Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1995, Side 57
BÚNIR AÐ FÁ NÓG
Tælendingar eru búnir að fá nóg af að
vera háðir siglingum erlendra skipafélaga
til landsins. Hefur ríkisstjórnin tilkynnt
áætlun sem felur í sér fjárfestingu upp á
10 billjónir dollara til næstu ellefu ára.
Verður féð notað til að kaupa og reka
kaupskip undir tælenskum fána.
NÝR RISI
Nýjasta og jafnframt stærsta skemmti-
ferðaskip í heimi var nýlega afhent eig-
endum sínum. Skipið, Sun Princess, er í
eigu P&O-skipafélagsins breska og skip-
stjórinn heitir Augusto Lagomarsini.
Ekki er búist við að hann staldri lengi við
á þessu skipi því það styttist í að hann
fari á eftirlaun. Augusto er nefnilega
orðinn 64 ára, en eftirlaunaaldur skip-
stjóra félagsins er 60 ár og hann því
kominn talsvert framyfir þau mörk.
Hann viðurkennir að erfitt verði að fara í
land frá svo glæstu skipi sem Sun Princ-
ess er, en skipið er 77.000 tonn að stærð.
Að vísu verður þetta skip ekki lengi enn
það stærsta, því hjá Fincantieri á Italíu
stendur yftr smíði á 100.000 tonna
skemmtiferðaskipi sem hefur fengið
nafnið Destiny. Sem dæmi um hversu
mikil breyting á sér stað í rekstri skipa
með slíkum risum þá er um borð í Sun
Princess garðyrkjumaður sem sér um
blómaræktun svo farþegarnir fái fersk
blóm við morgunverðarborðið.
LOKSINS í ÍSRAEL
Flutningaskipið Centra Lyra er fyrsta
skip sem siglir undir frönskum fána sem
kemur til hafnar í Israel í meira en fjöru-
tíu ár. Skipið kom til Haifa í byrjun nóv-
ember síðastliðins og var þar með aflétt
viðskiptabanni sem arabar hótuðu
frönskum fyrirtækjum ef þau hefðu
viðskipti við Israela.
LÓDSASTÖRF i BRETLANDI Á
LAUSU
Allt er á niðurleið, því ekki er lengur
hægt að fá fólk með sjóreynslu til starfa í
landi, sem áður var slegist um. Þessu
standa Bretar frammi fyrir í dag. Fyrir
nokkrum árum stóðu skipstjórar í löng-
um röðum eftir lóðsstarfi en í dag eru
engir í röðum því skortur er að verða á
mönnum með réttindi til starfa. Þar í
landi er talað um að þegar hafi ein
kynslóð sjómanna horfið og jafnvel tvær.
Þeir skipstjórar sem enn eru við störf eru
að fara á eftirlaun og því er ástandið ekki
betra en svo að áhyggjurnar snúast um
hvenær ekki verði hægt að manna lóðs-
stöðurnar með reyndum sjómönnum.
vandinn með skip af þessari stærðar-
gráðu er að þau eru orðin of stór fyrir
Panamaskurð. Skipin verða í siglingum
milli Evrópu og Asíu og eiga að afltend-
ast á næsta ári og þarnæsta.
Þessi einstaka mynd er taiin vera af skipi sjóræninga á Kínahafi. Engin merki,
enginn fáni og enginn sjáanlegur um borð.
**'* »»»»»***
**•*“
ttrittttntt
NÝ GÁMASKIPAKYNSLÓÐ
Danska skipafélagið Mærsk hefur gert
samning um smíði á níu gámaskipum
sem hvert um sig mun geta flutt 5.500
gámaeiningar. Upphaflega áttu skipin að
taka 4.800 einingar en harðnandi sam-
keppni breytti áformum þeirra. Aðal-
ALLTAF MEIRI HRAÐA
Arið 1992 var sjósett fyrsta lestarlúgu-
lausa gámaskip í heirni. Atlantic Lady, en
það nafn fékk skipið, gat flutt 1.656
gámaeiningar en engin lest skipsins var
með lestarlúgum. Fyrri kynslóðir lúgu-
lausra gámaskipa höfðu lúgur á fremstu
lestarrýmum. Til að ekki þyrfti til þess að
koma að hafa lúgur á fremstu lestum
skipsins var það haft frambyggt og engin
lest fyrir framan brú. Mjög öflugar dælur
eru til að dæla sjó og vatni frá lestum
skipsins. Þær eiga að halda lestunum því
sem næst þurrum í Norður-Atlants-
hafsöldu í ellefu vindstigum. Þótt ekki
hafi tekist að komast þetta langt í að
opna lestir skipa til að flýta enn frekar
fyrir afgreiðslutíma þeirra f höfnum
skulum við vona að ekki verði næst lokið
við hönnun á losunarbúnaði skipa, sem
felur í sér að þeim sé hvolft í hverri höfn
með sérstökum örmum í báðum endum
skipsins!
Sea Princess er stærsta skemmtiferðaskip heims í augnablikinu.
57