Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1991, Side 46

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1991, Side 46
Hilmar Snorrason skólastjóri Bikarhafinn Hoverspeed Great Britain leggur frá New York. Gámi lyft af vagni í nýj- um gámakranahermi. 46 VÍKINGUR Utan úr hcimi Blái borðinn Alltaf er veriö aö slá ný met eins og ég hef áður komið inn á. Nú hefur 39 ára gömlu meti farþegaskipsins United States verið hnekkt. Hér var um að ræða hinn fræga Bláa borða sem ferjan Hoverspeed Great Britain hreppti. Meðan stóru farþegaskipin ristu Atlantshafið með miklum Ijóma og glæsi- leika var keppnin hörð um þennan titil og að sjálfsögðu þjónaði titillinn metnaðargirni farþeganna. Margir lögðu allt að veði til að hreppa bikarinn, sumir unnu en aðrar ferðir end- uðu þó með ósköpum eins og ferð Titanic hér um árið. Það varð því mikil gleði í Englandi þegar titlinum var náð aftur af Bandaríkjamönnum eftir svo langan tíma. Þótt bikarinn sem þessum titli fylgir sé kominn til Englands verður þó heiðurinn sem þessu fylgir enn tileinkað- ur United States þar sem Hov- erspeed Great Britain var og er ekki í áætlunarsiglingum yfir Atlantshafið heldur þjónar ferjuleið á Ermasundi. Skipasmíðar Ekki hefur farið mikið fyrir Ecuador í hugum okkar sem sigiingaþjóð. Kaupskipaútgerð þeirra er rekin af hernum og einkafyrirtæki eiga þar erfitt uppdráttar en þó er þar eitt slíkt til, Naviera del Pacifico, í einka- eign. Þetta skipafélag stendur á traustum grunni en þeirra að- alflutningur er bananar sem jafnframt er aðalútflutningur þeirra Ecuador-manna. En þegar flutningur er fyrir hendi þá þarf að eiga skip til að flytja hann. Þá kemur að vandanum hvernig eigi að fjármagna skipakaup eða smíði. Þeir hjá sem eflaust á eftir að verða skipaeigendum hjálplegt til aö stytta hafnartíma skipa. Naviera eru ekki ráðalausir en þeir eru aö láta smiða þrjú skip í Júgóslavíu og borga einfald- lega með banönum. Má því fastlega gera ráð fyrir að ban- anar verði standandi út úr munnum Slava á næstunní. Hvað ætli þessi skip verði svo kölluð? Þjálfunarhermar Það eru fleiri en skipstjórnar- og vélstjórnarmenn sem þjálf- aðir eru í samlikjum því nú hef- ur verið komið upp gámakrana- hermi í Melbourne í Ástralíu. Þar fer fram þjálfun stjórnenda gámakrana. Viðkomutími skipa í höfnum er skípafélögum dýr- mætur og því var oröin full þörf á að hleypa af stokkunum slík- um hermi. í honum er líkt m.a. eftir veðuráhrifum, föstum gámaskóm og bilun i festingum i gámaoki. Þrívíddarmynd er það sem kranastjórnandinn sér út um gluggana á stjórnklefan- um þar sem vagnar koma með gámana og síðan eru þeir lest- aðir um borð í gámaskip. Plott- er skráir allar aðgerðir stjórn- andans og er því auðvelt fyrir nemandann og kennarann að sjá hvar skóinn kreppir að í híf- ingum. Hér er því komið tæki

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.