Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1995, Blaðsíða 43
37. þing Farmanna- og fiskimannasambands íslands var haldið í síðasta mánnði
37. þing Farmanna- og fiskimanna-
sambands Islands, haldið í Reykjavík
15.-17. nóvember 1995, skorar á stjórn-
völd að efla aðstoð við íslensk fiskisldp á
fjarlægum miðum.
Greinargerð: Það hefur sannasc að
undanförnu að mikil þörf er á varðskipi
og lækni á veiðisvæðum utan 200 mílna.
Farmanna- og fiskimannasamband Is-
lands átelur þann seinagang sem varð á
að senda varðskip í Smuguna á þessu ári.
UM KOMU NÝRRAR
BJÖRGUNARÞYRLU
37. þing Farmanna- og fiskimanna-
sambands fslands fagnar komu nýju
Þingritarar
björgunarþyrlunnarTF-LlF. Þyrlan hef-
ur nú þegar sannað ágæti sitt og staðist
þær væntingar sem gerðar voru til
hennar. Þingið treystir því að stjórnvöld
og Alþingi sjái svo um að rekstur þyrl-
unnar verði tryggður.
UM HEILBRIGDISSTOFNUN
SJÓFARENDA
37. þing Farmanna- og fiskimanna-
sambands íslands skorar á heilbrigðis-
ráðherra að beita sér fyrir því að koma á
stofn heilbrigðisstofnun sjófarenda í
tengslum við Borgarspítalann.
Greinargerð: Hjá frændþjóðum
okkar á Norðurlöndum hefur verið
komið á fót heilbrigðisstofnun fyrir sjó-
farendur. Verkefni slíkrar stofnunar eru
meðal annars: Grunn- og símenntun,
samræmd slysa- og sjúkdómsskráning,
fjarskiptalæknisþjónusta, eftirlit lyfja-
kista og forvarnarstörf. Ofangreind
þjónusta er hugsuð fyrir íslenska sem
erlenda sjómenn. Verkefni heilbrigðis-
stofnunar samræmast mjög vel verkefn-
um þyrlulæknis Landhelgisgæslunnar.
ÞAKKLÆTI TIL ÁHAFNAR
VARÐSKIPSINS ÓÐINS
37. þing FFSÍ haldið í Reykjavík
kemur hér með á framfæri þakklæti til
áhafnar varðskipsins Óðins, sem undan-
farin tvö ár hefur sinnt eftirlits- og
öryggishlutverki í Smugunni. Það er álit
þingsins að áhöfn varðskipsins hafi sinnt
þessu mikilvæga starfi af stakri prýði, og
að nærvera hennar á svæðinu hafi stuðl-
að að meiri hugarró fiskimanna og fjöl-
skyldna þeirra heldur en annars hefði
orðið.
UM MENNTUN SKIPSTJÓRNAR-
MANNA
37. þing FFSÍ skorar á menntamála-
ráðherra að beita sér fyrir því að koma á
breytingum í skipstjórnarnámi sam-
kvæmr þeim rillögum sem þegar liggja
fyrir. Mikil undirbúningsvinna hefur
verið unnin á undanförnum 6-7 árum
og þarf að tryggja fjárveitingu jafnhliða
breyttu nárni.
Greinargerð: Það liggur ljóst fyrir að
skipstjórnarnámið á íslandi er langt á
eftir sinni samtíð og þær breytingar sem
þarf að gera jaðra við hreina byltingu.
Endurskipuleggja þarf námið frá grunni
og bæta inn í það þeim greinum sem
nauðsynlegar eru. Til eru tillögur skóla-
nefndar Stýrimannaskólans (1990),
tillögur nefndar um endurskoðun sjáv-
arútvegsnáms (1994), tillögur um
breytingu á skipstjórnarnámi frá Dalvík
(1995) og ýmis erindi um þessi mál.
Tími nefndastarfa á þessum vettvangi er
liðinn og tími framkvæmda löngu
kominn. Lagt er til að nýtt og betra
skipstjórnarnám verði hægt að hefja
haustið 1996.
UM ÚRSKURÐARNEFND SJÓ-
MANNA OG ÚTVEGSMANNA
37. þing FFSl hvetur félagsmenn um
allt land til að hika ekki við að senda úr-
skurðarnefnd kæru, séu menn ósáttir við
verðlagningu á sjávarfangi sínu.
Greinargerð: Vitað er að margar
áhafnir hafa verið þvingaðar til að gera
lélega verðsamninga við útgerðir og
ýmsar hótanir verið uppi ef málin fari
lengra. Látið ekki hræða ykkur frá
samningsbundnum rétti ykkar. Félögin
og samböndin eiga að verja ykkur.
43