Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1995, Qupperneq 69
Formannafundur Sjómannasambands íslands, haldinn
á Akureyri 24. og 25. nóvember 1995, mótmælir harðle-
ga 3. tölulið 31. greinar framangreinds frumvarps og telur
að fella beri töluliðinn brott úr frumvarpinu verði það
lagt íyrir yfirstandandi löggjafarþing.
Skýrt kemur fram í 1. grein laga um stjórn fiskveiða að
nytjastofnar á Islandsmiðum eru sameign íslensku
þjóðarinnar og að úthlutun veiðiheimilda myndar ekki
eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði útgerðarmanna
yfir veiðiheimildum skipa sinna. Því hlýtur að teljast afar
hæpið að heimila að verðmæti, sem ekki eru eign
útgerðarmanns, séu veðsett á sama hátt og skipið sjálft.
Fundurinn telur að verði útgerðarmönnum heimilað
með lögum að veðsetja veiðiheimildir sé Alþingi þar með
búið að afhenda þeim auðlind þjóðarinnar til eignar. Þar
með verður ekki hægt að úthluta veiðiheimildunum að
nýju miðað við breyttar forsendur eða breyta um
stjórnkerfi við fiskveiðarnar, þótt aðstæður gerðu slíkt
nauðsynlegt.
Fundurinn getur ekki fallist á slíkan eignarrétt útgerð-
armanna yfir sameiginlegum verðmætum þjóðarinnar og
krefst þess að tekið verið tillit til framangreindra ábend-
inga.
ÁLYKTUN UM NÝTINGU SJÁVARSPENDÝRA
Formannafundur Sjómannasambands íslands, haldinn
á Akureyri dagana 24. og 25. nóvember 1995, skorar á
Alþingi íslendinga að samþykkja að hafnar verði
hvalveiðar þegar á næsta ári. Byggt verði á tillögum vís-
indamanna um nýtingu á þeim tegundum sem taldar eru
þola veiðar. Formannafúndurinn telur ófært að auðlind
hafsins sé ekki að fullu nýtt á sama tíma og atvinnuleysi er
í landinu. Fundurinn telur því eklci eftir neinu að bíða
með að hefja veiðarnar. Einnig hvetur fundurinn til skyn-
samlegrar nýtingar selastofna við landið og bendir á þá
hættu sem fiskstofnum stafar af aukinni selagengd.
ÁSKORUN TIL SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA
VEGNA STARFSEMI ÚRSKURÐARNEFNDAR
SJÓMANNA OG ÚTVEGSMANNA
Formannafundur Sjómannasambands Islands, haldinn
á Akureyri 24. og 25. nóvember 1995, skorar á sjávar-
útvegsráðherra að semja nú þegar við Fiskifélag Islands
um söfnun og úrvinnslu upplýsinga úr sjávarútvegi, sér-
staklega hvað varðar upplýsingar um fiskverð. Jafnframt
skorar formannafundurinn á sjávarútvegsráðherra að gera
samning við Fiskifélag íslands til lengri tíma en eins árs í
senn vegna framangreindrar upplýsingasöfnunar.
Greinargerð:
Fiskifélag íslands hefur um langt árabil safnað
upplýsingum í sjávarútvegi. Nú síðasta ár hefur starfað
sérstök nefnd, úrskurðarnefnd sjómanna og útvegs-
manna, sem hefur aðallega stuðst við gögn frá Fiski-
félaginu í störfum sínum. Urskurðarnefndin gegnir mjög
mikilvægu hlutverki við ákvörðun á fiskverði í
framhald á bls. 72
Gunnvör hf. sendir
sjómönnum og
fiskvinnslufólki bestu
jóla og nýárskveðjur
Gunnvör hf.
Isafirði
Sími 456 4377
Fax 456 4720
69