fiskifræðum á liðnum árum og flestir fiskifræðingar þjóðarinn- ar eru þegar í starfi hjá Haf- rannsóknastofnun. Er við þær aðstæður hægt að tryggja mannafla til þessara viðbótar- rannsókna? Já, stofnunin telur að hún geti gert það. Það verður meðal annars gert með auknu sam- starfi við Háskóla íslands, sem á þátt í þessari rannsóknaáætl- un. Ég tel að við þurfum að hyggja miklu meira að mennt- un í sjávarútvegsfræðum, fiski- fræði og haffræði heldur en við höfum gert og ég fagna aukn- um áhuga háskólayfirvalda, sem hefur komið fram nýlega, á þessu sviði. Ég held að það sé líka nauðsynlegt að huga að þessu annarsstaðar í skóla- kerfinu. Við búum yfir mikilli þekkingu og ég tel að við ætt- um að leiða hugann að því að við gætum haft af því atvinnu að miðla öðrum þjóðum af þeirri þekkingu, ef við tækjum fræðslumálin föstum tökum og settum okkur háleit markmið í þeim efnum." Ákaflega margt breytt — Þú nefndir ofveiði sem eina aðaiástæðu þess hversu illa er komið fyrir þorskstofnin- um. Þegar litið er yfir þorsk- veiðar okkar á þessari öld kem- ur í Ijós að þær hafa lengst af verið stundaðar uppi á grunn- slóð á bátum og togurum i mikl- um mæli. M.ö.o. var mikill hluti þorsksins veiddur á hrygning- ar- og uppeldisstöðvum allt fram að þeim tíma að við rákum útlendinga af miðunum. Þrátt fyrir þessa veiði — sumir segja vegna þessarar veiði — hélst stofninn í þokkalegu jafnvægi áratugum saman. Að vfsu voru sveiflur í veiðinni, stundum langt upp fyrir það sem orðið hefur síðan en aldrei nærri jafn- langt niður og við erum að kynnast nú. Eigum við ekkert tillit að taka til þessarar reynslu þegar við ákveðum fiskveiði- stefnu? „Þarna verða menn vitaskuld að hafa í huga að það hefur ákaflega margt breyst á þess- um langa tíma, sem er nútíma sjávarútvegssaga þessarar þjóðar. Á þessum tíma sem þú gerir að umtalsefni, breytast m.a. skilyrðin í hafinu mjög verulega. Framhjá slíkum grundvallarbreytingum er ekki hægt að horfa. í annan stað verðum við að horfa á að veiðarnar hafa breyst að því leyti að við höfum verið að nýta stofna sem við gerðum ekki áður, loðnuna og rækjuna. Þegar litið er á allan tímann í samhengi sést að það er ekki mikil breyting á heild- arafrakstri miðanna. Við meg- um ekki horfa á einstaka af-

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.