Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2001, Síða 8
Ofurviðkvœmni forystu LÍÚ engin takmörk sett
%
%
Kingi K-aHnr
utvar
Viðtal sem birtist við
Magnús Þór Hafsteinsson
fiskifræðing og fréttamann í
2. tbl. Sjómannablaðsins Vík-
ings á þessu ári olli mikilli
hugaræsingu hjá formanni og
framkvæmdastjóra LIÚ. Þetta
viðtal, ásamt störfum Magn-
úsar fyrir fréttastofu Sjón-
varpsins, varð til þess að þeir
Kristján Ragnarsson og Lrið-
rikj. Arngrímsson skrifuðu
útvarpsstjóra langt bréf þar
sem þess er krafist að gripið
verði til „viðeigandi ráðstaf-
ana” gagnvart Magnúsi Þór.
Meðal kæruefna er eftirfar-
andi setning úr viðtalinu í Víkingi: „Ég
tel að kvótakerfið hafi einfaldlega ekki
skilað því sem það á að gera. Það er
borðleggjandi staðreynd sem ég þori að
standa við gagnvart hverjum sem er.”
Ritstjóri Víkings hafði spurnir af þessu
bréfi og óskaði eftir því við fram-
Magnús Þór Hafsteinsson
kvæmdastjóra RÚV og
staðgengil útvarps-
stjóra að fá aðgang að
því með tilvísun til
upplýsingalaga. Bjarni
Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri hafnaði
þessari beiðni m.a.
með vísan til þess að
LÍÚ legðist gegn því
að bréfið yrði afhent.
Þessi synjun var af
hálfu ritstjóra Víkings
kærð til Úrskurðar-
nefndar um upplýs-
ingamál þar sem full-
ur sigur vannst og
bréfið fékkst afhent. Það er dagsett 2. á-
gúst 2001. Innihald þess reyndist fyrst og
fremst einkennast af barnalegum klögu-
málum um að Magnús leyfði sér að láta í
ljós eigin skoðanir á ýmsu er varðar sjáv-
arútvegsmál.
Áhöfnin á Kleifabergi ÓF-2 gefur
út bráðabirgðalög
Roðlaust og beinlaust undir geislann
Út er kominn geisladiskurinn Roðlaust og beinlaust
sem inniheldur bráðabirgðalög áhafnarinnar á frystitog-
aranum Kleifabergi ÓL Lög þessi öðlast gildi við spilun
þeirra, eins og tekið er fram á diskinum. Hann inniheld-
ur 11 bráðskemmtileg lög sem flest eru eftir Björn Val
Gíslason sem einnig er höfundur flestra textanna. Eitt
lagið ber heitið Geltandi ræfill og fyrsta erindi textans
er svohljóðandi:
Ég kastaði á Halanum og dró fram á Barð.
Það kom fljótlega ljós en það er svo lítið sem þarf.
Hann hékk smástund inni en blikkar núna eitt og eitt.
Ég hélt reyndar fyrst það væri truflanaljós
en reynslan hefur kennt mér það margsinnis lil sjós
að búast við því versta
og reikna með það hendi mig.
Þetta framtak þeirra á Kleifabergi hefur vakið verð-
skuldaða athygli og vitaskuld munu bráðabirgðalög
þeirra taka gildi á fjölda heimila um jólin. Enda mega
þeir vera stoltir af söngnum og þetta sýnir að sem fyrr
er íslenskum sjómönnum margt til lista lagt.
Til æðstu stiórnar
RÚV
I niðurlagi þessa maka-
lausa bréfs Kristjáns og
Friðriks segir orðrétt:
„Af framangreindum
tilvitnunum i Sjómanna-
blaðið Víking og með
hliðsjón af meðfylgjandi
samantekt úr fréttum
Magnúsar Þórs hjá RÚV,
verður ekki annað séð en
að viðkomandi frétta-
maður hafi misnotað að-
stöðu sína herfilega
margsinnis í því skyni að
koma höggi á íslenska
fiskveiðistjórnunarkerfið,
sjávarútvegsfyrirtæki og
útvegsmenn.
í því Ijósi er hér með
óskað eftir því að út-
varpsstjóri grípi til við-
eigandi ráðstafana í mál-
efnum þessa fréttamanns.
Að öðrum kosti áskilur
Lancissamband íslenskra
útvegsmanna sér rétt til að
leita með þetta mál til
æðstu stjórnar Ríkisút-
varpsins, til Siðanefndar Blaðamannafélags
íslands, líkt ogformaður starfsmannafélags
RÚV gerði með bréffonnanns LÍÚ í fyrra,
og víðat; ef þurfa þykir.”
(Leturbr. blaðsins)
Hótanir sem þessar væru auðvitað
hlægilegar ef ekki kæmi til hið ískyggi-
lega orðalag. Æðsti yfirmaður RÚV er
vitaskuld menntamálaráðherra og þarna
er því hótað að ráðherra verði beðinn um
að beita sér gegn Magnúsi Þór og dugi
það ekki til verði leitað víðar. Skilja rná
fyrr en skellur í tönnum.
Heiðraðu skálkinn...
í umsögn Boga Ágústssonar fréttastjóra
Sjónvarps til útvarpsstjóra um þetta sér-
kennilega bréf, og send var LÍÚ, segir
meðal annars:
„Svo virðist af bréfi þeirra að þeir telji
umfjöllun um önnur fiskveiðistjórnunar-
kerfi og brottkast á fiski árásir á LÍÚ.
Þessu hafna ég algjörlega, fréttastofa
Sjónvarps væri að bregðast hlulverki
sínu ef hún leiddi hjá sér háværa um-
ræðu um þessi mál.”
í bréfi Boga segir einnig:
„Þetta er ekki í fyrsta sinn sem forystu-
menn LÍÚ hafa uppi tilburði sem ég tel
tilraunir að stýra fréttaflutningi af nrál-
efnurn sjávarútvegs, ég hef átt nokkur
samtöl við þá og aðra fulltrúar samtak-
anna, þar sem þeir hafa leynt og ljóst á-
sakað fréttastofuna um fjandskap við
samtökin með umfjöllun um atriði sem
þeim virðast ekki að skapi eða eru gagn-
rýnin á fiskveiðistjórnunarkerfið.”
Þessu svari undu formaður og fram-
kvæmdastjóri LÍÚ illa og sendu útvarps-
stjóra nýtt bréf dags. 20. september. Þar
eru ítrekaðar árásir á Magnús Þór og þess
krafist að útvarpsstjóri „grípi til viðeig-
andi ráðstafana. Að öðrurn kosti áskilur
LÍÚ sér rétt til að leita þeirra leiða sem
nauðsynlegar eru að mati samtakanna, til
að fá hlut sinn réttan í þessu máli.” Svo
segir orðrétt í bréfinu.
Fari svo ólíklega að LÍÚ takist að hrekja
Magnús Þór Hafsteinsson frá starfi fyrir
Ríkisútvarpið er tímabært fyrir fjölmiðla
að setja upp skilti á fréttastofum sínuin.
Þar skal letrað: HEIÐRAÐU SKÁLKINN
SVO HANN SKAÐI ÞIG EKKI.
Sœmundur Guðvinsson
8 - Sjómannablaðið Víkingur