Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2001, Blaðsíða 59

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2001, Blaðsíða 59
Sigling um netið í umsjón Hilmars Snorrasortar í áframhaldandi siglingu okkar um Netið þá ætla ég fyrst að staldra við síðu sem ég hvet alla þá sem eru á móti nú- tíma þrælahaldi að skoða. Síðan sem hér um ræðir er á slóðinni http://www.icons.org.au/ sem er International Commission on shipping. A síðunni er að finna einhverja þá svört- ustu skýrslu um nútíma þrælahald til sjós. Það var ekki þrælahald að vera á íslandsmiðum meðan breskir togarar stunduðu veiðar hér við land. Áhöfnin á Miröndu, sem var okkur góðkunn, kom þó ekki til að veiða heldur að vera tog- araflotanum til aðstoðar. Síðu urn þetta merka skip er að finna á slóðinni http://home.freeuk.net/nigel- hadley/homepage.htm. Þar má meðal annars sjá hvernig það var að vera á sjó við íslandsstrendur. Margar góðar ljós- myndir eru á síðunni meðal annars úr þorskastríðunum og frá hafís við landið. Talandi um veður og hafís þá er ekki spurning um að benda lesendum á heimasíðu Veðurstofu íslands á slóðinni http://www.vedur.is Mjög gagnleg síða fyrir ekki einungis sjómenn heldur alla íslendinga. Það er að vísu heill frum- skógur í að leita ef á að finna síður þar sem veður ber á góma og þá sérstaklega sem varðar veður á sjó. Á heimasíðu kanadísku veðurstofunnar, http://weath- eroffice.ec.gc.ca/, er meðal annars hægt að nálgast ískort fyrir allan norðurhvel jarðar. Til þess að þeir sem eru í sigling- um til Evrópu geti fylgst með veðrinu og lægðum þar þá er hægt að fá mjög skemmtileg veðurkort á slóðinni http://www.meto.govt.uk/we- ather/charts/animation.html en það er hjá bresku veðurstofunni. Ferjur eru alltaf heillandi að horfa á og ég tali nú ekki um að ferðast með þeim. Til að plana ferð næsta surnar þá er til- valið að fara á slóðina http://homepages.enterprise.net/nickwOO OOO/index.html þar sent er að finna lista yfir ferjufyrirtæki og hvaða leiðir þeir eru að sigla á. Ef þið farið með Norrænu til Skotlands þá er hægt að fara hvert sem er í Evrópu með ferjum fram og til baka. Fyrir alla þá er fylgjast með í sjávarút- veginum er Interseafood síðan á slóðinni http://www.interseafood.com/ sú síða sem enginn lætur fram hjá sér fara. Þarna getur að líta helstu fréttir úr út- gerðinni sem og aflatölur og margt margt fleira. Ef þið hafið áhuga á að kynna ykkur það sem verið hefur að gerast í austur-þýskum skipasmíðaiðnaði síðustu 50 árin áður en múrinn féll þá er http://www.german-shipbuilding.com/ síðan sem þessar upplýsingar hefur. Þar má finna m.a. hvað skip voru smíðuð eða fóru í viðgerð hjá einstökum skipa- smíðastöðvum þar í landi. Alþjóðasamtök skipstjóra halda úti heimasíðu á slóðinni http ://www.ifsma. org/pages/main .htrnl. Þar getur að lýta ýmsar upplýsingar um samtökin og einnig er þar að finna skip- stjóra ársins. Sá sem fyrir valinu hefur orðið að þessu sinni er skipstjóri norska ekjuskipsins Tampa sem að bjargaði flóttamönnunum undan strönd Ástralíu. Bandarísk sarntök skipstjóra, stýrimanna og hafnsögumanna er að finna á http://www.bridgedeck.com/front.html þar er hægt að skoða blað það sem sam- tökin gefa út sem og aðrar rnerkar upp- lýsingar s.s. eins og staða hinna ýmsu vísitalna. Það er kannski vísbending um hvað umbjóðendur þeirra hafast við á frí- vöktum sínum. Að lokum þá ætla ég að benda á nokkrar síður áhugamanna um skip. Fyrst er að nefna síðu World Ship Soci- ety á slóðinni http://worldshipsociety.org en þessi samtök eru búin að vera starf- andi í yfir 55 ár. Gefið er út mánaðarlegt tímarit með upplýsingum um nafna- breytingar skipa. http://www.container- ships.org/index.asp er síða sem enginn á- hugamaður um siglingar gámaskipa um Norður Atlantshaf á að láta fara framhjá sér. Hér eru ljósmyndir af flestum skip- um sem eru í siglingum á vegutn ís- lensku skipafélaganna Eimskips og Sam- skipa en einnig myndir af görnlu skipun- um okkar sem í eina tíð báru stolt ís- lenska þjóðfánann í skut. Slíkt heyrir því miður einungis fortíðinni til. Sjómannablaðið Víkingur - 59
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.