Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1991, Blaðsíða 40

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1991, Blaðsíða 40
OCEANOS Yiannis Avranas skip- stjóri var meðal þeirra fyrstu sem fóru fró borði. Kynntu þér rétt þinn til bóta frá Tryggingastofnun rlkisins. Allar upplýsingar er að finna I bækllngum okkar. - Gefðu þér tfma og kynntu þér rétt þinn—það getur borgaö sig. |#I) TRYGGINGASTOFNUN |1ÉJ RÍKISINS FéjBSí'ogl ÖtVögi ö Norðuriöndum aðeins hrist höfuðið og sagt: „Ég veit að það er bátur þarna, en það er ekkert sem ég get gert.“ Þá bætti það ekki úr skák aö Avranas skipstjóri yfirgaf skipið um klukkan níu á sunnudags- morgun með einni af fyrstu björgunarþyrlunum. Farþegar báru að hann hefði ýtt fullorð- inni konu til hliðar svo hann kæmist á undan upp í þyrluna. Hann gaf síðar þá skýringu að hann hefði þurft að fara í land til að stjórna björgunaraðgerðun- um þaðan. Sú skýring þótti létt- væg og ekki í samræmi við þá reglu að skipstjóri yfirgefi skip sitt síðastur. Þegar Avranas fór frá borði var fjöldi fólks þar enn- þá. Hann er 51 árs að aldri og á að baki 30 ára sjómennsku. Rannsóknarnefnd skipuð Samgönguráðherra Suður- Afríku skipaði sérstaka rann- sóknarnefnd til að fara ofan í saumana á þessu sjóslysi og þótti engum mikið. Mörgum spurningum er ósvarað og er þá fyrst til að taka orsakir þess að leki kom að skipinum með þeim afleiðingum að það sökk. Þá þarf að svara mörgum spurningum varðandi fram- komu skipstjórans og áhafnar hans eftir að hættuástand skapaðist. í umræðum erlendra fjöl- miðla um þetta mál er einkum tvennt sem ber hæst. í ööru lagi óstjórn og kunnáttuleysi skip- verja á OCEANOS og hins vegar örugg stjórn björgunar- aðgerða úr landi og þá ekki síst afrek áhafnanna á Puma-þyrl- unum. Talið er fullvíst að ekki hefði tekist að bjarga öllum frá borði ef þyrlurnar hefðu ekki komið til skjalanna. Samtök sjómanna í ýmsum löndum hafa notað þetta atvik til að rifja upp önnur sjóslys að undanförnu. Má þar nefna þegar Free Enterprise hvolfdi og 188 fórust, strand olíuskips- ins Exxon Valdez og brunann um borð í ferjunni Scandinavi- an Star þar sem liölega 160 fór- ust. Sjómenn telja að ýmislegt hafi orðið til að draga úr öryggi um borð í skipum. Má þar nefna að sparnaðarráðstafanir út- gerðarfélaga hafi orðið til þess að mjög hafi dregið úr þjálfun áhafna, ennfremur fækkun skipverja og ráðning manna frá láglaunalöndum sem hafi enga hefö í sjómennsku og sigling- um. Skip séu í vaxandi mæli mönnuð fjölþjóðaáhöfnum sem hafi það í för með sér að skipverjar skilji ekki hver ann- an. Hvað sem því líður þá hugs- uðu víst margir farþega OCEANOS svipað og kona úr þeirra hópi sem sagði eftir að henni hafði verið bjargað: „Ég fer aldrei framar um borð í skip.“ 40 VÍKINGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.