Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2001, Blaðsíða 30

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2001, Blaðsíða 30
Út er komin bókin Á íslandsmiðum árið um kring þar sem 55 skipstjórar segja skoðun sína. Höfundur er Eiríkur St. Eiríksson. í samtali xið blaðið sagði Eiríkur að frá haustinu 1990 ogfram íjanúar 2001 hafi hann tekið xiðtöl xið alls um 500 skipstjóra fyrir Fiskifréttir undir yfirskriftinni Karlinn í brúnni. Það hxarflaði að honum að gefa þessi xiðtöl út í bókarformi en sú hugmynd fékk ekki hljómgrunn hjá útgefanda Fiskifrétta. Eftir að Eiríkur hœtti hjá blaðinu í byrjun þessa árs leitaði hann til Skerplu sem tók að sér útgáfuna. Meðfylgjandi er einn kafli úr bókinni. Á íslandsmiðum árið um kring Skrekkur í mönnum fyrir út- hafskarfavertíðina Frystitogarinn Helga María AK kom til heimahafnar á Akranesi fyrir páskana með afla að verðmæti tæplega 80 millj- ónir króna. Togarinn, sem áður hét Har- aldur Kristjánsson HF, var seldur frá Hafnarfirði til Akraness í september á sl. ári. Að sögn skipstjórans, Eiríks Ragnars- sonar sem einnig var með skipið þegar það var gert út frá Hafnarfirði, var afla- verðmætið frá því að Haraldur Böðvars- son hf. tók við útgerðinni þá komið í um 350 milljónir króna. Kvótastaða skipsins er sterk og næst verður haldið til veiða á úthafskarfamiðunum á Reykjaneshryggn- um. Við erum að Ijúka við fjögurra vikna veiðiferð og aflaverðmætið í túrnum ætti að verða hátt í 80 milljónir króna. Að þessu sinni höfum við verið að veiðum undan Suðvesturlandi og aflabrögðin hafa verið þokkaleg. Við höfum verið að veiða þorsk, ýsu, ufsa og einnig dálítið af karfa og heilt yfir er óhætt að segja að það er minna af þessum fiski á veiðislóð- inni en var á sama tíma í fyrra, segir Ei- ríkur en togarinn hefur verið að veiðum allt frá tólf mílna línunni og út undir 40 til 60 mílur frá landi. Þorskhrogn að verðmæti þrjár milljónir kr. Við byrjuðum veiðiferðina á svæðinu suður úr Vestmannaeyjum eða á Sneið- inni sem svo er kölluð. Þar fengum við mjög stóran og góðan þorsk og aflinn fór allur í stærsta ílakaflokkinn. Þetta var að- allega fjögurra til sex kílóa þorskur, alh hrygningarfiskur, og hann var úttroðinn af gotu. Við hirðum auðvitað hrognin og bara 1 þessari veiðiferð er aflaverðmæti Eiríkur Ragnarsson, skipstjóri. hrognanna um þrjár mifljónir króna. Verðið á hrognunum hefur verið mjög hátt og það munar svo sannarlega um þessa aukaafurð, segir Eiríkur en að hans sögn hefur fiskurinn vestan við Skerin hins vegar verið frekar smár. Á Eldeyjarbankanum og Belgableyð- unni svokölluðu þar suður af hefur þorskurinn verið frekar smár. Sömuleiðis hefur karfinn verið í smærra lagi á Mel- sekknum. Uppistaðan í aflanum þar er 400 lil 700 gramma gullkarfi og hann nýtist mjög illa í pakkningar. Verðið á karfanum hefur líka verið svo lágt að það liggur við að það borgaði sig fyrir útgerð- ina að leigja kvótann frá sér í stað þess að eyða honum á þennan fisk. Það eru reyndar nokkrir frystitogaranna komnir með karfaflökunarvélar og með því að flaka karfann um borð hafa þeir fengið Eiríkur Ragnarsson skipstjóri á Helgu Maríu AK hærra verð en flakaverðið hefur einnig lækkað mikið, segir Eiríkur en hann upplýsir að Melsekkurinn sé um 70 til 80 mílur suðvestur úr Reykjanesinu. Nafnið hefur vafist fyrir mörgum en þýskir sjómenn munu hafa átt heiðurinn af nafngiftinni. Þjóðverjarnir kölluðu Eldeyna alltaf Mehlsáck (mjölsekk) vegna þess hvernig hún er í laginu og þess að hún er hvít að ofan af fugladriti. Allar veiðar þeirra á svæðinu miðuðust við Eldeyna og svæð- ið, sem nú gengur undir nafninu Mel- sekkur, kölluðu þeir súd-westlich Mehlsáck. Belgableyðan dregur nafn sitt hins vegar af því að þar var mikið eftir- lætissvæði belgísku skipsljóranna. Aflanum haldið uppi með endur- bótum á veiðarfærunum Nú eru úthafskarfaveiðarnar fram und- an eða réttara sagt veiðar á djúpkarfa og úthafskarfa úti á Reykjaneshryggnum og Eiríkur segir að hálfgerður skrekkur sé í mönnum fyrir vertíðina. Japanskir kaupendur eru svo sem til- búnir til þess að kaupa karfann af okkur en verð á djúpkarfanum er lágt í Japan og enn lægra verð fæst fyrir úthafskarf- ann. Ég held að verðið hafi aldrei verið lægra þau ár sem ég hef stundað þessar veiðar en Haraldur Kristjánsson HF og Sjóli HF voru meðal allra fyrstu íslensku skipanna sem fóru til karfaveiða djúpt úti á Reykjaneshryggnum. Okkur hefur tekist að halda uppi viðunandi afla und- anfarin ár með því að betrumbæta veið- arfærin. Ef við hefðum notað veiðarfær- in, sem við notuðum fyrir þremur lil fjórum árum, á veiðunum í fyrra þá hefð- um^við alls ekki náð þessum afla, segir Eiríkur en hann býsl við því að fjöldi 30 - Sjómannablaðið Víkingur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.