Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2001, Blaðsíða 47
eru Lilbúin lil brottfarar. Þetta kemur þá einnig niður á komum
til hafna.
Erfiðleikar í skemmtiskipageiranum
Það er ekki laust við að allt hafi farið til helvítis þegar árás-
irnar voru gerðar á New York þann 11. september s.l.
Skemmtiferðaskipaiðnaðurinn hefur lítið verið í sviðsljósinu því
allra athygli hefur beinst að fluginu. Þegar hryðjuverkamenn
réðust gegn skemmtiferðaskipinu Achille Lauro árið 1985 féllu
ekki fjármálamarkaðir eins og gerðust nú. En það eru fleiri sem
þjást en flugfélögin því útgerðir skemmtiferðaskipa hafa orðið
illa úti í kjölfarið. Bandaríska strandgæslan fór strax daginn eft-
ir um borð í eitt skemmtiferðaskip sem statt var um 20 rnilur
undan Miami og handtók einn farþega eftir ábendingum frá á-
höfn skipsins. Mikill ótti greip um sig í þessu iðnaði líkt og í
fluginu. Mörg skipafélaganna urðu að fella niður fjölda ferða
þar sem allt flug lá niðri og það var erfitt mörgum skipafélög-
um. Strax kom til uppsagna, meira að segja áður en flugfélögin
tilkynntu urn slíkt en það vakti þó ekki áhuga frétlastofa um
heiminn. Þar misstu því margir sjómenn vinnu sína vegna
hryðjuverkanna. Óttast fyrirtækin að bókanir fyrir 2002 verði í
lágmarki og að enn verði að draga saman seglin. í siðustu viku
nóvember var meðal annars tilkynnt um samruna tveggja af
Það hiykhti í stoðum skemmtisiglínga eftir atbwðina 11 september s.L.
stærstu risurn skemmtiferðaskipaútgerða, P6a:0 skipafélagsins,
sem rneðal annars á Oriana, og Royal Caribbean Cruises, sem er
eigandi s.s. Norway. Ekki er búist við að breytingar verði á
nöfnum þessara frægu skipa þrátt fyrir samrunann.
Álfamærin
Sextug hjón sem voru búin að vera gift í 25 héldu upp á
þetta með góðum mat og víni. Sem þau sitja að snæðingi birt-
ist allt í einu álfamær sem kveðst ætla að gefa þeim eina ósk
hvoru urn sig í tilefni þessara tímamóta. Konan varð fyrri til og
óskaði sér heimsreisu. Álfamæri sveiflaði staf sínu og puff...
konan var komin með farseðla í hendur. Nú var komið að
karlinum og eftir nokkra umhugsun óskaði hann þess að eiga
30 árum yngri konu. Álfamærin sveiflaði staf sínum og puff...
maðurinn varð samstundis orðinn níræður.
Nýir málshættir
Heima er best í hófi.
Oft veldur lítill stóll þungum rassi.
Oft er bankalán ólán í láni.
Flestar gleðikonur hafa í sig og á.
Oft láta bensínafgreiðslumenn dæluna ganga.
Betri eru kynórar en tenórar.
Margur bóndinn dregur dilk á eflir sér.
Betra er að sofa hjá en silja hjá.
Oft fara honunar á bak við rnenn.
Margri nunnu er ábótavant.
Oft hrekkur bruggarinn í kút.
Víða er þvottur brotinn.
Oft fara bændur út um þúfur.
Til þess eru vítin að skora úr þeim.
Margur briddspilarinn lætur slag slanda.
Úr Egilsbók
Út er komin bók með kveðskap hins kunna hagyrðings Egils
Jónassonar frá Húsavík og eru þar margar hnyttnar vísur. Hér
eru nokkur sýnishorn.
Eitt sinn kom Egill inn á símstöð þar sem ein stúlkan varpaði
til hans tveim hendingum sem hann botnaði á augabragði:
Því er ég svona þykk að framan,
og þó svoföl á ltinn?
Þú hefur verið að gera gaman
og gamninu slegið inn.
Á undan Agli á götu gekk þrýstin kona:
Augun komast hæst að hné,
hærra er margs að vona.
Hvernig ætli kýrin sé,
fyrst kálfarnir eru svona?
Bóndi einn kvaðst vera orðinn bilaður í fótum en taldi sig þó
enn geta setið hest:
Næstum virðist bóndi búinn,
blómaskeið á enda liðið.
Segist orðinn fótafúinn,
en finnst hann ennþá geta riðið.
Gist hjá greiðugum vini:
Skrýtilegt er lífið og skemmtilegt á stundum,
þó skuldir séu reiknaðar í dollurum og pundum.
En, - óvanalegt nokkuð, að ekki þurfti borgun,
ákavíti í gærkveldi, en koníak í morgun.
í rannsókn:
Læknirinn þreifaði báða endana í
af áhuga, natni og list.
Ég blessa hann síðan, og það er aðeins af því,
að hann þreifaði upp í mig fyrst.
Sjómannablaðið Víkingur - 47