Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2001, Page 50

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2001, Page 50
Stœrsta safn Ijósmynda sem sýna sjómenn að yfir hálfa öld er í eigu einstaklings Örfáar svipmyndir úr einstæðu safni Heiðars Marteinssonar störfum og ncer íbúð Heiðars Marteinssonar að Skelja- granda í Reykjavík er svo að segja undir- lögð af safni yfir 40 þúsund ljósmynda sem hann hefur tekið um borð í veiði- skipum undanfarin 50 ár auk kvik- mynda. Hér er um einstakt safn að ræða og segja má að þar sé saga íslenskra fisk- veiða og sjómennsku undanfarna áratugi varðveitt í myndum, enda á Heiðar myndir af öllum veiðurn nema sel- og hvalveiðum. Sjálfur var hann sjómaður í tvo áratugi og hefur auk þess farið í fjölda veiðiferða til að taka ljósmyndir og kvikmyndir um borð í fiskiskipum. Um þessar mundir vinnur Heiðar að gerð heimildarmyndar um togveiðar þar sem efnið spannar allt frá elsta togbáti lands- ins til nýrra skuttogara. Hann segir skemmtilegsta myndefnið þar vera frá Baldri gamla þar sem karlarnir voru að troða sér í kojurnar sem voru bara smá- gat og eldavél í lúkarnum. „Ég ætlaði aldrei að verða sjómaður en sjórinn fór vel í mig og vinnan um borð sömuleiðis. En það sem mér fannst merkilegast við þetta allt saman voru mennirnir sem gerðu sjómennsku að ævistarfi. Það greip mig að þessi saga yrði að vera til í myndum og ég byrjaði strax um miðja síðustu öld að taka ljós- Ægir Gíslason háseti á dekki i góðum afla. Saltfisktúr á togaranum Þorsteini Ingólfssyni uppúr 1950. Hcr er hluti af annarri vaktinni. Nokkrir Færeyingar eru lengst til vinstri en síðan má þekkja Theódór Jóhannesson, Gísla Jón Hermannsson, Sigurð Þorsteinsson ogjóhann Adólfsson stýrimann. myndir og síðar kvikmyndir. Nú er safn- ið vaxið mér yfir höfuð og ég ætla að láta það frá mér ef einhver hefur áhuga á þessari sögu. Nú legg ég kapp á að halda áfram með heimildarmyndina um tog- veiðar og ætla út með togara í vetur og mynda þegar karlarnir taka inn trollið í brælu,” sagði Heiðar Marteinsson í spjalli við blaðið. Meðfylgjandi eru nokkrar gamlar myndir úr safni hans. Jói farmaður lengst til vinstri, Einar ogjón. 50 - Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.