Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2001, Blaðsíða 62

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2001, Blaðsíða 62
Þjónustusíður Sjóklceðagerðin 66° NORÐUR hefur flutt höfuðstöðvar sínar í nýtt hús í Garðabœ og Jón B. Stefánsson hefur tekið \ið starfi forstjóra fyrirtœkisins. Sjómannablaðið Vík- ingur spjallaði við Jón og Markús Örn Þórarinsson framkvœmdastjóra markaðssviðs Gæði á góðu verði er okkar sterkasta vopn Markús Örn Þórarinsson ogjón B. Stefánsson með sýnishom af framleiðslunni. Hið nýja aðsetur Sjóklæðagerðarinnar er að Miðhrauni 11. Þar er öll starfsemi fyrirtækisins hér á landi undir einu þaki nema framleiðsla Vinilglófans sem er ennþá í Súðavogi. í nýja húsinu eru skrifstofur, lager, söludeildir, verslun, silkiprentun og ísaumur. Sjóklæðagerðin rekur nú fjórar verslanir. Ný verslun var opnuð síðast liðið sumar í Lækjargötu, á- fram er verslun í Faxafeni, nýja búðin í Miðhrauni og síðan er verslun á Akur- eyri og þjónusta í tengslum við hana. „Þessi verslun hér í Miðhrauni er meira hugsuð sem þjónusta við atvinnu- vegina. Hér geta menn séð sýnishorn af öllum vörum sem við erum með í boði en við erum líka með almenna fram- leiðslu okkar til sölu hér, svo sem útivist- arvörurnar og því er þetta jafnframt verslun fyrir alla,” segir Jón B. Stefáns- son. Þeir félagar Jón og Markús benda á að það sé mikið hagræði fyrir viðskipta- vinina að nú er búið að sameina alla lag- era Sjóklæðagerðarinnar á einn stað á- samt skrifstofum og þjónustudeildum. Framleiðslan fer hins vegar að mestu leyti fram í Lettlandi þar sem fyrirtækið rekur sína eigin verksmiðju og stjórnar henni alfarið. Þetta tryggir að vörugæðin eru þau sömu og áður, en mikil áhersla er lögð gæðaeftirlit sem fyrr. Hráefni eru flutt inn beint til Lettlands en fullunnin vara er síðan öll flutt hingað til lands þótt hluti framleiðslunnar sé síðan fluttur út til annarra landa. Útflutn- ingurinn er nú alfarið undir vöru- merkinu 66° NORTH ICELAND sem hefur sýnt sig að vera mjög auðskilið á erlendum mörkuðum. Jón segir að útrásin erlendis skiptist í tvo flokkar. „Annars vegar útrás í sjófatnaðinum þar sem við erum komnir með trausta markaði í Norður-Ameríku, Kanada, á Norðurlöndum, í Hollandi og Bretlandi. Þangað seljum við sjóföt og fatnað sem notaður er við ýmsa matvælaframleiðslu. Hinn hluti útrásarinnar er svo útivistar- línan. Þar er fatnaðinum skipt í þrjá flokkar. Það er skjólfatnaður fyrir þá sem ganga á jökla, fatnaður fyrir fólk sem nýtur útivistar fjarri byggð og svo er enn ein fatalínan fyrir þá sem ganga um göt- ur og stíga borganna. Þessu fylgir svo viðeigandi undirföl og fylgihlutir. Þessi fatalína er ný af nálinni og við erum að byrja að kynna hér á landi, en hér er um að ræða fatnað á alla fjölskylduna.” Gæðasjófatnaður frá Sjóklæðagerðinni Hið nýja vörumerki Sjóklœðagerðarinnar. hefur verið óspart notaður af íslenskum sjómönnum áratugum saman. Markús bendir á að ýmsar lausnir úr útivistar- geiranum séu að koma inn í sjó- og vinnufatnaðinn í æ ríkari mæli, efnin séu sífellt að vera þjálli og léttari án þess að í nokkru sé slakað á kröfum um gæði og endingu. Jón tekur undir þetta og segir að staðreyndin sé sú að gæðin standi alltaf uppúr að lokum. Ýmis fatnaður í þessum flokkum hafi komið á markað hér frá samkeppnisaðilum en alltaf fari það svo að rnenn leiti aftur þangað þar sem gæðin eru mest. „Enn er sjófatnaður og vinnufatnaður almennt undirstaðan í framleiðslu okkar og verður svo áfram þótt framleiðslulínan fyrir- tækisins verði breiðari og fjöl- breyttari en verið hefur.” Jón B. Stefánsson hefur langa reynslu af stjórnunarstörf- um, meðal annars sem einn af yf- irmönnum Eimskips bæði hér á landi og erlendis. Hann segist kunna mjög vel við sig í hinu nýja starfi. „Þelta er traust og gott fyr- irtæki sem framleiðir gæðavöru og hefur mjög góð sóknarfæri bæði hér heirna og erlendis. Við sjáum því mörg tækifæri framundan. Það er mikil samkeppni í þessari grein og þar eru gæði á góðu verði okkar sterkasta vopn.” NORTH ICELAND 62 - Sjómannablaðið Víkingur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.