Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1991, Blaðsíða 45
MÝJUNGAR
TÆKMI
mynd á stuttum fjarlægöum
skýrari vegna betri upplausnar.
SR 240 er bæði fjölstefnusónar
meö 90° höllun á botnstykki og
180° sektor sónar, auk þess
fjölgeisla dýptarmælir. Meö
þessu móti verður sjónsvið
stærra þar sem hægt er að sjá
hluti í tveim víddum bæði lárétt
og lóðrétt. Sónarmyndin grein-
ist vel og er sýnd í 64 litum á 20
tommu skjá. Að sögn framleið-
anda hafa truflanir minni áhrif á
SR 240 en eldri gerðir. Stöðug
dagrétting allra upplýsinga á
skjánum auðveldar skipstjór-
anum að meta torfurnar og
sjálfvirk eltun lóðninga gefur
honum nákvæmar upplýsingar
um hraða og stefnu torfunnar
sem hann hefur ákveðið að
kasta á. Allt þetta hefur svo í för
með sér að skipstjórinn áttar
sig betur á því hvernig hann á
að nálgast veiðina.
SR 240 hefur innbyggt forrit
til að reikna stærð fimm lóðn-
inga í einu. Þetta auðveldar
skipstjóranum ennfrekar að
velja heppilegustu torfuna. Á
togveiðum kemur stefnulína
skipsins fram á skjánum og
einnig stefnulína fyrir vörpuna.
Senditíðni er 24 kHz, mesta
fjarlægðasvið 6400 metrar en
minnsta 200 metrar. Höllun er
rafeindastýrð frá +10° til -90°.
SR 240 hefur tengingu fyrir
gögn frá gýró, vegmæli, sigl-
ingatækjum, vindmæli, dýptar-
Það skiptir miklu máli fyrir
skipstjóra á fiskiskipi að þekkja
kjörhitastig þeirrar fiskitegund-
ar sem hann sækist eftir hverju
sinni. Og þvi er mikilvægt að
geta fylgst nákvæmlega með
hitastiginu á veiðisvæðinu.
Japanska fyrirtækið Furuno El-
ectric framleiðir sjávarhita-
mæla sem mæla mjög ná-
kvæmlega yfirborðshita sjávar.
Hitamælir þessi sem kallast
T-2000 sýnir hitastigið með
stórum tölustöfum á LCD skjá.
Tölustafirnir eru 22 mm háir og
sést því á mælinn þvert yfir
stýrishúsið. Sjávarhitinn er
sýndur í farhenheit- eða
celcíusgráðum. Hitaneminn er
á botni skipsins og mælir hit-
ann á því dýpi þar sem neminn
er hverju sinni. Á skjá mælisins
í brúnni eru örvar sem sýna
hægfara hækkun eða lækkun
sjávarhitans og síðan er hægt
að stilla inn hærri og lægri mörk
kjörhitans; ef hitinn fer yfir
mörkin ergefin viðvörun. Þegar
búast má við snöggum hita-
breytingum er stillt inn leyfileg
hitastigsbreyting við svokall-
mæli, ITI og FS vörpukerfum.
Friðrik A. Jónsson, Fiskislóð
90, Reykjavík hefur umboð fyrir
Simrad hér á landi.
aða sker aðvörun (shear al-
arm). Helst er að vænta
snöggra hitabreytinga þar sem
mætast heitur og kaldur haf-
straumur, en einmitt þar má
líka búast við góðum afla.
Frá T-2000 má flytja gögn til
annarra tækja svo sem skjá-
rita, lita dýptarmælis, tölvu
o.s.frv. T-2000 tekur mjög lítið
rafafl eða minna en 1 watt frá
10-15 volta jafnstraumsneti.
Umboð fyrir Furuno á íslandi
hefur Skiparadíó hf., Fiskislóð
94, Reykjavík.
Kringlunni. Útbúum lyfjakistur fyrir skip og báta. Eigum ávallt tilbúin lyfjaskrín fyrir vinnustaði, bifreiðar og heimili. Almennur sími 689970. Beinar línur fyrir lækna 689935.
SR 240 er sambyggður
fjölgeisla sónar og fjöl-
geisla dýptarmælir.
Hitamælirinn T-2000
mælir sjávarhitann
mjög nákvæmlega og
gefur viðvörun ef hann
fer yfir innstillt mörk.
VÍKINGUR 45