Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1995, Side 19
Hann eigi því eftir að vakna upp í vetur
við að kvótinn er búinn og segja við sjálf-
an sig að hann hafi verið „djöfuls fífl að
sækja í öllum veðrum og kvótinn bú-
inn“.
Inn í þessa umræðu bætir Marteinn
þeirri staðreynd að samkvæmt nýja kerf-
inu megi þeir róa 80 daga á ári. Taki þeir
það tvöfalt megi þeir ekki róa næsta ár á
eftir.
„Þetta verður helvíti gott þegar við
róum bara annað hvert ár - ef það verður
ekki búið að breyta reglunum enn og
aftur,“ segir hann og hristir hausinn.
ÞESSI VAR VÖRUBÍLSTJÓRI SVO
HANN TELST EKKI MEÐ
Jóhann heldur því hins vegar fram að
sjómennirnir geti að hluta sjálfum sér
um kennt. „Við höfum ekki verið með
neinar marktækar tillögur sem stjórn-
málamennirnir hafa hlustað á. Tillögur
koma héðan og þaðan og svo þegar farið
er að samræma þær kemur þessi vitleysa
út.“
Ekki vill Sigurður taka alveg þegjandi
undir þessar fullyrðingar Jóhanns, en
viðurkennir að sjómenn séu sundruð
stétt.
„Samt er þetta stjórnvöldum að
kenna. Þegar farið var út í þetta úreld-
ingarkjaftæði á kvótabátunum og koma
mönnum undir hungurmörk með
kvótaleysi var öllum att út í að kaupa og
smíða krókabáta. Sá floti stækkaði um
allan helming og það sitja þeir uppi með.
Þá er farið í að grisja þennan flota, sem er
orðinn alltof stór,“ segir Sigurður og
Jóhann grípur orð hans á lofti og segist
ekki hafa meint að ástandið væri ein-
göngu sjómönnum að kenna heldur
aðeins að hluta til.
„Þetta kvótakerfi er búið að gera allt
vitlaust,“ segir Marteinn.
Jóhann hefur sína skýringu á ástand-
inu. Togarar hafi byrjað á að kaupa upp
bátana með kvótanum, bátarnir hafi
verið úreltir og þeir menn farið inn í
krókakerfið.
„Eg var einn af þeim og Sigurður líka.
En þessi var náttúrulega vörubílstjóri svo
hann telst ekki með,“ segir Jóhann
hlæjandi og bendir á Martein.
„Þetta kvótakjaftæði er farið að snúast
urn peninga. Þeir sem eiga kvótann
þurfa ekkert að vinna heldur leigja bara
kvótann. Hinir verða að leigja hann og
svo sitja einhverjir sægreifar heima í stofu
og taka við 90-100 krónum á kílóið,“
segir Sigurður og er farið að hitna í
hamsi. „Svo er verið að tala um að stórút-
gerðirnar geri það svo gott, en þetta
virkar þannig að ríkið kaupir allan kvót-
ann fyrir þá. Ef það er gróði á þessum
íyrirtækjum er keyptur meiri kvóti og
hann leigður út. Skip útgerðanna eru á
utankvótafiskiríi og rækju en einhverjir
kvótalausir vesalingar að fiska úr kvóta
Smábátum fjölgar á sumrin í Ólafsvík.
R.SIGMUNDSSON HF.
SIGLINGA - OG FISKILEITARTÆKI
TRYGGVAGÖTU 16 101 R. SÍMI: 562 2666, FAX: 562 2140