Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1998, Side 14

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1998, Side 14
Tæknibreyting: Einn vitavörður Aðeins einn viti hefur vita- vörð, en það er á Stórhöfða. Alls eru rúmlega eitt hundrað vitar á landinu. Fyrir ekki svo mörgum árum voru starfandi tugir vitavarða, en sem fyrr segir er aðeins einn eftir. Ný- verið var vitavörslu hætt á Reykjanesvita en seinna á þessu ári eru liðin 120 ár frá því kveikt var á vita á Reykja- nesi, en viti þar var sá fyrsti hér á landi. ■ Fiskiskipaflotinn: Haraldur Böðvarsson hf.: X Olafur Jónsson GK fer til Rússlands Frystitogarinn Ólafur Jóns- son GK verður seldur til Rúss- lands. Kvóti togarans verður færður yfir á önnur skip Har- aldar Böðvarssonar hf. og að auki fer ísfiskstogarinn Sveinn Jónsson aftur til veiða, en skipið hefur verið aðgerðar- laust í nokkra mánuði. ■ Engar hvalveiðar Ríkisstjómin hefur ákveðið að ekkert verði af hvalveiðum að sinni. Frumvarp Guðjóns Guðmundssonar, þar um, hefur ekki fengið meðferð á Alþingi. Áður en til þess kom tilkynnti Davíð Oddsson, sem þá var starfandi sjávarútveg- sráðherra, að ekkert verði af veiðum. Hann sagði að meðal annars væri beðið eftir nýrri gerð skutla. ■ Sléttbakur með mettúr: Bætti metið svo um munar Dýrasta olían fæst hér á landi Mikillar óánægju gætir vegna verðs á olíu til skipa hér á landi. Bent hefur verið á að olíudropinn er dýrari hér en í nálægum höfnum. Hér má sjá lítraverð á nokkrum stöðum í Evrópu og hér á landi. Hull 8,71 Færeyjar 9,17 Þýskaland 9,56 ísland 14,70 Áhöfnin á Sléttbaki EA hafði ástæðu til að kætast þegar togarinn kom til heimahafnar í lo apríl. Verðmæti aflans var á ann- að hundrað milljónir króna. Túrinn hafði tekið rúma 30 daga. Áður hafði Sléttbakur mest komið með afla að verð- mæti um 75 milljónir króna. f mettúrnum var aflinn um 400 tonn af frosnum afurðum, sem fer nærri að vera um 620 tonn upp úr sjó. Að þessu sinni var aflinn grálúða af Hampiðjutorginu og þorskur sem fékkst að mestu undan Norðurlandi. ■ 14 Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.