Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1991, Blaðsíða 41
FJORÐUNGUR SKIPVERJA
ER ÚTLENDINGAR
FJÖLMENN
RÁÐSTEFNA
UM MÖNNUN,
SKRÁNINGAR
OG REKSTUR
KAUPSKIPA
Sú staðreynd að í byrjun
þessa árs sigldi minnihluti ís-
lenska kaupskipaflotans undir
eigin þjóðfána og um fjórðung-
ur skipverja var útlendingar
sýnir að hér stefnir í algjört
óefni ef ekkert verður að gert.
Þessi mál voru tekin til umræðu
á sérstakri ráðstefnu sem hald-
in var í lok maí. Markmið ráð-
stefnunnar var fyrst og fremst
að .draga saman og koma á
framfæri upplýsingum sem
snerta íslenska farmannastétt
og kaupskipaútgerð.
Þeir aðilar sem stóðu að ráð-
stefnunni voru samgönguráðu-
neytið, Farmanna- og fiski-
mannasambandið, Félag mat-
reiðslumanna, Samband
íslenskra kaupskipaútgerða,
Siglingamálastofnun, Vinnu-
málasamband samvinnufélag-
anna og Vinnuveitendasam-
band íslands. Fjöldi erinda var
fluttur á ráðstefnunni og auk ís-
lendinga fluttu fulltrúar frá Dan-
mörku og Noregi erindi og
skýrðu frá því hvernig þessi
mál hefðu verið leyst í þeirra
löndum.
Vandamálið í nefnd
í erindi sem Ólafur S. Valdi-
marsson, ráðuneytisstjóri sam-
gönguráðuneytisins, flutti kom
meðal annars fram að fyrrver-
andi samgönguráðherra skip-
aði nefnd til að vinna sérstak-
lega að vandamálum kaup-
skipaútgerða og
farmannastéttarinnar. í skipun-
arbréfi nefndarinnar segir svo:
„Verksvið nefndarinnar verð-
ur að endurskoða gildandi lög
og reglur um skráningu og
mönnun íslenskra kaupskipa.
Þetta verður gert með það að
markmiði að skapa íslenskum
kaupskipaútgerðum sambæri-
legan rekstrargrundvöll og er í
nágrannalöndunum. í starfi
sínu skal nefndin hafa hliðsjón
af lögum annarra Norðurlanda
um alþjóðlegar skipaskráning-
ar og reynslu þessara þjóða af
alþjóðlegri skipaskráningu."
í nefndinni eiga sæti fulltrúar
samgöngu- og fjármálaráðu-
neytis, fulltrúar frá hagsmuna-
samtökum farmanna og full-
trúar kaupskipaútgerðanna.
Ólafur S. Valdimarsson sagði
að nefndin leitaðist við að af-
marka þá þætti í rekstrarum-
hverfi kaupskipanna sem
mætti hafa áhrif á til þess að
kaupskip sem skráð væru und-
ir íslenskum fána stæðu jafn-
fætis skipum undir erlendum
fánum.
Útlendingum fjölgar
Guðlaugur Gíslason frá
Stýrimannafélagi fslands var
meðal þeirra sem fluttu erindi á
ráðstefnunni. Hann birti tölur
sem sýndu vaxandi hlutdeild
útlendinga um borð í íslenskum
kaupskipum. Þar kom fram, að
í febrúar á þessu ári var 461
staða um borð í kaupskipunum
sem voru 41 að tölu. f 350 stöð-
um voru íslendingar eða 75,8%
og 112 útlendingar eða 24,2%.
Hlutur útlendinga hafði vaxið
um 5,7% á einu ári. Guðlaugur
sagði að ef íslendingar væru í
öllum þeim störfum á skipunum
sem útlendingar sinntu nú væri
það fullt starf fyrir um 160
manns. Á öllum skipunum gæti
því verið um að ræða fullt starf
fyrir 650-700 manns. Hér væri
um að ræða atvinnuveg sem
íslenskt þjóðfélag hefði ekki
efni á að líta á sem afgangs-
stærð sem engu máli skipti.
í máli Einars Hermannsson-
ar frá SÍK kom meðal annars
fram, að þótt lægri launakostn-
aður væri sá einstaki þáttur
sem vægi þyngst í útflöggun
kaupskipanna kæmi fleira til.
Þar mætti nefna hagstæðari
mönnun en undir íslenskum
skráningarfána, há opinber
gjöld af þinglýsingum við kauþ
og sölur skipa hérlendis,
möguleika á hagstæðara
vinnufyrirkomulagi á skipun-
um, takmarkanir á innflutningi
skipakosts vegna aldurs sem
væru úr takt við meðalaldur
kaupskipa í heiminum, úreltar
heimildir til fjármögnunar og
lántöku, kostnaðarsamt
bankakerfi við lántökur og ís-
lenskar sérkröfur um skoðanir
og búnað skipa.
Gefið hefur verið út sérstakt
hefti með öllum erindunum
sem flutt voru á ráðstefnunni
en hana sátu 70-80 manns.
Sæmundur
Guðvinsson
blaðamaður
VÍKINGUR 41