Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2000, Síða 60
Fiskveiðinefndin
Lýkur störfum
um áramótin
Nefndin hefur haldið marga fundi og fundað
með forsvarsmönnum allra þeirra hópa
sem einhverra hagsmuna hafa að gæta og allra
þeirra áhugahópa sem hafa látið í sér heyra.
Við höfum lagt fyrir ýmsar stofnanir, Fiskifélag-
ið, Hafrannsóknarstofnuna, Byggðastofnun og
fleiri tilteknar og skilgreindar beiðnir um viss at-
riði, til dæmis hvaða áhrif ef einhver, fiskveiði-
stefnan hefur haft á byggðaþróun," sagði Sig-
hvatur Björgvinsson alþingismaður í samtali við
Víkinginn.
Sighvatur á sæti í nefnd sem sjávarútvegs-
ráðherra skipaði fyrir einu ári til að endurskoða
og koma með tillögur til breytingar á lögum um
stjórn fiskveiða. Nefndinni var gert að skila nið-
urstöðum til ráðherra fyrir 1. september síðast
liðinn, en á því hefur orðið dráttur.
„Við stefnum að því að reyna að klára þetta
um áramótin. Það hefur haft áhrif á okkar vinnu
Sighvatur Björgvinsson
hvað það hefur dregist að auðlindanefndin skil
aði af sér. Það er eðlilegt að hún skili af sér
fyrst því hún er ekki að fjalla um breytingu á
lögum um stjórn fiskveiða, heldur auðlindamál
almennt. Þar á meðal hvort rétt sé að taka
gjald fyrir nýtingu auðlinda og þá erum við að
tala um allar auðlindir í eigu þjóðarinnar en
ekki bara fiskveiðarnar. Við höfum alltaf gert
ráð fyrir að fá hennar niðurstöður áður en við
klárum okkar vinnu," sagði Sighvatur Björg-
vinsson.
Auk Sighvats eiga sæti í fiskveiðinefndinni
þeir Friðrik Már Baldursson rannsóknarpró-
fessor við Háskóla islands sem er jafnframt
formaður, Árni Steinar Jóhannsson alþingis-
maður, Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður,
Kristján Skarphéðinsson skrifstofustjóri í við-
skiptaráðuneytinu, Tómas Ingi Olrich og Vil-
hjálmur Egilsson alþingismenn. ■
Hámarksafli í hverju kasti
með átaks- og lengdarmælum frá VAKA DNG
^einefec
7/rawl7/éc
Fyrir dragnótarbáta
• Mælir átak og lengd á togi
• Mælir raunhraöa á voöinni yfir botni þegar híft er
• Sýnir átakið á línuriti
• Stillanleg viövörun á beygjupunktum og átaki
• Allt aö þremur fleiri köst á dag
Fyrir togskip
• Mælir átak og lengd á vírum
• Stillanleg viðvörun fyrir átak og lengd
• Sýnir átakið á línuriti
• Sett í togskip 14m til 120m
• Hentar vel fyrir veiöar meö þremur trollum samtímis
• Möguleiki fyrir tengingu viö aflanema
VAKI
DNG
Armúli 44 • IS-108 Reykjavík
sími 595 3000 • fax 595 3001 • vaki@vaki.is • www.vaki.is
60 - Sjómannablaðið Víkingur