Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.2000, Side 10
Sýningar hefjast brátt á sjónvarpsþáttum um sjávarútveg við aldahvörf
Þættir sem ekki
eiga sinn líka
Þetta hefur verið óhemjumikil vinna en að
sama skapi ánægjuleg. Auk umfangs-
mikillar efnisöflunar hér heima höfum við
ferðast til um 20 landa við heimildaöflun,
enda verður ekki aðeins fjallað um íslenskan
sjávarútveg heldur einnig gerð grein fyrir
hvernig hann er rekinn með öðrum þjóðum,"
sagði Páll Benediktsson sjónvarpsmaður í
samtali við blaðið. Hann er nú að leggja
lokahönd á gerð sjónvarpsþáttaraðar um sjá-
varútveg við aldahvörf og hefjast sýningar á
þáttunum í Sjónvarpinu á næstunni, en þeir
verða átta talsins. Páll segir að mikið af myn-
defni og upplýsingum hafi gengið af við sam-
setningu þáttanna og kemur til greina að nýta
það með einhverjum hætti.
Ýmsar ástæður lágu að baki þegar Páll
Benediktsson ákvað að freista þess að ráðast
í þessa þáttagerð. Sem fréttamaður sjón-
varps hafði ekki farið framhjá honum að stór hluti þjóðarinnar hefur
fjarlægst sjávarútveginn og gerir sér ekki grein fyrir mikilvægi hans
fyrir land og þjóð. Páli fannst við hæfi að sýna þessum aðalatvinnu-
vegi þjóðarinnar á öldinni þá virðingu sem honum bæri. Árið 1997
kynnti hann forráðamönnum Sjónvarps hugmyndir sína um gerð
þáttaraðararinnar og þeir tóku henni vel. Eftir að búið var að tryggja
fjármagn til verksins, meðal annars frá ríkinu, fór Páll í þriggja ára
Páll Benediktsson fór víða í efnisöflun
og hér er hann staddur í Kína.
leyfi frá Sjónvarpinu, stofnaði fyrirtækið
Articfilm um verkefnið og hefur síðan unnið
sleitulaust að framkvæmd þess. Áætlaður
kostnaður er um eða yfir 60 milljónir króna.
Svo stiklað sé á stóru um innihald þáttanna
þá fjallar sá fyrsti um lífríkið, annar þáttur um
veiðar og sá þriðji um umheiminn, þar sem
meðal annars verður komið inn á hugsanlega
aðild okkar að ESB og hvaða þýðingu hún
hefði fyrir sjávarútveginn. Fjórði þátturinn fjal-
lar svo um fiskveiðistjórnunina og ólík sjónar-
mið dregin fram. Fimmti þátturinn er um
fiskvinnslu og sá sjötti um útflutningsmarkaði.
í sjöunda þætti er nýtækni í sjávarútvegi gerð
skil og síðasti þátturinn fjallar um efnahag og
framtíð. Páll Benediktsson leggur áherslu á að
efnið sé sett fram á áhugaverðan hátt þannig
að það höfði til allrar þjóðarinnar. ■
LÍÚ vill láta sjómenn borga auðlindagjald
Auðlindanefnd hefur lagt fram sameiginlegar tillögur um að
tekið verði upp í stjórnarskrá ákvæði um þjóðareign á nát-
túruauðlindum og landsréttindum sem ekki eru háð
einkaeignarrétti. Varðandi sjávarútveg bendir nefndin á tvær
leiðir. Sú fyrri er fyrningarleið og byggist á því að allar aflahlut-
deildir verði skertar árlega um fast hlutfall en síðan endurseldar
á markaði eða uppboði. Síðari leiðin er veiðigjaldsleið og felur í
sér beina gjaldtöku. Veiðigjaldið mætti annað hvort skilgreina
sem hlutfall af verðmæti landaðs afla eða sem tiltekna fjárhæð
af hvert kg af úthlutuðu aflamarki. Stjórn LÍÚ hafnar fyrningar-
leiðinni en Ijær máls á auðlindagjaldi sem verði tekið af óskip-
tum afla. Sjómannaforystan hafnar því alfarið að sjómenn greiði
þetta gjald fyrir útgerðina. ■
1 -
T
VERKFRÆÐISTOFAN
FENCURehf
CONSUITING ENGINEERS
TÆKNIÞJÓNUSTA
* SKIPAHÖNNUN
* VERKLÝSINGAR
* KOSTNAÐARÁÆTLANIR
* VERKEFTIRLIT
*
*
*
*
*
HALLAPROFANIR
STÖÐUGLEIKAÚTREIKNINGAR
BT-MÆLINGAR
LESTAR- OG HLEÐSLUMÆLINGAR
VELTITANKAR
WW
VERKFRÆÐISTOFAN
FENGURehf
CONSULTING ENGINEERS
Trönuhrauni I
220 Hafnarfjörður
Sími:565 5090
Fax:565 2040
10 - Sjómannablaðið Víkingur