Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1998, Blaðsíða 68
Happdrætti DAS:
Þeir fiska sem róa
sem slíkur fjöldi útdrátta er í
Áramót Happdrættis D.A.S.
eru ávallt í maí á hverju ári og
fór fyrsti útdráttur ársins fram
þann 14. maí. Áhersla var nú
lögð á málefnið og hvert hagn-
aðurinn rinni. Auk þess var
megnið keypt af upplagi
geisladisksins sem hljómsveit-
in Stuðmenn ásamt karlakórn-
um Fóstbræðrum gaf út fyrir
stuttu og fá allir þeir sem eiga
og kaupa miða í Happdrætti
D.A.S. slíkan disk. Diskurinn
hefur fengið afar góða dóma
enda var mikið lagt upp úr því
svo hljómgæðin yrðu sem
best.
Salan fór vel á stað og hefur
töluverð aukning náðst í sölu
miða en eins og flestir vita
hafa flokkhappdrættin átt í vök
að verjast vegna samkeppni
m.a. frá spilakössum og Lottó.
Mikið var um að fólk hefði ekki
hugmynd um að Happdrætti
D.A.S. dragi 4 sinnum í mán-
uði og það fyrir aðeins 700 kr.
en þetta er þriðja starfsárið
boði eða 48 útdrættir á einu
ári. í raun kostar því hver út-
dráttur 175 kr. en auk þess er
hægt að tvöfalda miðann og
þá er t.d. aðalvinningur að
upphæð 4 milljónir og aðal-
vinningur í lok ársins 40 millj-
ónir. Allt skattfrjálsir vinningar.
Einstæð tveggja barna móð-
ir á Akureyri var svo heppin að
fá 20 milljóna aðalvinning nú
30. apríl síðastliðnn en hún átti
einfaldan miða sem hún keypti
fyrir ári síðan. Ef hún
hefði átt tvöfaldan
miða þá hefði upp-
hæðin hljómað upp á
iaðeinsí 40 milljónir.
Eins og áður sagði
var málefninu gerð
góð skil í öllum aug-
lýsingum og áherslan
lögð á að auka á-
huga sjómanna á að
kaupa sér miða í sínu
„eigin“ happdrætti
sem Happdrætti
D.A.S. er. Send voru
út nokkur þúsund á-
skorunnarbréf ásamt
upplýsingum um
vinninga og dráttar-
daga ofl. En það
verður að segjast að
sjómenn brugðust al-
gerlega. Þetta er
svipað og fáir fót-
boltaunnendur keyptu sér
miða í Getraunum sem þýddi
að þær væru ekki svipur hjá
sjón. Þetta er undarlegt því
afar auðvelt er að endurnýja
með greiðslukortum og því
engin hætta á að tapa af vinn-
ingi og einnig sé horft til þess
að Happdrætti D.A.S. stendur
fyrir happdrætti dvalarheimila
aldraðra sjómanna. Hvar er
samstaðan? Ef áhugi sjó-
manna er ekki meiri en raun
ber vitni hvernig geta þeir ætl-
ast til að aðrir styrki þá upp-
byggingu á dvalarheimilum
sjómanna ef þeir hugsa ekki
betur um sitt eigið happdrætti
sem Happdrætti D.A.S. er.
Uppbyggingu þeirra heimila
sem Happdrætti D.A.S. hefur
stutt svo dyggilega við er
hvergi nærri lokið því öldruð-
um einstaklingum á eftir að
fjölga í framtíðinni. Minna má á
að í 25 ár var 40% af hagnaði
Happdrættis D.A.S. varið í
Byggingarsjóð aldraða sem
lagði fjármagn í uppbyggingu
dvalarheimila út um land allt.
Þegar harðna fór á dalnum var
fjármagninu beint alfarið við
uppbyggingu á Hrafnistuheim-
ilunum í Reykjavík og Hafnar-
firði. Ef sjómenn taka sig taki
og kaupa sér miða þá efla þeir
þessa uppbyggingu og þá
hugsanlega verður fjármagni
VANHIRÐA UMBUÐA
MENGAR MATVÆLI!
Markaðskör má eingöngu nota undir afurðir fiskmarkaðanna.
Öll önnur notkun er stranglega bönnuð og varðar sektum. Umbúðum
skal skila hreinum á næsta fiskmarkað.
ÍÉB*
157(0 Umbúðamiðlun ehf.
Fornubúðum 1, Pósthólf 470, 222 Hafnarfjörður, Sími: 555 6677, GSM: 898 2407
Fax: 555 6678. Netfang: umbud@isgatt.is
KEMHYDRO - salan
Snorrabraut 87 • 105 Reykjavík
Sími: 551 2521 • Fax: 551 2075
Gufukatlar frá Bretlandi
Allar gerðir
LE/TIÐ T/LBOÐA
68
Sjómannablaðið VIkingub