Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1997, Side 27
Björgunarafrek þyrlusveitar Landahelg-
isgæslunnar eru mörg og frækileg.
Þyrluáhafnirnar hafa bjargað hátt á annað
hundrað manns frá bráðum bana auk þess
að hafa flutt hundruð sjúkra og slasaðra af
s)o og landi á sjúkrahús. Þjóðin öll hefur
fylgst með aðdáun með fréttum af hverju
björgunarafrekinu á fætur öðru. Það var því
vel við hæfi að forseti íslands veitti þyrluá-
höfnum TF-LIF afreksmerki hins íslenska
fyðveldis fyrir skömmu fyrir að hafa bjargað
samtals 39 skipverjum af þremum skipum á
einni viku marsmánuðar. Við ræddum við
Pál Halldórsson yfirflugstjóra Landhelgis-
gæslunnar um þyrlureksturinn á skrifstofú
bans í höíúðstöðvum flugdeildarinnar á
Reykjavíkurflugvelli. En fyrst er rétt að rifja
UPP í stuttu máli fyrstu tvo áratugi þyrlu-
tekstrar Gæslunnar.
Hrakfallasaga framan af
Þyrlusaga Gæslunnar hefur ekki alltaf ver-
ið jafn áfallalaus eins og undanfarin áratug
eða liðlega það. Framan af var sú saga þyrn-
um stráð, líkt og var með annan íslenskan
þyrlurekstur. Sagan einkenndist af hverju
óhappinu á fætur öðru þar sem þyrlurnar
eyðilögðust við brotlendingar. Þyngsta áfallið
var árið 1983, þegar TF-RAN fórst í Jökul-
fjörðum með fjögurra manna áhöfn.
Fyrsta þyrla Landhelgisgæslunnar var
keypt í samvinnu við Slysavarnafélag fslands
árið 1965. Um var að ræða litla þyrlu af gerð-
inni BELL 47j, skráð sem TF-EIR. Hún
brotlend án manntjóns í Skálafelli árið 1971
þegar hún var að fljúga fyrir Rafmagnsveitur
n'kisins. Árið eftir eignaðist Landhelgisgæslan
sma fyrstu eiginlegu björgunarþyrlu, TF-
GNA. Hún var af gerðinni Sikorsky S 62,
búin björgunarspili og sérstaklega hönnuð
fyrir gæslu yfir sjó. GNA brotlenti án mann-
tjóns í Skálafelli 1975.
Arið 1973 keypti Gæslan tvær litlar þyrlur
af gerðinni BELL, TF-HUG og TF-MUN.
bær reyndust illa og teknar úr notkun árið
eftir. Enn var keypt þyrla árið 1976, TF-
GRO. Hún var lítil, af gerðinni Hughes 500
C. GRO brotlenti við Búrfellsvirkjun án
tnanntjóns árið 1980 þar sem hún var í
vinnu fyrir Landsvirkjun. Raunar mátti litlu
■nuna að illa færi við brotlendinguna. Þyrlan
hrapaði um 50 metra á frá mötuneytisskála
starfsmanna Búrfellsvirkjunar og flugu brot
ur þyrlunni gegnum veggi skálans. Það vildi
hins vegar svo vel til að menn voru nýfarnir
ur mat og enginn í skálanum þegar þetta
skeði.
Árið 1980 urðu þau tímamót að keypt var
ný þyrla af gerðinni Sikorsky S 76, TF-RAN.
Þyrlan var sérhönnuð til landhelgisgæslu og
búin spili til björgunarstarfa. Saga hennar er
rakin í sérstakri grein hér í blaðinu, en hún
fórst í Jökulfjörðum 1983 ásamt allri áhöfn,
fjórum mönnum. Eftir þann sorgaratburð
var um tíma tvísýnt um framhald þyrlu-
rekstrar Gæslunnar.
Margar ástæður
-Jæja, Páll. Eftir þessu að dæma sýnist allt
hafi gengið á afturfótunum varðandi þyrlu-
reksturinn lengi framan af. Voru þetta ekki
álitin hálfgerð manndrápstæki?
„Ég hef aldrei verið sammála því að þyrlur
séu manndrápstæki. Það má skýra þau áföll
sem þyrlurekstur Gæslunnar varð fyrir og þú
taldir upp. Það er engin ein orsök sem olli
þessu. Ég held að ástæðurnar séu hérumbil
Sagan einkenndist af
íiverju óhappinu á fætur
öðru þar sem þyrlurnar
eyðilögðust við brot-
lendingar.
Þyngsta áfallið var árið
1983, þegar TF-BAN
fórst í Jökulfjörðum með
fjögurra manna áhöfn.
jafnmargar og óhöppin hafa verið. Þar kem-
ur margt til. Það má nefna reynsluleysi og
tæknilegar bilanir. Sumar af þeim bilunum
eru tengdar alveg ótrúlegri óheppni. Við get-
um tekið TF-GNA sem dæmi, sem brotlenti
í Skálafelli. Þessi vél var keypt af bandarísku
strandgæslunni og var þá nýyfirfarin. Á þess-
um tíma var strandgæslan með um 100
svona þyrlur og þær höfðu reynst vel. Ástæð-
an fyrir því að GNA eyðilagðist var sú, að það
brotnaði drifskaft í stélskrúfunni. Það reynd-
ist hafa verið steypugalli í drifskaftinu. Því
var það einskær óheppni að við skyldum
lenda í því að fá þessa einu þyrlu sem var með
þennan steypugalla. Þú minntist á TF-HUG
og TF-MUN. Þar var um röng innkaup að
ræða. Keyptar tvær ódýrar þyrlur sem höfðu
staðið ónotaðar árum saman og hentuðu ekki
okkar rekstri. En það má ekki gleyma því að
þyrlutækninni hefur fleygt mjög fram með
árunum og öryggið aukist samhliða. Við
fylgjum því eftir og einnig með bættum og
agaðri vinnubrögðum. Það er allt önnur upp-
bygging á flugdeildinni núna en áður var.“
Ekki hægt að tala um hana sem
BJÖRGUNARÞYLU
- Ef við förum aftur til ársins 1965 þegar
fyrsta þyrlan var keypt til Gæslunnar, TF-
EIR. Bar þetta kríli nokkuð nema flugmann
og einn farþega?
„Þetta var eins hreyfils þyrla og var gerð
fyrir einn flugmann og þrjá farþega. Það var
hægt að koma börum fyrir í henni, en hún
Samt þótti mönnum það engin spurning að SIF gæti farið á vettvang. Það kom
MJÖG OFT FYRIR VIÐ BJARGANIR AÐ VIÐ VORUM Á YSTU GETUMÖRKUM ÞYRLUNNAR.
SjÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR
27