Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2001, Blaðsíða 6
Konurnar í Hrönn hafa í nær hálfa öld útdeilt
jólagjöfum á hverjum jólum
Matthildur Kristjánsdóttir
formaður Hrannar.
Steinnun Arnórsdóttir og Ágústa Ágústsdóttir íjólapakka-
nefnd.
Jólapakkafundur var haldinn 12. nóv-
ember s.l., í Húnabúð hjá Kvenfélag-
mu Hrönn. Par voru mættar konur skip-
stjórnarmanna í FSK að pakka inn jóla-
pökkum til sjómanna sem verða að
heiman um jólin. I’eim sið hefur verið
haldið frá 1953 en þá var byrjað að gefa
jólapakka í skip. Víkingurinn bað Matt-
hildi Kristjánsdóttur formann Hrannar
að segja lesendum í stuttu máli frá starf-
semi Hrannar og þar á meðal jólagjöfum
til sjómanna sem eru fjarri heimahöfn á
jólum.
Kvenfélagið Hrönn var stofnað 12.
janúar 1949 á heimili Sigríðar Helgadótt-
ur sem varð fyrsti formaður þess. Þar
mættu 30 konur sem gerðust stofnfélag-
ar. Tildrögin að stofnun félagsins voru
þau að nokkrar konur hittust á balli á-
samt eiginmönnum sínum sem voru
stýrimenn. Þar barst í tal að konurnar
ættu að hafa meira samband sín á milli
og þarna kviknaði hugmynd að stofnun
félags fyrir konurnar og var þá ákveðið
að stofna kvenfélag sem hefði þann til-
gang að efla vináttu meðal þeirra og
styðja Stýrimannafélagið í
málefnum þess.
I lögum félagsins segir að
á hverjum fundi megi taka
inn í félagið nýja meðlimi og
geta aðeins konur fyrrver-
andi eða núverandi meðlima
Félags íslenskra skipstjórnar-
manna fengið inngöngu. í
félaginu i dag eru 115 konur.
Á jólafundi í desember
1953 var ákveðið að senda
jólapakka í þau verslunarskip
sem ekki voru í höfn á jólun-
um og var það gert strax.
Sendir voru 256 pakkar í tíu
skip. Ákveðið var að konur
gæfu þrjá pakka hver og síðan gáfu ýms-
ar verslanir vörur, svo sem Ellingsen,
Slippbúðin Verðandi h/f og Geysir h/f .
Síðan þá hafa jólapakkar verið sendir á
hverju ári. Konur gefa ennþá 2-3 pakka
hver en nú kaupum við það sem upp á
vantar . Framan af var þetta fjármagnað
með basar og kökusölu en síðustu árin
höfum við verið með kaffisölu á kynn-
ingardegi Stýrimannaskólans sem hefur
gengið mjög vel.
Fyrir hver jól útbúum við og sendum
jólapakka til allra farmanna á skipurn
sem ekki eru í heimahöfn urn jólin. Allir
skipverjar fá pakka.
Við höldum jafnan einn fund í nóvem-
ber þar sem öllum gjöfunum er pakkað
inn og má segja að þetta sé svona fyrsti
votturinn að jólastemmningu í okkar
hópi. Þegar mest var voru sendir 942
jólapakkar i 51 skip. Má nærri geta
hversu mikil vinna þetta hefur verið, að
útbúa, kaupa og pakka hátt í 1000 jóla-
gjöfum og síðan að dreifa þessu um borð
í skipin . En fyrir jólin í ár 2001 sendum
við 162 pakka í 14 skip. Segir þetta sina
sögu um þá breytingu
sem orðið hefur í ís-
lenskri kaupskipaútgerð.
Stundum hefur komið
til tals að jólapakkarnir
frá okkur væru tima-
skekkja í dag þar sem all-
ir eiga svo mikið af öllu,
en við i Hrönn vitum að
þessar gjafir eru vel
þegnar hjá sjómönnum.
Við höfum fengið hlýjar
kveðjur frá skipshöfnum
með innilegu þakklæti
fyrir hugulsemina.
Ég hef sjálf upplifað
jólastemmninguna unr
borð með eiginmanni
mínum og skipshöfn á
aðfangadagskvöld. Eftir hátíðarmatinn
var safnast saman í borðsalnum og
dregið um pakkana. Þetta var sérstaklega
eftirminnileg slund og allir voru mjög
glaðir meðan á þessu stóð. En besta
jólagjöfin á hverju sjómannsheimili er án
efa að hafa sjómenn sína heima, heila í
höfn, sagði Matthildur Kristjánsdóttir,
formaður Hrannar.
Olga Björgjónsdótlir ogÁslaug Hansen í jólapakkanefnd.
6 - Sjómannablaðið Víkingur