Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1997, Síða 36

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1997, Síða 36
í birtingu morguninn eftir hélt leitin áfram og tóku slysavarnardeildir að vestan þátt í henni. Fjörur voru gengnar og þyrla frá danska varðskipinu Vædderen kom einnig til leitar. Um hádegisbil fundu skipverjar á ísa- fjarðarbátum sem tóku þátt í ieitinni þúst á A IIII Mllll RAFMÓTORAR Stæröir: 0,18-900 kW Jf JOHAN RÖNNING HF slmi: 568 4000 - http://www.ronring.is hafsbotni á 70-80 metra dýpi. Ekki var þó hægt að kanna hvort þar væri um flak þyrl- unnar að ræða. Síðdegis var Fokkervél Gæsl- unnar send til ísafjarðar með menn frá Land- helgisgæslunni og rannsóknarnefnd flug- slysa. Höfðu þeir meðferðis tæki til að nema hljóðmerki, en í þyrlunni var sjálfvirkur bún- aður sem átti að senda frá sér slík merki. Um hádegi daginn eftir, þann 10, nóvember, greindust hljóðmerki frá flakinu. Það reynd- ist vera á 82 metra dýpi norður af Höfða- strönd í Jökulfjörðum. Bátur frá ísafirði kom með neðansjávarmyndavél sem hafði verið notuð við veiðarfærarannsóknir og sást flakið greinilega með myndavélinni. Kapp var lagt á að ná flakinu upp svo unnt yrði að komast að orsökum slyssins. Svarti kassinn sem hljóðritar samtöl flugmanna var ekki um borð í þyrlunni þar sem hann var í viðgerð erlendis. Það tókst að koma taug frá Óðni á hjólafestingar þyrlunnar og tók það verk sjö Idukkustundir og var neðansjávar- myndavélin notuð til leiðbeiningar. Síðan var unnið við að koma traustari festingum fýrir og þann 14. nóvember tókst að draga þyrluna upp á um 20 metra dýpi. Þá voru kafarar sendir niður til að koma öruggari fest- ingum fyrir áður en þyrlan yrði hífð upp á yfirborðið. Um kvöldið fundust lík þeirra Þórhalls og Bjarna í þyrlunni en lík hinna tveggja voru þar ekki. Flutningaskipið Askja, sem var búið öflugum krana, kom á vettvang og hífði þyrluna upp. Hún var í heilu lagi og virtist í fyrstu ekki mikið skemmd. Óðinn tók síðan þyrluna um borð og flutti til Reykjavíkur ásamt líkunum tveimur sem fundust. Stóðu starfsmenn Landhelgisgæsl- unnar heiðursvörð er þau voru borin í land. Þyrlan var síðan flutt í skýli Landhelgis- gæslunnar og rannsókn hófst á henni. Flug- málastjórn og rannsóknarnefnd flugslysa sendu frá sér fréttatilkynningu 16. nóvember þar sem sagði meðal annars að einhver að- skotahlutur hefði lent í forþjöppu hægra hreyfils og laskað hann. Ekki var fullyrt að það væri orsök slyssins en tekið fram að rann- sókn myndi taka langan tíma og leitað yrði aðstoðar erlendra sérfræðinga. I byrjun febrúar 1994 náðist meira brak úr þyrlunni, meðal annars hluti af aðalspaða hennar. Enn síðar fannst hurð af þyrlunni og náðist hún upp. Rannsókn á slysinu leiddi í ljós að hurðin hefði fokið upp þegar hún var opnuð, vegna galla í festingum, lent í spaða þyrlunnar með þeim afleiðingum að hún hrapaði. Lítill galli orsakaði stórslys. H Stærsti framleiðandi dísilvéla yfir 200 hö í heimi! Kraftur - Ending - Þjónusta VÉLASALAN EHF. ÁNANAUST 1, REYKJAVÍK. SÍMI 552 6122.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.