Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1995, Page 53
Talið berst strax að kvótaskerðingu og
aflaleysi. Þegar Hólmanesið kom nýtt til
Eskifjarðar árið 1974 voru aðrir tímar en
nú. Sigurður hefur verið skipstjóri á
Hólmanesi frá upphafi.
„Það er bara hundleiðinlegt að standa í
þessu í dag. Maður er á eilífu flakki um
miðin á flótta undan þorski. Heilu túr-
arnir gera farið í það að flýja þorskinn. I
raun hefur allt snúist við í veiðunum í
dag,“-segir Sigurður en er ekki svartsýnn
á framtíðina.
ÞORSKSTOFNINN NÆST
UPP AFTUR
„Eins og staðan er í dag myndi ég ekki
ráðleggja neinum ungurn manni að
leggja fyrir sig sjómennsku en ég hef trú
á að þorskstofninn náist upp aftur. Um
aldamótin verður aflinn kominn í samt
lag eins og forðum. En þá verð ég ekki
meðal þeirra sem eltast við þorskinn því
ég stefni á að hætta sjómennskunni
smátt og smátt. Ég hef þegar dregið úr
úthaldinu miðað við það sem áður var. “
Sigurður segist hafa lagt til hliðar í
gegnum árin svo starfslokin verði auð-
veld. Ekki segist hann vera búinn að
koma sér upp sérstöku tómstundagamni
til að hverfa að. Það sé ekki auðvelt fyrir
sjómenn að stunda áhugamál eða
félagsstörf. En hann er ekki í vafa um að
eitthvað komi upp í hendurnar á honum
síðar.
Samtalið fer fram í brúnni á
Hóimanesinu daginn sem skipið landaði
góðum blönduðum afla, þorski og ufsa,
sem fékkst austur af landinu.
Brúin er hlaðin tækjum og ekki úr vegi
að álykta sem svo að með minnkandi afla
hafi tækjakostur aukist til muna því það
er varla hægt að skáskjóta sér um brúna.
Sigurður klappar tölvunni við skip-
stjórastólinn og segir að hún hafi reynst
bylting fyrir skipstjórnendur.
„Hér geymum við allar upplýsingar
um veiðislóðir og hefur tölvan reynst
okkur ómetanlegt hjálpartæki," segir
hann.
HILMIR í SLEFI
Besti túrinn sem Sigurður man eftir
var í alla staði óvenjulegur. Eftir nokkra
daga á veiðum höfðu þeir fyllt skipið af
grálúðu, alls 241 tonn. A landleið barst
þeim hjálparbeiðni frá Hilmi sem hafði
fengið veiðarfæri í skrúfuna. Hólma-
nesið tók Hilmi í tog og dró til hafnar.
Hann segir að ekki hafi verið neitt að
veðri og því hafi ferðin heim gengið
ágætlega nema hvað það er alltaf vanda-
samt að sigla fulllestuðu skipi með annað
í togi. Þessi túr reyndist sá verðmætasti,
því ofan á aflahlut komu björg-
unarlaunin fyrir Hilnti.
AFLA ER LANDAÐ UTAN
MARKAÐA
Á Hólmanesinu er allur afli ísaður í
kör í stað kassa. Sigurður segir að það sé
fljótlegra og auðveldara að ísa í körin en
hins vegar dugi kassarnir betur þegar
farið sé í lengri túra, til dæmis í Smug-
una. Ástæðan er sú að ísingin helst betur
í minni kössum en stórum körum.
Hólmanesið er nánast óbreytt, en Sig-
urður telur að hefði skipinu verið breytt,
til dæmis í hálffrystiskip, hefði verið auð-
veldara að aðlagast breyttum aðstæðum.
Hólmanesið hefur siglt til útlanda að
meðaltali einu sinni til tvisvar á ári.
Sérstaða Hólmanessins er ekki síst fólgin
í því að öllum afla er landað utan mark-
aða. Eigandi er Hólmi hf. sem er félag
Hraðfrystihúss Eskifjarðar og Kaupfé-
lags Héraðsbúa. Til skamms tíma var
hluti aflans gerður upp á markaðsverði
en núna er afli seldur á föstu verði sem
er lægra en markaðirnir bjóða. Ekki vildi
Sigurður fullyrða neitt um hvað mis-
munurinn á föstu verði og markaðsverði
gerði í prósentum á ári.
HEF HALDIÐ MIG UTAN
VIÐ DEILURNAR
„Ég hef haldið mig utan við deilurnar
um fiskverðið sem hafa kostað verkfall
hérna. Ég hef litið svo á að ég sé ágætlega
settur og hef unnið hjá þessari útgerð í
áratugi. Mér hefur alltaf líkað vel við
Aðalstein Jónsson útgerðarmann og
hann hefur reynst mér vel. Ég get hins
vegar vel skilið að ungu mennirnir eigi
erfitt með að sætta sig við að vera
eftirbátar annarra togarasjómanna,"
segir Sigurður.
ALLTAF LIÐIÐ VEL Á SJÓ
Mundirðu fara í Stýrimannaskólann
í dag efþú værir ungur maður?
„Ég veit það ekki. Mér hefur alltaf
liðið vel á sjó og gengið vel. Sem ungur
maður vildi ég fara í Verslunarskólann en
hafði ekki efni á því. Félagi minn í gagn-
fræðaskólanum á ísafirði fór í Verslun-
arskólann og mig langaði með honum.
En ég fór á sjó, kynntist konu frá
Eskifirði og settist hér að. Ég hef aldrei
séð eftir þeim tírna sem ég hef eytt í sjó-
mennskuna og hefur alltaf liðið vel á
Eskifirði.“
FARINN AÐ UNDIRBÚA STARFS-
LOK Á SJÓNUM
Sigurður er farinn að undirbúa starfs-
lok á sjónum en hann verður sextugur á
næsta ári. Hann segist taka sér löng frí á
sumrin og ferðist töluvert.
„Það er samt þannig með sjómenn að
eftir langt hlé fer mann að langa á sjó
aftur. Þó hef ég aldrei verið að fylgjast
með aflatölum meðan ég er í landi.
Sonur minn er með bát hérna og ég sé
fram á að ég geti skotist með honum
öðru hvoru til þess að halda sjómanns-
blóðinu á hreyfingu.“
Jóhanna A.H. Jóhannsdótlir
53