Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1991, Blaðsíða 23

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1991, Blaðsíða 23
SERSMIÐAÐAN MÆLINGABAT „Það var fyrir löngu orðið tímabært að endurnýja sjókort af strandlengju landsins og raunar til skammar að draga þetta svo lengi. Þau sjókort sem nú eru í notkun byggja að nokkru leyti á mælingum sem Danir gerðu með hand- lóði um síðustu aldamót. Nú er loks kominn skriður á málið og mælingar hafnar með fullkomnustu tækni sem völ er á,“ sagði Róbert Dan Jensson stýrimaður hjá Sjómælingum íslands í samtali við Víking. Sérstakur bátur hefur veriö smíöaöur til að annast sjómælingar, m/s Baldur. Báturinn var smíö- aður á Seyðisfirði og var til- búinn til notkunar um miöjan maí á þessu ári. Baldur er byggður fyrir fé úr Landhelgis- sjóöi sem er jafnframt eigandi hans. Báturinn er úr áli, hefur tvö stýri og tvær vélar og ristir aöeins 1,60 metra. Ekkert hefur verið til sparað að gera bátinn sem best úr garði og er hann byggður samkvæmt Lloyds- klassa. Fimm manna áhöfn er um borð. Kanar leggja til tækin Róbert Dan Jensson sagði að um borð í Baldri væru full- komin tæki af nýjustu gerð. Samstarfssamningur var gerð- ur við Hafrannsóknastofnun bandaríska sjóhersins (NAV- OCEANO) sem felur í sér að stofnunin leggur til öll mælitæki um borð og sendir starfsmenn til að kenna notkun þeirra. Jafnframt sér stofnunin um við- hald tækjanna. í staðinn fær bandaríska stofnunin afnot af öllum mælingagögnum. Um borð í Baldri er staðsetn- ingartæki, dýptarmælirog tölva sem hefur að geyma sjómæl- ingaforritið HYPACK. Enn- fremur hljóðhraðamælir og svokallaður „Side Scan Son- ar“. Margvíslegar mælingar Það hafa orðið miklar fram- farir á sviði sjómælinga síðan Danir voru að mæla dýpið með handlóði hér í eina tíð. í mælingaforritinu um borð í Baldri eru mælilínurnar, sem Tækið sem þarna er verið að sökkva í sjóinn vinnur líkt og dýptar- mælir en skannar útfrá sér og er notað til þess að tryggja að botninn sé hreinn, til að finna og skoða flök og á hernað- artíma til að fylgjast með tundurduflum og öðru sem kann að vera í sjónum til að granda skipum. VÍKINGUR 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.