Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2001, Blaðsíða 10
Vöruflutningar milli staða innanlands hafa í sívaxandi mœli
fœrst yfir á vegakerfið sem hefur ýmsa annmarka í för með sér
Samkeppnisstaða
land- og sjóflutninga
Með þvi að hœtta flutningum á sementi með Skeiðfaxa hœkkar jöfnunarkostnaður úr 300 í 960
hrónur á hvert tonn og þann kostnað verða neytendur að greiða.
Að undanförnu hefur spurningin um
jafna samkeppnisstöðu milli land- og
sjóflutninga gerst æ áleitnari hjá þeim
sem starfa í þessum greinum. Þegar fjall-
að er um sjóflutninga í þessu samhengi
er átt við vöruflutninga á milli hafna hér
á landi.
Hlutfall strandflutninga af heildarflutn-
ingum frá Reykjavík hefur dregist tölu-
vert saman á umliðnum árum. Þannig
voru t.d. olíuflutningar með skipum frá
Reykjavík um 50% af heildarolíuflutningi
árið 1983. Hins vegar var þetta hlutfall
liðlega 20% árið 2000. í ýmsum vörum
voru flutningar með skipum frá Reykja-
vík um 35% árið 1981, en hafði fallið
niður í 15% árið 2000. Samkvæmt þess-
ari þróun hafa landflutningar aukið bæði
magn og hlutdeild sína í heildarvöru-
flutningi á kostnað strandflutninga. En
er þessi þróun að öllu leyti eðlileg og ó-
hjákvæmileg? Þeirri spurningu er ekki
auðsvarað í stuttum pistli sem þessum.
En aftur á móti má velta upp einstökum
atriðum sem skipta miklu máli í sam-
keppnisskilyrðum land- og sjóflutninga.
Þar koma stjórnnvöld inn í myndina sem
beita sköttum og gjaldtökum, auk þess
að leggja til vegi og hafnir og ýmsa þjón-
ustu sem tilgreindar atvinnugreinar nota.
Niðurgreiddir landflutningar
Á ársfundi Hafnarsambands sveitafé-
laga sem haldinn var í október síðast-
liðnum, kynnti Axel Hall, sérfræðingur
við Hagfræðistofnun Háskóla íslands, úl-
tekt sem stofnunin er að gera um sam-
keppnisstöðu land- og sjóflutninga.
Reiknað er með að skýrsla um úttektina
liggi fyrir árslok 2001. í kynningu Axels
kom meðal annars fram að vísbendingar
benda til þess að landflutningar séu nið-
urgreiddir og sjóflutningar væru um-
svifameiri ef hagrænn kostnaður réði
ferðinni. Þetta stafar einna helst af því
að þau gjöld sem eru lögð á landflutn-
inga í formi þungaskatts endurspegla
ekki þann kostnað sem slíkir flutningar
valda á vegakerfi landsins. M.ö.o. virðist
samfélagið bera meiri kostnað en sem
nemur þeim sértekjum sem það fær frá
aðilum sem reka vöruflutningabifreiðir.
Þetta ójafnvægi milli gjalda og tekna hins
opinbera vegna landflutninga orsakast
aðallega vegna þess að þungaskatturinn
hækkar línulega í hlutfalli á móti þyngd
bifreiðar. Hins vegar er slit á vegum ó-
línulegur og er vaxandi eftir öxulþunga
bifreiðar. Bandarísk rannsókn hefur leitt
í ljós að bifreið sem vegur 2 tonn í öxul-
þunga slítur vegum 16 sinnum meira en
bifreið með eins tonna öxulþunga.
Samkeppni skekkist
Niðurgreiðslu á kostnaði landflutninga
vegna slit á vegum getur leitt að öðru ó-
breyttu til of mikilla þungaflutninga á
vegum samanborið við aðra flutninga-
möguleika. Slíkt viðbótarálag á vegakerfi
landsins eykur að sama skapi hættu á
umferðarslysum, aukinni mengun og
umferðateppum. Til upplýsingar má geta
þess að Evrópusambandið mun taka upp
gjaldtöku í samgöngum og flutningum í
samræmi við samfélagslegan kostnað
samgangna, sem leiði lil að hagkvæm-
ustu flutningahættir nái að þróast og
auka hlutdeild sína í greininni.
Fyrir utan niðurgreiðslu til landílutn-
inga í formi lágs þungaskatts, nýtur þessi
grein einnig niðurgreiðslu í formi styrkja
úr flutningajöfnunarsjóði vegna flutninga
á sementi. í þessu sambandi er vísað í
heimasíðu Félags íslenskra skipstjórnar-
manna, officer.is, þar sem gerð er grein
fyrir samanburði á jöfnun flutnings-
kostnaðar á sementi með þungaflutn-
ingabifreiðum og Skeiðfaxa. í fáum orð-
um sagt mun ákvörðun Sementsverk-
smiðjunnar um að hætta flulningum á
sementi með Skeiðfaxa nema á sumrin,
leiða til þess að jöfnunarkostnaður
hækkar úr 300 í 960 krónur á hvert
tonn. Þessi aukni kostnaður leggst á út-
söluverð sements sem neytendur greiða
síðan.
Samkvæmt framangreindu er full á-
stæða fyrir stjórnvöld að fara vel í
saumana hvað snertir samkeppnisstöðu
land- og sjóflutninga. Það er ekki hlut-
verk hins opinbera að skekkja sam-
keppnina. Þvert á móti að búa þannig
um hnútana að hagkvæmasta niðurstaða
fáist i sérhverjum rekstri Iandslýð til hag-
sældar.
Benedikt Valsson tók saman.
10 - Sjómannablaðið Víkingur