Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1991, Blaðsíða 51

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1991, Blaðsíða 51
MARKAÐSFRETTIR Berufjarðarál. Af aflanum fara 100 tonn í söltun en afgangurinn í bræðslu. Það fara um 50.000 tonn af síldaraflanum í bræðslu og verksmiðjurnar bítast um hráefn- ið. Við erum fyrst og fremst að afla hráefnis fyrir verksmiðjuna í Grindavík. Við vitum hins vegar ekkert hvað við fáum fyrir sfldina, það þorir enginn að nefna neitt verð. Það hefur nú oft verið þannig en nú sýnast mér menn vera óvenju feimnir." Hábergið er með á sjöunda þús- und tonna sfldarkvóta og er hann allur fenginn í skiptum fyrir bol- fisks- og rækjukvóta sem skipinu var úthlutað en Hábergið er fyrst og fremst loðnuskip. Sveinn átti von á því að þeim tækist að klára kvótann í lok nóvember ef allt gengi vel. En nú eru þeir famir að lóða á loðnuna fyrir norðan land.„ Já, þeir fundu mikið af loðnu á 300 mflna löngu svæði frá Víkurál og austur undir Kolbeinsey og eins norður af Horni. Skipstjór- arnir á leitarskipunum sögðu að þetta hefði verið eins og í bestu loðnuárum. Ef ekki á að hleypa okkur í þetta eru fiskifræðingarn- ir að hafa stéttina að fíflum, það væri hreinn skrípaleikur. Mér sýnist þetta staðfesta þá skoðun sjómanna að það sé óhætt að veiða 6-700.000 tonn úr stofnin- um á ári.“- Attu von á því að þið farið í loðnu- na ef veiðar verða heimilaðar í haust? „ Það fer eftir ýmsu. Ef hún er fyrir vestan gæti svo farið því þá er hagkvæmt að sigla með hana suður fyrir til Grindavíkur. Ann- ars getum við alveg beðið fram yfir áramót, við eigum ekki von á að fá það mikinn kvóta að við komumst ekki yfir að veiða hann á vorvertíðinni. Ef hins vegar verður farið í aðra leit þá erum við í þeim hópi sem fer, við erum í næsta leitarhópi," sagði Sveinn ísaksson á Háberginu frá Grinda- vík. ÞORSKUR Samdrátturinn á framboði á íslenskum þorski á bresku mörkuðunum heldur áfram og þegar septembermánuði lauk hafði verið landað 43% minna af þeim gula í Bretlandi en á sama tíma í fyrra. Aukningin á íslensku mörkuðunum er nokkur en samt ekkert nærri því að vega þetta upp. Skýringin sem heyrist á þessu er sú að vinnslan haldi sínum hlut en aflasamdrátturinn komi niður á mörk- uðunum, einkum þeim erlendu því sala á fiski þar hefur í för með sér kvótaskerðingu. Samdrátturinn heldur áfram því í september var aðeins landað 1.074 tonnum af þorski í Bretlandi á móti 1.317 tonnum í ágúst. Verðið tók líka mikinn kipp, meðalverð á kíló var 1,68 pund í september eða 173,94 krónur á móti 1,37 pundum í ágúst. Minna var einnig selt af þorski á íslensku mörkuðunum í september, 1.235 tonn á móti 1.391 tonni í ágúst. Verðið hafði heldur þokast upp á við, að meðaltali fengust 93,43 kr. fyrir kílóið í septem- ber á móti 86,39 kr. í ágúst. ÝSA Ekki virðist vera eins mikill samdráttur á ýsu og þorski í breskum höfnum. Á fyrstu níu mánuðum ársins var landað þar 27,5% minna af ýsu en á sama tíma í fyrra. í september var landað þar 989 tonnum á móti 1.072 tonnum í ágúst. Verðlagsþróunin virðist hafa fest í sessi ný hlutföll því ýsuverðið hefur verið lægra en þorskverðið að undanförnu og svo ereinnig nú. íseptemberfengust 1,55 sterlingspund eða 160,89 kr. að meðaltali fyrir ýsukílóið og hafði hækkað úr 1,35 pundum í ágúst. Á íslensku mörkuöunum var landað 610 tonnum af ýsu í september sem er 250 tonnum minna en íágúst. Verðið hafði líkahækkað nokkuð, úr 92,12 kr. í ágúst í 101,75 kr. sem fengust að meðaltali fyrir kílóið í septembermánuði. KARFI Öfugt við bæði þorskinn og ýsuna hefur framboð á karfa aukist á erlendu mörkuðunum það sem af er árinu en dregist heldur saman á þeim innlendu. Munurinn er þó svo lítill á báðum stööum að varla telst marktækt. í september var landað 1.810 tonnum af karfa í þýskum höfnum ámóti 1.077 tonnum íágúst. Þaðerekkertóalgengt að salan sé minni yfir sumarið en aukist með haustinu. Verðið hefur að heita má staðið í stað milli mánaða, var 2,74 mörk í ágúst en hafði hækkað í 2,77 mörk í september en þá fengust að meðaltali 97,79 kr. fyrir kílóið í þýskum höfnum. Framboðið á íslensku mörkuðunum hafði heldur glæðst í september, úr 447 tonnum í ágúsf í 766 tonn í september. Verðið haföi hins vegar lækkað örlítið, úr 35,47 kr. fyrir kílóið að meðaltali í ágúst í 34,83 kr. í september. UFSI Framboöió á ufsa í Þýskalandi hefur minnkað það sem af er árinu miðað við sama tíma í fyrra og nemur samdrátturinn tæpum fimmtungi. Verðiö hefur hins vegar hækkað um 12%. Framboðið er heldur að glæðast núna því í september var landað 553 tonnum af ufsa í þýskum höfnum á móti 448 tonnum í ágúst. En verðið heldur áfram að hækka og er meö því hæsta sem sögur fara af. (seþtem- berfengust að meðaltali 2,91 mark eða 102,90 kr. fyrir kílóiö af ufsa en í ágúst var meðalverðið aðeins 2,39 mörk. Sömu sögu er að segja af íslensku mörkuðunum, þartók ufsaframboðið mikinn kipp í september, fór úr 1.264 tonnum í ágúst í 2.009 tonn. Og verðið hækkaði líka, úr 56,66 kr. í ágúst í 62,54 kr. að meðaltali fyrir ufsakílóið í septembermánuði. VÍKINGUR 51
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.