Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2001, Blaðsíða 12
Sigurður Már Jónsson
Sœgreifar í bók um ríka íslendinga
Tíu ríkustu
20 milljarða
Nú fyrir jólin kemur út ýtarleg bók
um ríka íslendinga unnin af Sigurði
Má Jónssyni blaðamanni á Viðskiptablað-
inu. 1 bókinni er fjallað um 200 ríka ís-
lendinga og er þar að sjálfsögðu ýtarlegur
kafli um sægreifa. Að sögn Sigurðar var
erfitt að meta eigur manna í sjávarútvegi
enda gífurlega margir sem koma að hon-
um og ekki síður eru það margir sem
hafa selt sig út úr honum. „Eg held ég
hafi þó náð að skoða kvótakóngana á-
gætlega og það er ljóst að þar er viða
auður. Reyndar sýndist mér ansi margir
vera með eignir á bilinu 200 til 400
milljónir en ég setti lágmark við 500
milljónir í hreina eign,” sagði Sigurður
Már og bætti við:
„Það þarf ekki að hafa mörg orð um
þann mikla styr sem staðið hefur um
sjávarútveginn síðan kvótakerfið varð að
veruleika 1984. Síðan hefur hann tekið
stakkaskiptum, fyrst og fremst vegna
breyttra atvinnuhátta sem að hluta má
rekja til hagræðingarmöguleika kvóta-
kerfisins. Óhætt er að fullyrða að sjávar-
útvegsfyrirtæki hafi verið i fararbroddi ís-
lenskra fyrirtækja á mörgum sviðum. Þau
voru fljót að sýna hlutabréfamarkaðinum
áhuga og mun djarfari en önnur fyrirtæki
við að sækjast eftir skráningu á Verð-
bréfaþingi íslands. Um leið hafa sjávarút-
vegsfyrirtækin leitað mjög eftir að sam-
einast öðrum og hefur samruni fyrirtækja
í sjávarútvegi verið meiri og tíðari en i
öðrum atvinnugreinum. Þannig hefur
sjávarútvegurinn gert sitt til að leita eftir
markaðsvæðingu og hagræðingu. Ljóst er
hins vegar að lagaákvæði sem hindra að
erlendir aðilar megi fjárfesta í sjávarút-
vegsfyrirtækjum þrengja kost þeirra.”
„Magnús Kristinsson útgerðarmaður er
með kunnari útgerðarmönnum landsins.
Hann hefur verið áberandi í starfi LIU,
einn af helstu hvatamönnum að kaupun-
um á enska knattspyrnuliðinu Stoke City
og að auki félagi í hinu fræga
Hrekkjalómafélagi í Vestmannaeyjum.
Undanfarin ár hefur hann unnið að því
að stækka og útvíkka útgerðarfélag sitt
og stefnir ótrauður með það á hlutabréfa-
Samkvæmt rannsóknum Sigurðar eru
10 eftirtaldir ríkustu sægreifarnir, en
þess ber að geta að nokkrir þeirra eiga
eignir i öðrum félögum en sjávarútvegi.
Mikill auður Guðbjargar Mattíasdóttur,
ekkju Sigurðar Einarssonar í Vestmanna-
eyjum skýrist til að mynda af stórum
eignarhlul fjölskyldunnar í Trygginga-
miðstöðinni:
markað þegar það hefur náð tilskilinni
stærð.
Útgerðarfélagið Bergur-Huginn (BH)
byggist á gömlum merg. Faðir Magnúsar,
Kristinn Pálsson (1926-2000), hóf ungur
að stunda sjó og varð um síðir lands-
þekktur útgerðarmaður og skipstjóri.
Eyjamenn kenndu Kristin við Berg, bát-
inn þar sem hann var lengst skipstjóri og
útgerðarmaður ásamt Magnúsi Bergssyni
tengdaföður sínum og velþekktum bak-
ara í Eyjum. Árið 1973 stofnaði Kristinn
útgerðarfélagið Berg-Huginn hf. og var
lengstum framkvæmdastjóri og síðar
stjórnarformaður. Meðstofnandi að þvi
félagi var Guðmundur Ingi Guðmunds-
son, mágur hans, sem hvarf síðar frá þvi
samslarfi og helgaði sig eigin útgerð á
loðnubátnum Hugin. Um tíma vann
Kristinn einnig með Sævaldi bróður sín-
um sem nú rekur útgerðarfélagið Berg
ehf. Kristinn kvæntist Þóru Magnúsdótt-
ur hjúkrunarfræðingi og eignuðust þau
fjögur börn: Magnús, Jónu Dóru hjúkr-
unarfræðing, Berg Pál skipstjóra og Birki
viðskiptafræðing og landsliðsmarkvörð í
knattspyrnu.
í gegnum tíðina hefur BH átt hlut-
deild í ýmsum sameiningum og er lík-
1. Guðbjörg Matthíasdóttir (ísfélag Vestmanneyja) 7.000 milljónir
2-3. Þorsteinn Már Baldvinsson (Samherji) 2.500 milljónir
2.-3. Kristján Vilhclmsson (Samhcrji) 2.500 milljónir
4. Guðrún Lárusdóttir
&Agúst Sigurðsson (Stálskip) 2.000 milljónir
5. Þorsteinn Vilhelmsson (Samherji) 1.600 milljónir
6. Ágúst Einarsson (Grandi/HaO 1.300 milljónir
7.-9. Páll H. Pálsson (Vísir)
1.200 milljónir
7.-9. Árinann Ármannsson (Ingimundur 1.200 milljónir
7.-9. Pélur Slefánsson (Pétur Jónsson) 1.200 milljónir
10. Rakcl Olsen (Sigurður Ágústsson ehf.) 1.100 milljónir
Heimild: Ríkir íslendingar.
■MBMBnBMBMBMB
Víkingur fékk leyfi til að birta einn kafla úr bók Sigurðar Más og
fjallar sá kafli um Magnús Kristinsson útgerðarmann í Vest-
mannaeyjum. Sigurður telur að Magnús eigi 800 milljónir króna
Hrekkjalómur í útgerð